Útikennsla by

Viðrar vel til útikennslu

Af hverju útikennsla fyrir fjölbreytta nemendahópa?
Styttir langa skóladaga

Tilbreyting

Meiri hreyfing - minni innivera

Þjálfun í einbeitingu, hlustun og samvinnu

Aukin virðing fyrir náttúrunni og umhverfi

Læra í gegnum leik

Uppgötvunarnám og upplifun

Skilningsvitin virkjuð

Agavandamál fátíðari

Sjálfstyrking og félagsfærni

Umhverfismennt

Opnar augu nemenda fyrir fegurð náttúrunnar

Hvetur börn til þess að túlka upplifun sína á skapandi hátt

Hvað er útikennsla ?
Útikennsla felur í sér að skólastarfið er flutt út og notast við nánasta umhverfi og náttúru með leiðsögn kennara á skipulagðan hátt (Gair, 1997).

Útikennsla hefur misjafna þýðingu í huga hvers og eins. Með útikennslu er leitast við að efla þroska nemenda með því að leyfa þeim að taka þátt í skapandi vinnu og athöfnum utandyra, en slíkar kennsluaðferður hafa bæði góð áhrif á andlegan þroska sem og líkamlegan (Bunting, 2006).

Útikennsla snýst um að komast að einhverju sjálfur með reynslunni og virkni, skilja eitthvað betur og muna eftir því. Þannig ná nemendur betra valdi á námsefninu  (Inga Lovísa Andreassen og Auður Pálsdóttir, 2014).

Mikilvægt fyrir kennara
Undirbúningur

Skipulag

Agastjórnun

Sveigjanleiki

Öryggi

Veðurspá

Jákvæðni

Samtök áhugafólks um útinám
Tilgangur samtakanna er að efla útinám á Íslandi og styðja félagsmenn í því verki. Áhersla er lögð á að kynna gildi útináms og auka faglega færni, þekkingu, gæði og umræðu á því sviði.

Námsmat
Mat er mikilvægur þáttur í skólastarfi bæði fyrir kennara og nemendur. Útikennsla fær enga undanþágu frá því og er mikilvægt að kennarar séu búnir að ákveða hvað skal meta og hvernig áður en nemendur hefja viðfangsefnið. Í útikennslu skipta kennarar bekknum oftast nær í hópa við verkefnavinnu og því er mikilvægt að kennarinn meti einstaklingana innan hópsins og hópinn í heild (Lilja M Jónsdóttir, 1996). Frammistöðumat er einnig ákjósanlegur kostur við mat á útkennslu en þá er mikilvægt að kennarar séu búnir að ákveða hvað skal meta, kennarinn skráir svo hjá sér reglulega á meðan á vinnu stendur, t.d virkni, sjálfstæði og samstarf.
Einnig er mikilvægt að nemendur taki ábyrgð á eigin námi og er sjálfsmat hentug leið til þess, þá fá nemendur tækifæri til þess að meta sig sjálfir, hvert þeirra framlag var í hópavinnunni, veikleikar og styrkleikar (Ingvar Sigurgeirsson, 2011)

Útikennsla í íslensku
Ljóðagerð : Nemendur fara út og velja sér staðsetningu til þess að leggjast niður á jörðina. Nemendur loka augunum og hlusta á hljóðin í kringum sig. Eftir að hafa legið í stutta stund skrá nemendur hjá sér það sem þeir heyrðu. Nemendur skrifa einnig hvað þeir sáu. Að lokum taka nemendur orðin sem þeir fundu sem innblástur til þess að semja ljóð.

Málfræði: Nemendur fara út að ganga og kanna umhverfi sitt. Nemendur skrá hjá sér öll lýsingarorð/nafnorð/sagnorð. Nemendur skrá orðin niður í rétta flokka.

Yndislestur: Nemendur velja sér bók og fara með hana út á notalegan stað til þess að lesa á. Sniðugt væri að láta nemendur skrifa stutta ritun um hvað þeir lásu og segja samnemendum frá, einnig hægt að fá þau til þess að segja frá hvort þeim þykir betra eða verra að lesa úti og helstu ástæður þess.

Útikennsla í stærðfræði
Flugdrekahönnun úr notuðum plastpokum.
Nemendur þurfa reglustiku, gatara, skæri, bambus, lím, plastpoka og fleiri efniviði til að búa til flugdrekann. Nemendur búa svo til flugdrekann með hjálp kennarans.
Með þessu verkefni reynir á ýmsa hæfni nemenda, til dæmis stærðfræði, eðlisfræði og sköpun þegar flugdrekinn er hannaður. Þegar út er komið reynir á þolinmæði og samskipti nemenda.

Útikennsla í náttúrufræði
Fuglaskoðun: Nemendur para sig saman og skoða fugla ýmist með sjónauka eða berum augum og skrá hjá sér hegðun fuglanna. Nemendur merkja hjá sér hvaða fugla þeir finna og greina atferli þeirra. Nemendur greina síðan afhverju fuglar hafa mismunandi útlit og skoða þar m.a gogginn og fæturnar og bera saman.

Vorkoman: Nemendur fara vikulega út í apríl og fram í maí/júní að ákveðnu tré. Í hverri viku er tekin mynd af trénu og nemendur skrá hjá sér hvernig tréð og umhverfið lítur út og þær breytingar sem það hefur tekið. Nemendur gróðursetja fræ sem spíra hratt og fá að fylgjast með því vaxa.

Spurningar og vangaveltur frá samnemendum