Hvernig styður menntatækni við vinnuumhverfi kennara?- Ágústráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2025 by Ingvar Sigurgeirsson

Hulda B. Kjærnested Baldursdóttir: Hvernig getur menntatækni stutt við vinnuumhverfi kennara?
Orðið menntatækni er tiltölulega nýtt í íslensku, en nær vel utan um þá þróun sem kennarar upplifa sífellt meira í starfi sínu – að gögn og innsýn í nám nemenda séu að verða sýnilegri, aðgengilegri og nýtist beint í daglegu starfi. Þegar undirrituð kenndi fjórða bekk fyrir nokkrum árum  fann hún hvað það hefði skipt miklu máli að geta séð stöðu nemendahópsins dag frá degi. Sem einn kennari með 28 nemendur, þrátt fyrir fjölbreyttan og fróðleiksfúsan hóp, var áskorunin mikil. Hún upplifði að þó allir kláruðu verkefni, þá voru sumir að fylgja hinum eftir án þess að raunverulegur skilningur væri til staðar, herma til að klára og það hefði skipt sköpum að geta fylgst betur með framvindu hvers og eins í rauntíma.

Menntatæknilausnir eru ekki lengur einungis stór kerfi eins og Ugla, INNA eða InfoMentor, heldur margir litlir snjallir valkostir sem leysa af hendi verkefni sem annars taka dýrmætan tíma kennara. Heimalestur, orðaforði, stærðfræðiformúlur og fleira.

Í þessu erindi  mun Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, sérfræðingur í mennta- og mannauðsmálum hjá Samtökum iðnaðarins  leiða þátttakendur í gegnum hagnýta og hugmyndaríka umræðu um hvernig menntatækni getur raunverulega stutt við vinnuumhverfi kennara.  Rætt verður um notkun tækni í tengslum við lestur, tungumálaörðugleika, stærðfræði og STEAM-nám  með notkun Micro:bit tölva, þróun matsferla, samvinnu og námsgagna.

Eftir erindið gefst þátttakendum færi á að skoða sýningu menntafyrirtækjanna og ræða við forsvarsmenn þeirra.

Hulda B. Kjærnested Baldursdóttir
Hulda Birna hefur fjölbreyttan bakgrunn sem spannar raungreinar, viðskiptafræði, kennslufræði og stjórnunarfræði. Hún hóf nám í læknadeild, lauk ári þar, lauk síðar viðskiptafræðiprófi og kennsluréttindum í raungreinum fyrir bæði grunn- og framhaldsskóla. Hún hefur kennt nánast á  öllum skólastigum; grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla og hefur meira en 25 ára reynslu af kennslu. Hún er með meistaragráðu í stjórnun, hefur tekið virkan þátt í nýsköpunarverkefnum, hröðlum og hakkaþonum þar sem hönnunarhugsun og lausnaleit eru í forgrunni.

Hulda Birna er fjögurra barna móðir og hefur verið virk í skóla-,  æskulýðs- og íþróttastarfi í gegnum árin. Hún brennur fyrir nýjungum í menntun og að styðja við kennara með raunhæfum og einföldum lausnum sem létta álagi og styðja faglega þróun.

Aftur á ráðstefnusíðuna

Menntafyrirtækin sem leggja af mörkum