ÍSLE3BB05 - Lokaverkefni vor22 by MTR

Ronja ræningjadóttir
Guðmunda Rut Björnsdóttir

Griðastaður Ronju ræningjardóttur
Elvar Ingi Kristmundsson

Titill á Verki: Griðastaður Ronju ræningjardóttur

Stærð. A4 teiknað og málað á vatnslitapappír.

Í þessu verkefni ákvað ég að teikna mynd af kastala ræningjaflokksins vegna þess að það að teikna er minn styrkleikur í sköpun og vissi ég að ég myndi njóta mín best að teikna og skapa á blað. Myndin táknar heimili Ronju ræningjadóttur sem hún kallar sitt heimili og griðastað. Myndin er eins og ég tákna lýsinguna sem fram kemur í bókinni,þ.e. splundraðir virkis veggir og samkvæmt lýsingu er kastalinn mjög stór með töluvert af rýmum sem voru eitt sinn notuð en eru í niðurníðslu núna. Í kastalanum er hesthús,ölstaður og stórsteinsalur. Mér finnst kastalinn sem kemur fram á bókarkápunni ekki endurspegla beint fantasíu heim þar sem sá kastali er frekar hversdagslegur að sjá. Svo að ég vildi túlka kastalann á minn hátt. Frumkvæðið í verkinu var að ég leyfði ímyndunaraflinu að ráða för og var ekki með fyrirfram mótaðar hugmyndir um verkið. Sköpun í verkinu sést í smáatriðum kastalans og áræði má sjá í því að ég var óhræddur við að nota alls kyns liti og leyfa mér að prófa ýmsar samsetningar.

Ronja ræningjadóttir
Alda María Traustadóttir

Fann sæmilegan lit á líkamann/dúkkuna og byrjaði á að fitja upp 3 lykkjur. Svo jók ég út nokkuð ört til að fá sæmilega lögun á hausinn. Dúkkan er prjónuð í einu lagi frá höfði að fótum þar sem  lykkjufjölda er skipt í tvennt til að fá fætur og hendur svo prjónaðar eftir á. Dúkkan er fyllt með ullartróði sem ég átti á handraðanum (eins og svo margt annað).

Stærðin frá kolli að tám eru 27 cm, passleg fyrir litlar hendur og hæfileg í dótakassann fyrir börnin.

Þegar dúkkan hafði verið prjónuð og ég var búin að setja háls á hana og prjóna fram hendurnar þá var næsta mál að festa á hana hár. Ronja er í sögunni og í kvikmyndinni með úfinn svartan lubba svo ég reyndi að gera hana þannig, með sítt svart, tjásulegt hár.

Ég prjónaði næst á hana kjól/kyrtil og endaði á að gera belti með tösku til að setja ögn meiri svip á verkið. Andlitið var saumað í síðast og því miður er andlitsgerð langt utan minna marka svo hún er því frekar ófríð angaskinnið.

Gabriel Valtýr Gunnarsson

Verkið Ronja tekur innblástur frá kvikmyndinni. Verkið byrjar á svipuðum stað og kvikmyndinn með vögguvísu sem er svarað með b hlutanum af drykkjusöngnum seinna í myndinni. Þar á eftir er stuttur spuni sem leiðir að endurtekningu byrjunarinnar. Tóntegund verksins er D-dórískur frekar en dúr eða moll til að gefa verkinu þennan skandinavíska blæ ásamt því að vera í 6:8 til að líkjast betur söng verki. Einnig nýtti ég nokkrar hreinar ferundir til að gera verkið aðeins meira Íslenskt.

Mig langar til að gera meira með þessu verki en er ekki viss um að ég hafi tíma til þess. Meðfylgjandi myndband er verkið leikið af píanó, en draumurin er að útsetja það fyrir samspil fleiri hljóðfæra.

Ronja ræningjadóttir
Steinunn Einarsdóttir

Ég gerði málverk upp úr Ronju Ræningjadóttir sem sýnir hana, Birkir, Rassálfana óþolandi og nornir í skóginum eftir að Ronja og Birkir hlaupa á brott og rata í ýmis ævintýri.

Ronja og Birkir
Arnar Fannberg Gunnarsson

Verkið er 21x30cm

Verkið sýnir Ronju, og Birkir sitjandi við varðeld eftir að hafa yfirgefið foreldra sína. Þau sitja þar og spjalla um ævintýrin sem þau hafa upplifað og munu upplifa ásamt ævintýraverunum sem þau hafa kynnst. Ég tel einkunnarorð skólans endurspeglast vel í verkinu, sérstaklega orðið sköpun. Ég hef aldrei verið mikið fyrir neina myndlist, en lærði ágætlega á hana í lista áfanganum sem ég tók þessa önnina.

Ronja í Matthíasarskógi
Sigrún Snædís Magnúsdóttir

Stærðin er 15x15 cm.

Verkið er um Ronju á hennar uppáhalds stað á hennar uppáhalds tíma, um vorið. Hún er að horfa yfir dal í skóginum og dást að fegurðinni sem skóginum fylgir. Hennar skógi. Það varð til þegar höfundur verksins fékk innblástur við lestur bókarinnar. Þar er minnst mikið á skóginn og náttúruna sem þar lifir svo höfundur ákvað að endurskapa tilfinninguna við lesturinn. Einkunnarorð skólans endurspeglast í verkinu því þetta er fyrsta verk höfundar þar sem olíu blýantar voru notaðir á lítinn striga. Þar er strax frumkvæði, sköpun og áræði höfundar þar sem að hann fór út fyrir þægindarammann fyrir þessa sköpun.

Þú ert sko vinur minn
Lísa Phuong Anh Emmudóttir

(strigi 40x50)

Þegar ég las einkunnarorð skólans þá tengdi ég mest við sköpun og vissi ég að mig langaði að mála og skapa eitthvað út frá mér og hvernig ég túlka söguna um Ronju ræningjadóttir. Ég fór strax að hugsa út í hvað ég vildi hafa á striganum. Ég hugsaði mikið um boðskap sögunnar og finnst mér vinátta vera eitt af megin boðsköpum sögunnar. Ég vildi hafa kastalann klofinn í tvennt með eldingar í loftinnu því það lýsir dálítið fantasíu heiminn sem Ronja og Birkir lifa í, þar sem hætta og ævintýra lifa á öllum hornum. Vinátta Ronju og Birkis er mjög sterk í þessari sögu. Þrátt fyrir að þau voru kennt að hata hvort annað þá sáu þau að þau áttu meira sameiginlegt heldur en ekki. Mér finnst það mjög fallegur boðskapur, þótt að við séum mörg ólík með mismunandi skoðanir og lítum öðruvísi út þá getum við samt alltaf frekar einbeitt okkur á hlutina sem við eigum sameiginlegt. Ástæðan fyrir því afhverju ég hef þau haldast í hendur er vegna þess að þau vita ekki hvað mun gerast og hvað framtíðin mun eiga upp á að bjóða, en þau vita það að ef þau standa saman og hjálpa hvort öðru þá geta þau gengið í gegnum allt. Þrátt fyrir að framtíðin sé óljós og að lífið getur stundum gert okkur erfitt þá er mjög gott að eiga góðan og traustan vin sem mun alltaf standa við hlið þína.

Ronja&Birkir
Birta Ósk Hjaltadóttir

Stærð á verkinu er A4 blað

Verkið er gert með vatnsmálingu, vaxlitum og túss notaður í útlínur. Verið á að sýna eldinguna sem splúndraði kastalanum í sundur og sýnir þá ronju einumegin við eldinguna og Birki hinumegin. Ég vildi láta myndina lýsa sögunnni. Á myndinni eru þau í skóginum og sést í kastalann bak við þau. Einnig teiknaði ég einn rassálf á myndina þar sem þeir eru uppáhaldið mitt við söguna.

Ronja - krossgáta
Sigrún Edda Mýrdal Bragadóttir

Sættir
Vala Margrét Hjálmtýsdóttir

Ljóð um Ronju og áræði og frumkvæði.

Ronja ákveðin ung kona var
en mikla ábyrgð bar.
Hún sýndi mikið áræði og frumkvæði
en eftir nokkur ár ræði hún yfir svæði.
Alls ekki sátt
heldur hún í aðra átt.
Hún hleypst á brott með Birki
sem síðar í hennar lífi myndi gegna stóru hlutverki.
Í alls konar ævintýrum þau myndu lenda
en allt gott þarf að enda.
Leiðin liggur alltaf heim
og þangað fylgjum við þeim.
Þar verða sáttir
fólk heldur í sömu áttir.
Verða að einu
í stað fyrir ekki að neinu.

Vala Margrét Hjálmtýsdóttir

Þroskasaga Ronju
Viktor Örn Halldórsson

Verkefnið varð til eftir að ég horfði á Ronju Ræningjadóttur og las bókina. Mér fannst áhugavert hvað hún er að fara í gegnum mikið þroskastökk þarna og stórt tímabil í lífi sínu að mig langaði að taka það saman í mínum eigin orðum og segja frá því. Ég nýtti mér einungis bókina og bíómyndina til þess að búa til glærusýninguna sem ég gerði. Einnig nýtti ég myndir af netinu.

Mér finnst ég vera sýna frumkvæði í því að seigja frá þroskasögunni í mínum eigin orðum og út frá mínu sjónarhorni. Sköpun í því að setja fram glærukynningu og nýta myndir í því og áræði í því að þora setja þetta fram í mínum orðum og segja frá mínu sjónarhorni líkt og frumkvæði.

Ronja - krossgáta
Agnar Fjeldsted

Að lifa í sátt
Samuil Petkov

Ástæðan fyrir því að ég valdi að gera þetta verk er vegna þess að þetta er í raun framhald af sögunni sem ég skilaði í teiknimyndasögu verkefninu fyrir einhverjum vikum síðan í þessum áfanga. Það var mjög skemmtilegt og krefjandi að þurfa að búa til skáldsögu frá grunni og var þetta verkefni eitthvað það eftirminnilegasta.

Núna 200 árum síðar eftir að teiknimyndasagan átti sér stað um drekann Líam og eftir að mikið stríð hefur staðið yfir á milli drekana og geimverurnar þá hittast hér drekinn Myrkvi og önnur geimvera sem á sér ekkert nafn. Myrkvi og geimveran hafa gert allt sem þeir geta til þess að forðast átök en óvart hittast hér.

Þeir komast að því að þeir hafa margt sameiginlegt, til dæmis að þeir hata stríð og vilja lifa í friði. Þá fara þeir einnig að hugsa um afhverju í ósköpunum stríðið átti sér stað til að byrja með og taka þá ákvörðun að þrátt fyrir að forfeður þeirra hafa verið í stríði í mörg ár þýðir það ekki að þeir geta ekki verið vinir. Með því að styrkja sambandið sín á milli þá fara fleiri drekar og geimverur að fylgja þeirra fordæmi.

Helvítisgjáin
Kristjana Vilborg Árnadóttir

Stærð: 40x50 cm

Ég ákvað að prufa að skella í eins og eitt málverk. Ég hef aldrei gert neitt þessu líkt, þ.e.a.s. unnið með önnur efni en bara málningu á striga.
Verkið sýnir Ronju stökkva yfir Helvítisgjánna sem hún átti frumkvæði af þegar hún og Birkir vildu flytja að heiman. Þar sýnir Ronja frumkvæði og áræðni.

Í verkið er notast við Acryl málningu ásamt spartli og lifandi mosa. En mosinn myndar skemmtilegan skugga fyrir ofan sig sem mér finnst gera skemmtilegan karakter á myndina, smá meiri dýpt. Litlu kúlurnar neðst í hægra horninu er vísan í rassálfana.

Þriðja einkunnarorðið felst í verkinu sjálfu, en það er sköpun. Að skapa verk með öðrum hætti en áður hefur verið gert, að vissuleyti líka frumkvæði.

Ronja Ræningjadóttir á alltaf pláss í hjarta mínu. Ein af uppáhalds myndunum mínum sem krakki.

Ostagerð
Ásta Guðný Ragnarsdóttir

Ég var lengi að hugsa hvernig verkefni ég ætti að gera en datt síðan í hug að gera ost frá grunni

Ronja
Sóldís Hind Jakobsdóttir

Stærð á verki: 60x42cm (plakatstærð)

Verkið fjallar um togstreitu Ronju við föður sinn. Hún vill ekki að hann stjórni henni og henni finnst líferni hans ekki til fyrirmyndar. Hún fær hann til að skilja að ekkert varir að eilífu og að hún vilji ekki feta þann veg sem hann hefur valið í lífinu.

Hins vegar fjallar verkið einnig um veru Ronju og Borka í skóginum og þeim óvættum og ævintýraverum sem verða á vegi þeirra.

Verkið varð til á nokkrum dögum en mestur tíminn fór í að semja ljóðið og finna réttu útfærsluna og myndirnar og klippa þær til. Ég er sjálf þarna á tveimur myndum. Fyrst las ég bókina og síðan fór ég strax í að pæla í því hvernig ég ætti að útfæra verkið.

Ég tel að mér hafi tekist ágætlega að túlka tilfinningalega togstreitu Ronju til föður síns í ljóðinu og síðan lífið í skóginum með grádvergum, rassálfum og nornum.

Þannig að ég tel mig hafa verið skapandi, sýnt frumkvæði og verið áræðin.

Ljóð
Bjarki Bjarnason