Ágústráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun Hraunvallaskóla 14. ágúst 2024 by Ingvar Sigurgeirsson

Ásdís Ýr Ólafsdóttir, Sigríður Heiða Gumundsdóttir, Unnur Sveinsdóttir: Samþætt þemanám á miðstigi í Hörðuvallaskóla
Hörðuvallaskóli fór af stað með þróunarverkefni árið 2019 þar sem lögð var áhersla á samþættingu námsgreina og innleiðingu leiðsagnarmats. Þeir kennsluhættir hafa nú fest sig í sessi í 7. - 10. bekk en í ár tók 6. bekkur einnig upp þessa kennsluhætti og næsta vetur stefnum við einnig á að taka þessa kennsluhætti upp í 5. bekk.

Nám og kennsla í hæfnimiðuðu þemanámi einkennist af áhugaverðum og markvissum verkefnum sem unnin eru í u.þ.b. 4ra vikna þemum. Fyrir hvert þema eru tvær svokallaðar kjarnavikur þar sem lögð er áhersla á aðferðir, hugtök og færni sem nýtist nemendum í komandi þema. Þemun sjálf byggjast almennt upp á skylduverkefnum og valverkefnum. Skylduverkefnin eru almennt unnin í hópum en valverkefnin geta ýmist verið einstaklins-, para- eða hópverkefni. Í gegnum valverkefnin upplifa nemendur valdeflingu við það að fá að taka þátt í ákvörðunum er viðkoma náminu.

Kveikjur eru markvisst notaðar við upphaf verkefna til að vekja áhuga nemenda og nemendum er sýnd umhyggja með stöðugum samtölum. Áhersla er lögð á að nemendur kynni afurðir verkefnavinnu sinnar í lok hvers þema, ýmist fyrir samnemendum sínum eða forsjáraðilum.

Hæfnimiðaða þemanámið er í anda leiðsagnarnáms og leiðsagnarmats. Notast er við hæfniviðmið og viðmið um árangur fyrir, á meðan og í lok verkefnavinnu. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á að merkja inn á skjalið sitt meðan á verkefnavinnu stendur og koma til kennara til að sýna að þeir hafi lokið við alla þætti sem beðið er um. Kennarar fara aldrei yfir verkefni án nemenda. Nemandi veit alltaf hvaða hæfni hann fær fyrir vinnuna og við nýtum samtalið til að fara yfir þætti sem kannski vantar eða bendum á hvar væri hægt að gera betur, meira, fara dýpra. Nemandi hefur alltaf tækifæri til að bæta sig. Í lok þemavinnu er notast við sjálfs- og jafningjamat  þar sem að nemendur gera grein fyrir sinni vinnu og hvernig þeir meta sig ásamt því hvernig þau meta afrakstur annarra hópmeðlima í hópverkefnum.

Hér má sjá dæmi um þemu frá síðasta skólaári:

Dæmi um þema úr 7. bekk: https://docs.google.com/presentation/d/1slI0TIhqE_pfpl-wx2ZCKjLgRcgBPx_-WhXn0kXYh8o/edit#slide=id.g18a5c212b7d_0_2444

Hér má sjá heimasíðu samþætts þemanáms: https://sites.google.com/kopskolar.is/hvsk-themanam/heim

Með þessum náms- og starfsháttum er áhersla lögð á tengsl frelsis, ábyrgðar og innri aga hjá nemendum. Nemendur fá tækifæri til þess að vinna verkefni út frá eigin styrkleikum og það ýtir undir áhugahvöt þeirra. Öll fá tækifæri til að hafa áhrif á nám sitt og eiga gagnrýna samræðu um það. Öll eru meðvituð um hvert er stefnt og fá markvissa endurgjöf frá kennurum á leiðinni.

Nemendur sýna jákvæðara viðhorf gagnvart skólanum og námi sínu. Aukin áhrif og virk þátttaka nemenda hefur jákvæð áhrif á líðan þeirra og samskipti og agavandamálum hefur fækkað. Nemendur segjast vita betur til hvers er ætlast af þeim og að viðmið um árangur séu skýr. Einnig finnst þeim fjölbreytt blöndun nemendahópa vera kostur, þau læri með og kynnist fleirum. Nemendur kunna að meta aukið val um eigið nám og sjálfstæði. Þá finnst þeim spennandi að fylgjast með kynningum samnemenda á verkefnum sem þeir hafa unnið.

Kennarar vinna meira saman sem teymi en áður og upplifa að áhugi nemenda á náminu hafi aukist til muna. Að mati verkefnastjóra hefur áhugi og virkni nemenda aukist mikið. Nemendur eru orðnir mun hæfari í að halda kynningar, vinna saman og tileinka sér nýja hæfni og þekkingu með því að leita sjálfir eftir upplýsingum. Nemendur eru færari í að yfirfæra þekkingu, hugsa út fyrir rammann, nota eigin sköpunargáfu og hugmyndaflug. Einnig hefur ábyrgð nemenda á eigin námi aukist.

Íris Björk Eysteinsdóttir, aðstoðarskólastjóri, er verkefnastjóri verkefnisins en verkefnið er afrakstur hugmyndavinnu innan starfsmannahóps skólans.

Ásdís Ýr Ólafsdóttir:
Ég hef kennt í 15 ár, og m.a. notað Byrjendalæsi og Orð af orði - en einnig fengist við hefðbundna bekkjarkennslu. Mér finnst fjölbreytileiki nemenda njóta sín best í þematengdu námi þarf sem allir hafa misjafna styrkleika.

Unnur Sveinsdóttir
Þemanám hefur verið góð leið til þess að koma til móts við þarfir ólíkra nemenda.  Það reynir gjarnan á samvinnu og nemendur læra fljótt hverjir eru styrkleikar þeirra eru og er gaman að sjá afurð verkefna frá ólíkum nemendum sem standa saman að tilsettu markmiði.  Samtalið milli kennara og nemenda er líka mjög mikilvægur partur af kennslunni og nemendur vita betur hvar þeir standa í náminu.

Sigríður Heiða Guðmundsdóttir:
Mér finnst hópavinnan frábær og það er svo gott að geta samþætt námsgreinar og búið til heildstæð verkefni. Þetta er frábær undirbúningur fyrir frekari hópavinnu í framtíðinni.

Íris Björk Eysteinsdóttir
Það er svo magnað að sjá nemendur kafa af dýpt ofan í verkefnin og gleyma sér í náminu. Nemendur fá tækifæri til að vinna með styrkleika sína og yfirfæra þekkingu yfir í lífið sjálft.

Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir
Kostir hæfnimiðaðs þemanáms er meðal annars að auðveldara að aðlaga námið að hverjum og einum og það er valdeflandi að fá val á milli verkefna og einnig um skil á verkefnum. Ég hef séð nemendur blómstra í samþættu þemanámi.

Heimasíða verkefnisins