Hugmyndafræði Hjallastefnunar by Sigurbjörg Sigurfinnsdóttir - HI

Hjallastefnan
Leikskóla frömuðurinn Magga Pála er aðalhugmyndasmiður Hjallastefnunnar. Megin hugmyndin er sú að kyn barnsins móti hegðun og þarfir þess í mikilvægum atriðum en einnig óttinn við að vera álitinn stelpulegur/strákaleg ef hefðbundnu mynstri er ekki fylgt. Því er börnunum skipt eftir kyni við ýmsar athafnir, bæði í leikskólum sem byggja á stefnunni og einnig í grunnskólum Hjallastefnunnar. Markmiðið er að efla kynvitund barnanna og auka möguleika á jákvæðri blöndu þegar svo ber undir. Áhugi barna á að leika sér frekar við krakka af sama kyni er kominn fram um þriggja ára aldur og eykst frekar en hitt eftir því sem líður á bernskuna. Hjallastefnan hefur haft áhrif langt út fyrir landsteinana (hjalli, e.d.).

Magga Pála
Hjallastefnan er fædd árið 1981, hugmyndin kemur frá Margréti Pálu Ólafsdóttur, leikskólakennara sem gjörbylti leikskólakerfi þessa tíma. Þetta voru miklar breytingar, ekki aðeins vinnubrögð kennara heldur bjó til algerlega nýtt kerfi. Eins og allar byltingar þurfti hún að skapa nýjan grunn í starfi með börnun og kennslu. Grunnbreytingarnar voru kynjaskipti og algerlega ný handbók fyrir kennara. Magga Pála er byltingarkona. Þegar hún hóf  sýn sitt var hún harðlega gagnrýnd af blöðum, en þökk sé þeim góðu áhrifum sem Hjallstefnan hafði á næstu kynslóð samfélagsins er Magga Pála virtari og metin. Ef segja má að sjónarhornið hafi breyst og fjölskyldurnar vilji koma börnum sínum fyrir á Hjalla. Magga Pála starfar ekki lengur inni á leikskóla en tekur ennþá virkan þátt í upplýsingamiðlun.

Heimildir
Allar heimildir teknar af heimasíðu hjalla
Hjalli.is (e.d.). hjallastefnan. https://www.hjalli.is/

Stefnan
Kynjanámskrá er útfærsla á hugmyndafræði Hjallastefnunar þar sem tryggt er að jafnrétti kynjanna og veitt börnunum frelsi frá staðalmyndum og neikvæðum afleiðingum kynjakerfisins. Námskráin tryggir að börn fái kennslu óháð kyni en markmiðið er að veita börnum tækifæri til að læra og leika á eigin forsendum án takmarkana sem kynjakerfið setur. Kynjanámskráin er nýtt alla skóladaga og er skipt í sex lotur. Loturnar byggja á að þjálfa og bæta einstaklings- og félagsfærni hvers barns.

Stoðirnar þrjár
Jafnrétti, lýðræði og sköpun.

Skólabúningur
Hjallastefnubörn eru auðþekkjanleg af klæðaburðinum. Skólinn er einn af fáum leikskólum hér á landi sem notast við skólabúning og var hjallastefnan frumkvöðull að notkun þeirra á Íslandi. Markmið notkunar á slíkum búningum eru mörg:
Að styrkja liðsheild á leikskólanum og að draga úr samkeppni á milli barnanna.
Að sjá til þess að börnin séu klædd góðum fötum sem slitna síður.
Að börnin klæðist svipuðum fötum óháð kyni og minnka þannig kynjabundin viðhorf til fata þeirra.
Fötin eru ódýr og einföld og eru bæði þægileg fjárhagslega og þegar kemur að almennu utanumhaldi um fatnað barna.

Jafnrétti
Jafnrétti er tryggt með ýmsum leiðum eins og að hvert barn á sitt hólf, sitt pláss á samverumottu og merkta skúffu fyrir verkin sín. Dagskipulagið er alltaf eins svo börnin vita ávallt hvað er næst á dagskrá. Starfsfólk samræmir viðbrögð sín svo öll börnin fá sömu meðferð. Börn og starfsfólk er í skólabúningum svo ekki sé mismunun hjá börnun þrátt fyrir mismunandi fjárhag foreldra. Leikefnið er einfalt og hvetur til samvinnu frekar en keppni. Umhverfið er einfalt og lítið sem ekkert um sjónrænar truflanir. Hvert barn tilheyrir minni hópi sem hafa sinn eigin hópstjóra eða stýru og öll börn fái nægilega athygli og aðstoð á þeim sviðum sem þörf er á. Hópurinn ver svo mestum deginum saman og borðar saman hádegismat með hópstjóranum sínum. Hjallastefnan er með kynjaskipt skólastarf stóran part dags til þess að vinna gegn takmörkunum hefðbundinna kynjahlutverka.

Loturnar
1. Lota - Agi
Fyrsta stig félagsþjálfunar er agalotan, lykilhugtök lotunnar eru virðing, hegðun, kurteisi og framkoma.
2. Lota - Sjálfstæði
Fyrsta stig einstaklingsþjálfunar er sjálfstæðislotan, lykilhugtök eru sjálfstyrking, sjálfstraust, öryggi og tjáning.
3. Lota - Samskipti
Annað stig félagsþjálfunar er samskiptalotan, lykilhugtök eru umburðalyndi, hjálpsemi, víðsýni og samstaða.
4. Lota - Jákvæðni
Annað stig einstaklingsþjálfunar er jákvæðnilotan, lykilhugtök eru ákveðni, hreinskiptni, bjartsýni og gleði.
5. Lota - Vinátta
Þriðja stig félagsþjálfunar er vinátttulotan, lykilhugtök eru félagsskapur, umhyggja, nálægð og kærleikur.
6. Lota - Áræðni
Þriðja stig einstaklingsþjálfunar er áræðnilotan, lykilhugtök eru kjarkur, kraftur, virkni og frumkvæði.

Kynjaskipting
Í hugmyndafræði Hjallstefnunnar er markmiðið að tryggja jafnrétti kynjanna og veita börnunum frelsi frá neikvæðum afleiðingum kynjakerfisins og staðalmyndum. Það er gengið út frá þeirri kenningu að kynin öðlist takmarkaða færni og æfi ekki nógu marga eiginleika vegna hamlandi hugmynda um kynhlutverk og kynjamótunar sem samfélagið ákveður um kynin. Kynjaskiptingin passar að öll börn fá góða þjálfun í mannlegum eiginleikum óháð kyni, markmiðið er að leyfa börnunum að leika og læra á eigin forsendum án þessara kynjatakmarkana.
Kynjanámskrá Hjallastefnunnar skiptist í þjálfun í félagslegri færni og einstaklingslegri færni. Samkvæmt kenningum Hjallastefnunnar þurfa stelpur meiri hvatningar í einstaklingsfærni eins og jákvæðni, kjarki, krafti og frumkvæði, en strákar þurfa meiri hvatningu í félagsfærni eins og að sýna virðingu, vináttu, kærleika og æfa samskipti.
Kynjaskipt starf fer fram stóran hluta af deginum en einnig er dagleg samvera kynjanna þar sem er æfð virðing og raunveruleg samvinna á milli stelpna og stráka á jákvæðan hátt.
Kynjaskiptingin er þeirra leið til að gefa báðum kynjum réttlátan skammt af gæðum skólans. Mikilvægur hluti af jafnréttisuppeldinu er að skólafötin eru eins fyrir bæði kynin, allt leikefni er eins og ekki kynbundin.

Hjallastefnuskólar
Á höfuðborgarsvæðinu starfa fimm Hjallastefnuleikskólar, fjórir leikskólar á Reykjanesinu og sex á landsbyggðinni.
Það eru einungis þrír Hjallastefnu barnaskólar starfandi á öllu landinu og eru þeir í Garðabæ, Hafnarfirði og Reykjavík. Barnaskólarnir eru fyrir börn á aldrinum 5-10 ára. Starf skólanna byggir á hugsjónum Hjallastefunnnar og snýst um persónuþroska hvers barns.
Skólarnir eru staðsettir nálægt náttúru og eru útisvæðin rík af náttúrulegum efnivið þar sem börnin fá að rannsaka efniviðinn með drullumalli, klifri í trjám og grjóti.
Inni í skólunum eru áberandi merkingar á hurðum, línur á gólfum og umferðarörvar. Þetta er gert til að hjálpa öllum að rata um skólann á góðann hátt.
Hjallastefnan er með sinn eiginn matarstaðal og er boðið upp á hollan, heimagerðan mat.
Notast er við hugtakið kjarni í staðinn fyrir deild. Einn kjarni er um 20-24 börn og 3-4 starfsmenn. Fyrsta stofan inni á kjarnanum er vinnustofa, svo er rýminu skipt í nokkur leiksvæði sem nýtast í valleikjum. Það er kubbakrókur, leirkrókur, sullkrókur og föndurkrókur þar sem viss fjöldi kemst að í senn. Notast er við opinn efnivið í stað leikfanga.

Lýðræði
Skýr lína er dregin á milli þess sem við teljum mannréttingi og þess sem uppalendur bera ábyrgð á. Börn eiga rétt á að velja, hvort sem það er hvernig þau klæða sig fyrir útiveru eða hvort þau klári af disknum eða ekki. Þau læra þannig að klæða sig eftir þörfum og þekkja svo hvernær þau eru orðin södd. Börnin þurfa ekki að spyrja um leyfir þegar þau fara á salernið og velja sjálf verkefni helming dags, það er þá á valtíma. Valtími byrjar formelga með valfundi þar sem börnin skiptast á að vera fyrst að velja. Takmarkaður fjöldi getur valið hvert svæði og því fá börnin stundum að upplifa hæfilegt mótlæti þegar fullt er í svæðið sem þau hefðu ætlað að velja, eða það fokið. Kennarar bjóða börnum í stað þess að skipa og gefa alltaf að minnsta kosti tvo valkosti, svo barnið hafi ávallt val. Börnin hafa svo áhrif á umhverfi sitt með því að fá að aðstoða að skipuleggja hópatímana með hópstjóranum sínum. Einnig takast börnin á við raunveruleikatengd verkefni eins og að sækja þvott og brjóta saman. Sópa sandinn ofan í sandkassann og fleira. Sjálfstjórn er lykillinn að góðum félagslegum samskiptum og því er lögð áhersla á jákvæðan aga og hegðum sem byggir undir sjálfstjórn. Kennarar aðstoða börnin við að æfa kjark og að taka réttlætt pláss án þess þó að ganga á mörk annarra.

Sköpun
Hjallastefnan leggur áherslu á frumlega, skapandi og jafnvel óvenjulega námshætti. Á leikskólum stefnunnar er lítið um hefðbundin leikföng. Leikskólarnir notast heldur við óbundið leikefni á við trékubba, púða, dýnur, og ýmis föndurefni. Litir á deildum leikskólanna eru mildir og veggir  eru lítið skreittir og þær myndir sem eru hengdar upp á vegg, eru teknar niður skömmu síðar. Þetta er allt gert til þess að ýta undir sköpunarkraft barnanna og að minnka áreiti. Væntingar eru til starfsfólks um að vinna á skapandi hátt og ýta undir frumkvöðlahugsun hjá börnunum. Unnið er mikið með sögur með börnunum og starfsfólk og börn spinna og segja sínar eigin sögur. Starfsfólk eru ávallt þáttakendur með hópnum og sýna þar gott fordæmi í stað þess að "láta börnin" gera hitt eða þetta. Eins bregst starfsfólk við mistökum á jákvæðan hátt og leyfir börnum að upplifa hæfilegt mótlæti til að byggja upp úthald og bjartsýni.