Honnun namsefnis og stafraen midlun by JoiEika

Kynning Jóhann
Ég heiti Jóhann Þór Eiríksson og er eiginmaður, faðir, starfandi sem leiðbeinandi með umsjónarkennslu og kennaranemi. Ég er búsettur á Akranesi ásamt eiginkonu og þremur dætrum.
Áður en ég hóf nám í kennarafræðum er ég lærðu hárgreiðslumaður og starfaði sem slíkur í rúmlega 10 ár. Ég hef unnið ýmis störf einnig áður en ég fór aftur í nám og stóð valið hjá mér nám á milli þess að fara í kennslu eða ferðamannafræði.
Ég valdi að hefja nám til þess að vera kennari þar sem ég hafði meiri áhuga á því sem var í boði í því námi.
Í fyrst vettvangsnámunum fann ég fljótlega að ég hafði valið rétt og átti vinna með nemendum ákaflega vel við mig.
Ég vinn í Lágafellsskóla sem leiðbeinandi með umsjón  í 7.bekk  þar sem ég kenni flestar greinar. Ég er einnig að kenna dönsku í þremur af fjórum bekkjum. Starfið finnst mér ákaflega skemmtilegt og gefandi. Einfaldlega skemmtilegast vinna sem ég hef unnið þrátt fyrir að margir dagar séu mjög krefjandi.
Ég fékk áhuga á upplýsingatækni nokkuð ungur og hef verið í kringum tölvur frá því að ég var í rúmlega sex ára. Þannig að það var töluvert auðvelt fyrir mig að velja mér faggrein þegar ég kom inn í námið.
Ég tel að næstu skref í upplýsingatækni sé að þróa kennsluaðferðir sem tengjast þeirri tækni sem nemendur nota mikið í dag. Aðferðir sem fá nemendur til þess að nýta snjalltæknina til þess að læra og hjálpa sér við að ná betri árangri í námi.
Í frítíma reyni ég að nýta sem best með fjölskyldu og vinum. Einnig hef ég mjög gaman af því að ferðast og vill ég frekar vera í stórum borgum með iðandi mannlífi.

Kynning Agnes
Ég heiti Agnes Skúladóttir ég er kennaranemi á fyrsta ári í M.Ed. Ég starfa sem leiðbeinandi í umsjónarkennslu í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði meðfram náminu. Ég er með diplómu í Kennslufræðum fyrir iðnmeistara, þar sem hársnyrtiiðn er mitt fag. Ég lærði hársnyrtingu á árunum 2003 - 2007 og starfaði við það til ársins 2014. Ég rak mína eigin hárstofu á Sauðárkróki sem hét Móðins á árunum 2010 - 2014. Eftir að ég kláraði diplómuna í Kennslufræðum fyrir iðnmeistara þá fékk ég mikinn áhuga á kennslu og ákvað að söðla um og breyta til.
Ég hef mikinn áhuga á leiklist og var virkur þátttakandi í Leikfélagi Sauðárkróks á árunum 2002 - 2014, var í stjórn félagsins sem gjaldkeri 2011- 2014. Ég fer mikið í útilegur á sumrin í góðra vina hópi og nýt þess að vera í íslenskri náttúru.
Ég á ekki erfitt með að koma fram og hef gaman af því. Ég hef margoft verið veislustjóri og er það eitt af því skemmtilegasta sem ég geri.

Upplýsinga- og tæknimennt er aðalkjörsviðið mitt í kennaranámi, ég hef einnig verið á íslensku kjörsviði og leiklistar kjörsviði. Upplýsinga- og tæknimennt er fag sem hefur kannski ekki mikla sérstöðu innan skóla en er mjög mikilvægt. Þetta fag er nauðsynlegur hlekkur til þess að færa skólana inn á 21. öldina.  Tæknin er framtíðin og kennarar þurfa að halda í við hraða framþróun í samfélaginu.

Námsefni- Hour of code
Er vefur sem byggist upp á því að fá börn á öllum aldri til þess að forrita. Byrjaði sem átak til þess að fá nemendur í skólum til þess að huga að forritun. Á ákveðnu tímabili safnast skólar þarna inn til þess að láta nemendur forrita í klukkutíma í senn.
Vefurinn býður einnig upp á tilbúin námskeið sem kennarar geta nýtt sér til þess að kenna nemendum forritun.
Það sem helst einkennir vefinn er að reynt er að tengjast áhugamálum barnanna og því sem þau fylgjast með í gegnum aðra miðla. Þarna má finna ýmsar þekktar persónur úr þeirra menningarheim líkt og Elsu og Önnu úr Frozen, Star wars og margt fleira.
Okkur finnst þetta áhugavert vegna þess að þetta getur hjálpað nemendum til þess að læra grunnþættina í forritun á myndrænan og skemmtilegan hátt.