Mótun skólastefnu fyrir ÖLFUS - hópur 3 by Ingvar Sigurgeirsson

1. Hvert er mat ykkar á stöðu skólamála í sveitarfélaginu?
Við höldum að staðan sé frekar góð.  Fólk er almennt áhugasamt um starfsþróun sem við teljum mjög mikilvægt á okkar tímum – að við mætum breytingum og möguleikum með opnum huga án þess að halda að tæknin leysi öll okkar vandamál. Þróun í allri umgjörð, tæknimálum og slíku er mjög hröð og þar með gefast mörg tækifæri til nýrra nálgana. En við þurfum að gera betur í því að mæta öllum einstaklingum á þeirra forsendum. Við erum að missa suma nemendur frá okkur og þeir einstaklingar fara ekki frá okkur með það sjálfstraust sem nauðsynlegt er áður en lengra er haldið. Lengi býr að fyrstu gerð.

2. Hverjir eru helstu styrkleikar?
Við teljum að okkar styrkleikar liggi í mannauðnum og þeim skilningi sem við mætum hvað varðar tækjakost og bætta aðstöðu. Höfum jafnframt mjög góða stoðþjónustu og sérkennsluúrræði. Einnig er frábært að hafa stuðningsfulltrúa í öllum bekkjum á yngsta og að hluta á miðstigi. Einnig finnum við fyrir miklum velvilja af hendi stjórnenda þegar kemur að nýjum hugmyndum og kennsluháttum. Einnig komast öll börn að í Frístund sem vilja - góð þjónusta við foreldra. Í flestum tilfellum þægilegar hópastærðir í list- og verkgreinum.

3. Hvaða er brýnast að bæta?
Aðstöðu til skapandi vinnu í almennum námsgreinum.  mjög Við höfum mikinn áhuga á slíkri kennslu, trúum staðfastlega á samvinnu hugar, hjarta og handar, að áhugahvötin sé drifkrafturinn að öllum góðum verkum og það hentar mörgum nemendum að vinna á skapandi hátt. Gera þannig námið merkingarbærara. Við sjáum jafnframt fyrir okkur mun meiri samþættingu og teymisvinnu en verið hefur á mið- og elsta stigi. Einnig mætti huga frekar að lýðheilsufræðum – kenna nemendum betur á lífið.  Svo mætti endurskoða einkunnakerfið á mið- og elsta stigi. Draga stórlega úr áherslu á einkunnir frá okkur kennurunum en auka leiðsagnarmat, sjálfsmat og jafningjamat. Okkur vantar líka betri aðstöðu til útikennslu sem mætti vera á nokkrum stöðum. Í fjörunni, Þorláksskógum og við vitann t.a.m. Svo verður geggjað að fá tölvur fyrir alla nemendur skólans. Mættum líka leggja meiri áherslu á samstarf við aðra skóla sem og á alþjóðlegum vettvangi – víkkar sjóndeildarhring bæði kennara og nemenda. Við teljum jafnframt þörf á að auka starfshlutfall náms- og starfsráðgjafa og meiri sálfræðiþjónustu. Ákjósanlegt væri að sem fyrst væri farið í að finna annað úrræði fyrir Frístund - bæði getum við notað rýmið fyrir skapandi skólastarf og betra fyrir börnin að komast út úr skólanum í frístundastarf. Þá finnst okkur mjög brýnt að bæta þjónustu við börn af erlendum uppruna.

4. Hvaða sóknarfæri sjáið þið helst? Hvernig viljið þið þróa starfið? Í skólanum ykkar? Í sveitarfélaginu?
Við þurfum að útvíkka kennslustofuna og tengja betur skólann við okkar helstu stofnanir og atvinnulífið. Nýsköpun ætti að vera kennd á öllum skólastigum og þannig getum við betur tengt saman starf skólanna. T.a.m. gætum við haft stuttar áskoranir (í sama stíl og nýsköpunarhraðall í Borgarholtsskóla) mánaðarlega í hverjum bekk (líka leikskóla) og stærri áskoranir einu sinni til tvisvar á ári. Allir með sömu áskoranir en mismunandi útfærslur eftir aldri. Endurvekja leikritagerð í bekkjum almennt en ekki síst í 10. bekk. Mögulega hægt að koma á samvinnu milli leikfélagsins, hljómlistafélagsins og grunnskólans. Góð og mikil tenging við samfélagið.

5. Hafið þið skoðanir á skólaskipan - og ef svo hverjar?
Mikilvægt með nýjum leikskóla að hann sé rekinn af sveitarfélaginu og þar sé unnið eftir annarri stefnu en Hjallastefnan gerir til að auka val foreldra.
Okkur finnst að hagkvæmni í rekstri varðandi nemendafjölda eigi að ráða því hvenær eigi að byggja annan grunnskóla.

6. Hvernig viljið þið sjá skólastarfið eftir fimm til tíu ár? Hvað viljið þið helst að einkenni það?
Gleði, sjálfstraust, ábyrgð, virðing, samvinna, framsýni og sköpun. Að við höfum þau viðhorf og úrræði að geta mætt öllum nemendum á þeirra forsendum – að hver og einn fái tækifæri til að verða besta útgáfan af sjálfum sér. Að nemendur okkar verði færir í vinnubrögðum og tileinki sér jákvæð viðhorf gagnvart þeim áskorunum sem í skólanum felast. Að við starfsfólkið höldum áfram að fylgja þeirri þróun í starfs- og kennsluháttum sem er hverju sinni. Að áfram verði vel stutt við skólastarfið og starfsfólkið af hálfu stjórnenda og bæjaryfirvalda.

7. Viljið þið breyta framsetningu á skólastefnunni? Uppbyggingu? Efni?
Þar sem kennsluhættir hafa þróast mikið og breyst sl. 5-10 ár þá tel ég að uppbyggingin muni óhjákvæmilega breytast töluvert frá því sem nú er. Við sjáum fyrir okkur að kaflinn skólar, foreldrar og grenndarsamfélag verði töluvert víðtækari í anda nútíma skólastarfs. Sama með aðbúnað – við sjáum fyrir okkur skapandi rými með ýmsum tækjum og tólum fyrir almenna kennslu. Einnig sjáum við fyrir okkur að kennslurýmið verði ekkert síður úti í náttúrunni og innan bæði stofnana og fyrirtækja í sveitarfélaginu sem og á sameiginlegum vettvangi á netinu. Eins finnst okkur mega vera kaflar um framtíðarsýn. Eins finnst okkur mikilvægt að orðalag í stefnunni verði ekki of almennt heldur feli í sér nokkuð skýrar línur og eins mælanleg markmið og hægt er. Útgáfan mætti vera rafræn eða á heimasíðuformi.

Núgildandi skólastefna

Aftur á aðalsíðu