Kynjamunur í auglýsingum - lokaverkefni í KYN - Laufey Ása Eyþórsdóttir og Lena Gunnlaugsdóttir by Laufey Ása Eyþórsdóttir

"The male gaze" auglýsing -2016
Þessi auglýsing minnir á "the male gaze" sem er kenning laura Mulvey um hvernig kvennlíkaminn er hlutgerður og hann sýndur frá karllægu sjónarhorni. Út frá myndunum að dæma má álykta að karlmenn eigi að sækjast í þennan ilm frá Jimmy choo til að öðlast valdið sem maðurinn í auglýsingunni virðist vera með.

Inngangur
Fjölmiðlar eru ein af þeim félagslegu stofnunum sem hafa áhrif á hugsanir okkar og hegðun. Lang flestir nota fjölmiðil af einhverju tagi, það getur verið í gegnum sjónvarp, net, tónlist, tölvuleiki dagblöð eða bækur svo eitthvað sé nefnt. Það hefur því mikið með félagsmótun okkar að gera hvernig hlutirnir koma fram í fjölmiðlum. Mikið af þeim eru fjármagnaðir með auglýsingatekjum og mikið af efni sem kemur í fjölmiðlum er ekki ritstýrt. Sé það ritstýrt skiptir máli að athuga hverjir það eru sem ritstýra. Eru karlar í aðalhlutverki? Eða eru konur jafnt sem karlar að stýra fjölmiðlinum. Einnig er mikilvægt að huga að því hvort að fólk af mismunandi kynþáttum og stéttum sé við stjórn eða hvort þetta sé bara sami hópurinn sem er við völdin. Þetta er allt saman mikilvægt vegna þess að annars er hætta á að við sjáum heiminn aðeins út frá sjónarhorni lítils hóps sem gefur okkur ekki nægilega góða mynd af raunverulegri mynd samfélagsins. Kynjamismun má finna víðsvegar í samfélaginu. Staðalímyndum um hvort kynið fyrir sig er haldið uppi með því sem við kennum börunum frá blautu barnsbeini og einnig því sem þau sjá og heyra í kringum sig. Kynjaveislur nú til dags ganga út á það bleikur táknar stelpu og blár táknar strák, alveg frá getnaði er birtingarmynd kynjanna ákveðin.
Eitt af þeim atriðum
sem halda þessum ákveðnu ímyndum á lofti um hvort kynið fyrir sig er hvernig þau birtast okkur í fjölmiðlum. Birtingarmynd og nærvera kvenna í kvikmyndum og öðrum miðlum getur haft varanleg áhrif á samfélagsímyndina. Bachdel prófið
hefur verið nýtt sem góður mælihvarði á nærveu kvenna í kvikmyndum. Prófið
felst í því að kvikmyndin þarf að standast 3 spurningar sem lagðar eru fyrir
hana. Í fyrsta lagi, eru að minnsta kosti 2 nafngreindar konur í verkinu, í
öðru lagi, talast þessar konur við, og í þriðja lagi, fjallar það samtal um
eitthvað annað en karlmann. Því miður er fjöldinn allur af myndum sem standast ekki prófið. Birtingarmynd kynjanna í kvikmyndum hefur ekki bara áhrif á samfélagið, heldur hefur birtingarmynd kynjanna í auglýsingum einnig mikil áhrif. Kvenpersónur í teiknimyndum skipta einnig máli í
félagsmótun ungra stúlkna en til dæmis má nefna að Öskubuska og Mjallhvít tala lygilega lítið í sínum eigin myndum.
Höfundar þessa Padlet
veggjar eru sammála um að birtingarmynd kvenna í auglýsingum hafi áhrif á hvernig félagsmótuninni er háttað. Hér á veggnum verða teknar fyrir auglýsingar frá árunum 1980 til dagsins í dag og athugað hvort birtingarmynd kynjanna hafi
breyst. Höfundar munu taka 2 auglýsingar frá hverjum áratug og rýna í þær með
kynjafræðilegum aðferðum. Að lokum munu höfundar bera auglýsingarnar saman til
að komast að niðurstöðu.

Lokaorð
Höfundar tóku fyrir auglýsingar frá árinu 1980 til dagsins í dag og báru þær saman til að kanna birtingarmynd kynjanna og kynjamismun innan þeirra. Höfundar vildu kanna hvort byrtingarmyndin hefði eitthvað breyst til dagsins í dag. Höfundar skiptu verkum jafnt á milli sín og tóku báðir  jafnan þátt í sköpun veggjarins. Höfundar settu einnig myndir af barnadótsagulýsingum, prósentutölu um hversu mikið disney prinsessur tala og myndband af konu sem spilar tölvuleiki á netinu og upplifir staðalímynd kyns síns á hverjum degi.
Höfundar eru sammála um að birtingarmynd kynjanna frá áratug til áratugs hefur því miður ekki breyst eins og skildi í takt við nútímasamfélag. Enn í dag eru líkamar kvenna hlutgerðir til að selja vörur, eins og fjallað var um í auglýsingu Carl Junior. Einnig má finna fyrir "The Male Gaze" í auglýsingum nútímans, eins og sást í ilmauglýsingunni frá árinu 2016. Íslensku auglýsingarnar eru kannski ekki eins augljósar og þær erlendu, hvað varðar t.d. nýtingu á líkömum kvenna nútildags, en íslenskar auglýsingar voru engu skárri þegar horft er aftur yfir farinn veg.
Frekari rannsóknir eru nauðsynlegar á hvaða áhrif birtingarmynd kynjanna hefur á unga mótandi heila. Vitað er að bjöguð mynd á þínum eigin hópi hefur áhrif á hvernig þú sérð sjálfan þig, eins og Ella Houtson sannaði í rannsókn sinni um birtingarmynd kvenna með geðræn vandamál og áhrifin sem sú byrtingarmynd sem kom þeim fyrir sjónir um sína eign sjúkdóma hafði á þeirra eigið líf. Niðurstöður Houtson sönnuðu að neikvæð fylgni var á milli brenglaðar byrtingarmyndar kvenna með geðræn vandamál og sjálfsáliti kvennanna sjálfra sem lifa þurftu með sjúkdómum sínum.
Vitað er að að brengluð birtingarmynd hóps innan samfélagsins hefur alvarleg áhrif á samfélagsmyndina. skaðlega karlmennsku má rekja  beint til þeirrar bjöguðu byrtingarmyndar af konum í auglýsingum og kvikmyndum. Ef karlmenn halda að þeir eigi rétt á líkömum kvenna, af því þeir hafa verið hlutgerðir í gegnum áranna skeið, getur það ekki verið skrítið að karlmenn eigi erfitt með að skilja kaldan raunveruleikann, sem er að konur eiga sig sjálfar. Höfundar sáu einnig í könnun sinni að auglýsingar sem sýna nokkurs konar þrif eru iðulegast beint til kvenna. Ef karlmenn voru í auglýsingunni var verið að sýna fram á að varan væri svo auðveld í notunn að jafnvel karlmenn gætu náð tökum á henni, eins og sást í auglýsingu Oven Pride frá árinu 2009. Erfitt verður að berjast gegn kynbundu ofbeldi og skaðlegri karlmennsku ef enn er verið að herja á því að konur séu húsmæður og karlmenn séu tilfinningalaus ofurmenni.
Frekari rannsókn á þessu máli ættu að leiða í ljós hversu mikil áhrif birtingarmynd kynjanna í auglýsingum hefur á samfélagsmyndina. Áhugvert væri ef rannsókn væri gerð hérlendis þar sem, því miður, virðist enn skaðleg karlmennska fyrirfinnast hérlendis. Höfundar eru sammála um mikilvægi frekari rannsókna og skilingi á hvaðan nákvæmlega þessi bjagaða ímynd kynjanna kemur. Til að tryggja að framtíðarkynslóðir takist ekki á við sömu vandamál og okkar kynslóð skiptir það gríðarlega miklu máli.

Carl's junior auglýsing -2014
Í auglýsingu skindibitastaðarins Carl's Junior birtist fyrir sjónir fáklædd kona í múnderíngu eins og kúrekastelpa. Hún gengur meðfram girðingu á kynæsandi hátt og komur hún síðan að poka með skyndibita og beygir sig fram og nælir sér í matinn sem auglýstur er. Konan byrjar svo að borða matinn, en sósa hellist á hendur hennar og brjóst sem hún sleikir af með mikilli ánægju. Einnig leikur hún sér með morgunverðarpylsuna sem auglýst er, með því að sleikja hana og stinga henni upp í muninn á sér á mismunandi vegu.
Öll slagorðin í aulýsingunni virðast snúast að kynlífi og ekki fyrr en konan beygjir sig niður og skyndibitapokkinn birrtist í mynd kemur í ljós hvað er er í raunv verið að auglýsa. Eins og svo oft áður er verið að nota líkama konunar til þess að selja vöru. Öll framkona konunar minnir einna helst á klám og er það mjög miður miðað við hvenær auglýsingin kom úr, það er árið 2014.

Símastefnumóta auglýsing -1995
í auglýsingu símastefnumótafyrirtækis birtist fyrir sjónir maður í mjög tómlegri íbúð þar sem hann virðist vera nýkomin úr sturtu. Hann þurrkar sér um líkamann með handkæði og er það eina sem áhorfendur sjá ekki af manninum eru kynfæri hans. Yfir myndir af manninum að klæða sig heyrist í símtali sem maðurinn á við konu sem hann hefur kynnst í gegnum símstefnumótaþjónustuna sem auglýst er. Þau ákveða að hittast síðar um kvöldið á "æðislegum rómantískum stað".
Í þessari auglýsingu er klárt að maðurinn er hlutgerður. Rödd konunar er nafngreind, en ekki hann, andlit hans er aldrei sýnt og löng skot af rassi hans og magasvæði gefa sterklega í skyn að ef konur notfæra sér þessa þjónustu, eiga þær von á að kynnast manni sem lýti svona út.

Staðalímyndir - hvers vegna viðhaldast þær?
Í grein sinni frá árinu 2000 lýsir Stangor því ferli sem á sér stað innan samfélaga og hvers vegna við flokkum einstaklinga niður eftir útliti, kyni, kynþætti, kynhneigð og jafnvel starfi.
Staðalímyndir eiga rætur að rekja til þess þegar að einstaklingar eru ekki mettnir til þess sem þeir sjáflir hafa fram að færa heldur eru þeir hluti af eitthverjum hópi sem aðrir einstaklingar geta flokkað hann í. Þetta ferli gerist oft ómeðvitað og er nefnt félagsleg flokkun eða social categorization. Stangor tekur fram að þetta ferli er náttúrulegt en sé ekki alslæmt. Eftir að við höfum kynnst einstakling í fyrsta skiptið og flokkað hann samkvæmt félagslegri flokkun, þá eftir kyni, kynþætti o.s.f.v., og síðar eftir það, þegar við höfum kynnst einstaklingnum meira og því meiri tíma sem sem við eyðum með einstaklingunum er líklegt að einstaklingurinn fari út fyrir félagslegu flokkunina. Þegar þetta gerist er ein möguleg útkoman ferli sem heitir undirflokkun eða subtyping. Undirflokkun er þegar einstaklingur sameinar einkenni 2 eða fleiri flokka til að ná yfir mannsekjuna sem einstaklingurinn er að reyna að flokka. Sem dæmi væri hægt að flokka einstakling sem dökka hjúkrunarkonu, lögreglukonu og svo mætti lengi telja. Í öðrum tilfellum nær undirflokkunin ekki að flokka manneskjuna rétt. Grípur þá einstaklingurinn til einstaklingseðlisþróunar eða individuation. Hér kemur persónuleiki manneskjunar sem flokka á til sögunnar, frekar en sú félagsleg flokkun sem við þekkjum.
En hvers vegna að flokka fólk niður yfir höfuð? staðalímyndir og dómur fyrirfram ákveðin um áhveðin hóp innan samfélagsins er lærð hegðun. stundun virðist manneskjan gera slíkt til að upphefja sjálfan sig, þ.e. us vs them hugsun. Að vera partur af hópi og vernda þann hóp skiptir okkur máli. staðalímyndir eru ákveðin ímynd sem sett er á alla meðlimi eins hóps þó að þær séu ekki alltaf sannar. Erfitt er að breyta staðalímynd sem hefur verið áhveðin og erfitt getur verið að rétta hana af þegar margir trúa á hana og gera falskar rannsóknir til að sanna staðalímyndina. Besta leðin til að leiðrétta þetta er að upplýsa fólk um hver raunveruleg ímynd eitthvers hóps. Einnig geta lög og breytingar á samfélagsímyndinni hjálpað eins og kynjahvóti eða kynþáttahvóti (affirmative action)

Nóa kropp auglýsing - 1995
Í auglýsingu fyrir nóa kropp birtist fyrst maður sem spilar á saxófónn. Því næst sést kona í baði með poka af nóa kroppi í annarri hendinni. Þulurinn spyr svo; "hvað er það besta sem þú getur hugsað þér?". Konan í baðinu horfir yfir á manninn enn spilandi á saxófóninn, blikkar svo til myndavélarinnar og segir "gettu". Því næst fær hún sér nóa kropps kúlu og á skjáinn kemur slagorðið; "Nóa kropp, ómótstæðilega gott".
Nokkuð augljóst er að hutgerðing á konunni á sér stað í þessari auglýsingu. Í fyrsta lagi virðist ekki vera neinn tilgangur fyrir því að hún sé í baði. Í öðru lagi er það hvernig hún segir "gettu" sem gefur sterklega ís skyn að það sé ekki súkkulaðið sem hana á að langa í heldur manninn sem spilar á saxófóninn.

Oven Pride auglýsing - 2009
Í auglýsingu Oven Pride frá árinu 2009 er slagorðið "Oven Pride, so easy a man can do it" það sem heyrist yfir mynd af hjónum í eldhúsinu sínu. Konan er ófrísk og réttir harkalega manni sínum hreinsivöruna sem auglýst er. Er maðurinn því næst látinn sinna heimilisstörfunum. Hann notar vöruna sem auglýst er á ofnplötuna og ofngrindina sína og yfir þeirri mynd segir þulan "let Oven Pride do it´s thing, so he can do more". Aftur í lok auglýsingarinnar hljómar slagorðið frá byrjun auglýsingarinnar til að sigla skilaboðunum heim.
Augljóst er að auglýsingin er niðrandi í garð mannsins, sem er leikinn sem nokkuð gáfnaljós. Slagorðið gefur sterklega í skyn að karlar séu ekki nógu gáfaðir til þess að geta sinnt heimilisstörfum eins og makar sínir en þessi vara gerir þeim kleyft að finna alla vega smjörþefinn af heimilsverkunum. Hvernig þulann segir slagorðið; "so easy a man could do it", með mikilli áherslu á "a man", hljómar mjög niðrandi í garðs mannsins. Hér er kannski verið að leika sér með "the second shit" kenninguna eftir Arlie Hochschild þar sem hún talar um erfiði einstaklinga að sinna bæði heimilis og vinnustörfum sínum (konur axla meirihluta þessarar seinni vaktar en karlar). Hins vegar finnst höfundum það óþarfi að gera lítið úr manni konur fyrir að taka minna þátt í "the second shift"

Póstur og Sími auglýsing - 1995
Póstur og Sími gáfu frá sér auglýsingu árið 1995 til að minna þjóðina á að í júní það ár fengju þau 7 stafa símanúmer. Við fyrstu sýn gæti þetta litið út fyrir að vera hin eðlilegasta auglýsing, konur og karlar á öllum aldri og öllum hliðum samfélagsins syngja hátt og snjallt að þau séu tilbúin að fá nýju símanúmerin sín. Höfundum fannst hins vegar einkennilegt að karlar væru sýndir sinna hinum klassísku karlastörfum, þ.e iðnaði og sjávarútvegi, ef svo mætti að orði komast. Konurnar voru á hin bóginn sýndar sinna gróðurhúsaiðnaði, hestamennsku, í sundi, eða að eyða deginum með fjölskyldunni á skíðum. Höfundum fannst einkennilegt að konur voru ekki sýndar sinna neinu starfi sem ekki mætti kalla áhugamál. Jafnvel mætti tala um að auglýsendur væru að fá leikendur til að fallast undir "doing gender" kenninguna þar sem gerður er munur á ungum stelpum og fullorðnum konum innan hennar.

Bjór auglýsing - 1980
Á bilinu 1980-1990 var mikið notast við slagorðið "kynlíf selur" í auglýsingum á alskyns varningi og léku kvenmanslíkamar þar lykilhlutverk.

lýsandi fyrir tímabilið 1980-1990
Á þessu tímabili eru konur farnar að vera meira úti á vinnumarkaðnum en fjölmiðlar gera sitt besta til að halda þeim niðri á jörðinni. Í þessari auglýsingu þar sem verið er að auglýsa kvenmanns ilmvatn er kona sýnd í dragt til að undirstrika að hún geti verið á vinnumarkaðnum, síðan er hún með pönnu í hendinni og loks komin í síðkjól og tilbúin að sinna manninum sínum. Konur fæðast ekki og vita að þær eigi að elska kjóla og vera prúðar og settlegar eða kynþokkafullar en hljóðlátar heldur læra þær það af samfélaginu. “one is not born, but rather becomes a women” Eins og franski femínistinn Simone de Beauvoir orðaði það svo vel.

Kynjamunur í leikfangaauglýsingum - 2016
Kynjamunur í leikfangaauglýsingum er enn mikill. Hér má sjá hvernig stúlkan straujar af natni tilbúin í að veraða húsmóðir á meðan drengurinn horfir athugull í smásjá tilbúinn að læra nýja hluti.

Kynni óskast - 1991
Hér má sjá auglýsingar sem birtust undir heitinu "kynni óskast" hjá íslenska dagblaðinu Tíminn sem var og hét. Í fyrri auglýsingunni er kona að leita að manni, hún setur inn ákveðið aldursbil og að hann þurfi að hafa áhuga á útilífi og ferðalögum. Í seinni auglýsingunni má sjá að þar er karlmaður að óska eftir konu sem þarf að vera vel stæð, barngóð og lífsglöð. Þótt að þessar auglýsingar birtist í dagblaði þá er innihald þeirra ekki ritstjóra blaðsins að kenna heldur eru viðhorf til karla og kvenna rótgróin. Konan óskaði eftir karlmanni og voru einu kröfurnar að hann hefði tvö skemmtileg áhugamál. Hins vegar var annað mál með konuna sem karlmaðurinn óskaði eftir, hún átti að vera vel stæð, barngóð og lífsglöð.

Leikföngin hafa lítið breyst

þurfum meira af þessu...

Rosa góður draumur maður!
Hér má sjá Jónsa í Svörtum fötum leika í auglýsingu fyrir súkkulaðið Draum. Kvenlíkaminn er enn og aftur hlutgerður og íslendingar voru greinilega líka með mottóið "Kynlíf selur" þennan áratuginn líkt og heimurinn.

Sturluð staðreind um Disney prinsessurnar
Rannsakendur hafa komist af því að menn tala mun meira en konur í myndunum um Disney prinsessurnar þrátt fyrir að myndirnar heiti eftir þeim! Þessar myndir byggja á ráðandi karlmennsku og styðjandi kvenleika.

OMG A GIRL! - Myndband men kvenkyns "gamer" sem verður fyrir áreiti nánast daglega! mikilvægt áhorf!
Hér er eitt af mörgum myndböndum í gerð konu sem kallar is "Spontaniouss" á netheimum þar sem hún streymir sér að spila tölvuleik, sem er markaðsettur fyrir karla, á netinu. Hún lendir í barðinu á allskonar mönnum daglega, og alltaf kemur það jafn flatt upp að þeim að hún sé stelpa. (því stelpur hafa ekki gaman af tölvuleikjum). Hér kemur sterklega fram skaðleg karlmennska og nútímaleg birtingarmynd hennar.

Áhugaverð rannsókn
Í rannsókn sinni frá árinu 2018 kannaði Ella Houston áhrif byrtingarmyndar kvenna með geðræn vandamál í auglýsingum á þær konur sem þjást af geðrænum vandamálum. Houston tók viðtöl við 5 konur með mismunandi geðræn vandamál. Konurnar voru allar yfir 18 ára og áttu  heima í Englandi. Hvert viðtal stóð yfir í um klukkustund og studdist rannsakanendi við opnar spurningar til að leyfa upplifunum kvennana að skýna í gegn. Konunum voru sýndar 3 útprenntaðar auglýsingar og voru þær síðan spurða út í hvað  þeim fannst um birtingarmynd kvenna með geðræn vandamál í þeim. Einnig voru þær spurðar út í upplifanir sýnar sem fattlaðar konur í samfélaginu og hvaða áhrif birtingarmynd fattlaðra kvenna í auglýsingum hefðu á þær sjálfar. Niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að konurnar voru nokkuð sammála um að til dæmis væri birtingarmynd þunglyndis algjörlega röng. Það væri ekki eitthvað sem veikir einstaklingar kæmust bara yfir einn daginn. Einnig sögðust konunar finna fyrir pressu frá samfélaginu til að fela stöðu geðheilsu sinnar. Niðurstöður rannsóknarinnar komu til góðra nota fyrir auglýsingafyrirtæki um hvernig ætti í raun og veru að sýna konur með geðheilsuvandamál. Einnig geta niðurstöður rannsóknarinnar aðstoðað auglýsendur í að skilja betur hvernig tilfinningaleg viðbrögð einstaklinga við auglýsingum þeirra koma fyrir og hvað mætti betur fara við beitingu þessara tilfinningaviðbragða.

Heimildarskrá