Loftunarskýrsla hópur 1 by Helgi Thorarensen

Inngangur
Til að auka loftun og súrefnisbætingu er hægt að nota ýsmar leiðir, en hvort tveggja er mjög mikilvægt fyrir vöxt fiskanna og velferð ásamt afkomu fyrirtækjanna. Því er mikilvægt að mæla virkni t.d. loftara og annars búnaðir sem við notum til súrefnisbætingar.
Aðal munurinn á loftun og súrefnisbætingu er fyrst og fremst í því að við loftun kemst vatn í samband við andrúmsloft. Ef hlutþrýstingur er meiri í andrúmslofti en í vatni flæðir súrefni úr lofti í vatn og ef hlutþrýstingurinn er meiri í vatninu þá flæðir súrefni úr vatni í loftfasa. Þegar við súrefnisbætum vatn er notað hreint súrefni.

Það sem við vildum skoða í þessari tilraun var skilvirkni mismunandi aðferða við loftun eldisvatns.

Aðferðir
Við fengum eitt lítið kar, fylltum það með 111,3 lítrum af sjóvatni (24ppt) og mældum vatnið 8,4°C áður en mælingar hófust. PH, CO2, súrefnis og yfirmettunarmælir voru stilltir áður en þeim var lækkað ofan í karið.

Lofti var dælt í karið með loftpumpu og mælum var ruggað um vatnið, meðan á mínútu fresti var skrifað niður mælingar. Sími var notaður sem skeiðklukka og þetta var í gangi í 20 mínútur.

Stuttu seinna byrjuðu mælingar á ný með súrefni úr tanki í stað lofts, skrifað var niður mælingar á 1 mínútu fresti í 20 mínútur.

Vatnið var mælt í þriðja sinn með CO2 dælt í vatnið í stað súrefnis, skrifað var niður mælingar á 1 mínútu fresti í 20 mínútur.

Dælingu CO2 var hætt og karið látið kyrrt í 17 klukkustundir, það var síðan mælt í seinasta sinn.

Niðurstöður
Mynd 1: hér sést hvernig súrefnisstyrkur eykst með tíma með loftun með andrúmslofti annars vegar og súrefnisbætingu hinsvegar.

Mynd 2:  ef grafið er skoðað frá hægri til vinstri sést hvernig dregur úr súrefnisflutningi á mínútu eftir því sem mismunur í hlutþrýstingi súrefnis milli vatnsins og andrúmsloftsins minnkar

Mynd 3: hér sést hvernig magn CO2 eykst þegar því er bætt í vatnið fyrstu 10 mínúturnar og síðan 30 mínútum seinna sést hvernig magn þess hríðfellur þegar O2 er blásið í vatnið.

Umræður
Líkt og sést á mynd 1 eykst styrkur súrefnis mun hraðar við súrefnisbætingu  en við loftun með andrúmslofti. Þetta er vegna þess að meiri munur er á hlutþrýstningi súrefnis í hreinu súrefni en andrúmslofti.

Þegar súrefnismettunin eykst hægir á súrefnisflutningi í vatnið. þetta er vegna þess að mismunur hlutþrýstings í vatni og lofti verður minni. Mynd 2 sýnir þetta ágætlega en þar sést greinilega þegar grafið er skoðað frá hægri til vinstri hvernig hraði súrefnisflutningsins minnkar við hækkandi súrefnismagn í vatninu.
Töluvert flökt er í  hraða súrefnisflutnings í súrefnisbætingunni eins og sést á mynd 2.  Það útskýrist líklega vegna lélegrar hringrásar í karinu. Best hefði líklega verið að einhver hefði hrært í karinu eða lítil hringrásardæla notuð til að fá einsleitari lausn.
Hitastig ræður mestu um hámarkssúrefnisstyrk, en vatn hefur minni burðargetu fyrir súrefni eftir því sem hiti hækkar, einnig hefur selta þar áhrif.
Ef Mynd 3 er skoðuð sést að CO2 lækkar mun hraðar heldur en súrefni, þetta sést vel á fyrstu 10 mínútunum þegar CO2 er bætt í vatnið lækkar súrefni lítið en síðan hálftíma síðar þegar O2 er bætt í vatnið rýkur CO2 hratt úr vatninu.
Það gæti skýrst meðal annars af því að CO2 hvarfast við vatn á meðan O2 gerir það að minna leyti.  Hærra pH leiðir til þess að jafnvægi CO2 breytist í átt að HCO3.

Heildarniðurstöður sýna að súrefnisbæting er mun skilvirkari til aukningar á styrk súrefnis í eldisvatninu. Hvort súrefnisbæting aftur á móti sé hagkvæm er misjafnt eftir aðstæðum. Í þeim tilfellum þar sem vatn getur runnið undan þyngdarafli í gegn um loftara er hægt að auka súrefnismettun þess án mikils tilkostnaðar. því meiri búnað svo sem dælingu á vatni og súrefniskerfi ásamt flutningskostnaði á súrefni eykst kostnaður á súrefnisbætingunni en jafnframt framleiðslugeta stöðvarinnar.