USF-V4 - Verkefnaáætlun - tímalína by Eydís Eva

Hópmeðlimir
Við byrjuðum á að pota okkur saman í hóp:
Eydís Eva, Daníela Guðlaug, Ásdís Hanna og Sigurbjörg Ósk.

Umfjöllunarefni ákveðið
Þar sem að Daníela og Eydís eru á íþróttakennara - kjörsviði sem og starfa við það núna og Ásdís og Sigurbjörg á leikskóla - kjörsviði sem og starfa við það, þótti okkur vera góð hugmynd að blanda þessu tvennu saman.
Ákveðið var því að taka saman í google.sites síðu með leikjabanka fyrir elstu nemendur í leikskóla og yngstastigi í grunnskóla.

Padlet veggur fyrir utanumhald
Ákveðið var að gera padlet vegg til að halda utan um og skipuleggja vinnuna okkar skref fyrir skref eins og sjá má.

Flokkuðum í undirsíður
Rætt var um hvernig uppsetning síðunnar ætti að vera og hverskonar undirsíður ættu að vera til staðar á henni.
Í fyrstu var hugsunin að hafa síðuna skipta upp eftir aldri en við sáum fljótt að það hefði verið erfiðara að áætla hvaða leikir henta hvaða aldri barna á þessu aldursbili (ca:4-10 ára).
Eftir góða ígrundun ákváðum við því að skipta leikjum frekar upp í inni og úti leiki, þó margir þessara leikja henta vissulega bæði sem inni- og útileikir.
Einnig má finna mismunandi útfærslur af flestum leikjunum  á síðunni og þeir sem nýta sér hana geta valið sjálfir hvaða leikir henta þeirra hóp og þá hvaða útfærsla leikjanna.
Svo má finna þriðju undirsíðuna, sem okkur þótti mikilvægt að hafa með, til að útskýra stuttlega mikilvægi hreyfingar og leiks, ásamt því að útskýra tilgang síðunnar.

Endurgjöf frá samnemendum
Næsta skref í þessu verkefni var að deila hugmynd okkar og verkefnaáætlun á sameiginlegan padlet vegg þar sem samnemendur okkar gætu gefið okkur endurgjöf.

Þar kom m.a. fram að það sé mikill kostur að fá gagnbanka með leikjum fyrir ákveðinn aldur.
Fyrsta ábendingin sem við fengum er sú að síðunni gætum við skipt upp á þann hátt að við gætum verið með sér undirsíðu fyrir elstu nemendur í leikskóla og svo aðra sér undirsíðu fyrir yngstastig í grunnskóla. Með því móti gæti maður gengið beint að efni sem er 100% fyrir þann aldurshóp sem leitast er eftir.
Okkur þykir þetta góð ábending en við teljum að munur á milli hópa sé mjög mikill og eriftt sé að ákveða hvaða leikir henta hverjum hóp sérstaklega.

Önnur ábendingin var sú að hafa video og texta sem útskýrir leikina með hverjum leik fyrir sig. Við erum sammála því að þetta er góð hugmynd og að það væri lang flottast að gera það, en hinsvegar þarf að huga að persónuverndarlögum og sjáum við því ekki fram á að geta gengið eftir þeirri beiðni ásamt því að það tæki afar langan tíma að taka upp myndbönd fyrir alla leikina sem í boði verða á síðunni.
- Hinsvegar væri hægt að vinna rólega að því jafnt og þétt, sem áframhaldandi vinnu að gerð síðunnar, að búa til tölvugerð myndbönd þar sem leikirnir eru sýndir og útskýrðir gróflega með einhverskonar fígúrum eða jafnvel punktum og teikningum og tala inn á þau til að útskýra betur.

Þriðja hugmyndin var sú að það sé "hugmyndabanki" með tillögum um það hvernig hægt sé að nota hvern leik tengt ákveðnum námsgreinum, þá aðallega fyrir grunnskóla. Hægt væri að tengja það við rökhugsun, lausnaleit, fínhreyfiþroska, grófhreyfiþroska, málörvun, talningu, samvinnu, félagsfærni os.frv.
Þessu erum við svo sannarlega sammála og ætlum að skoða hvernig okkur tekst til að samtvinna það inn í verkefnið okkar.

Annars voru margir sem hrósuðu okkur fyrir góða hugmynd og bíða spenntir eftir því að sjá hvernig útkomman verður þegar síðan verður tilbúinn.

Síðan stofnuð
https://sites.google.com/d/11hHl8sNtMl-40dUG62vj5CE_PTgCQljv/p/1F-WpIFlDMHe3TvGgI1TJHiSfZe5eLWM2/edit?fbclid=IwAR1BPXodv-_YoSEG00LEIcm0UnDBjQuOEwT8vFmqusEP_V92yO72no3hnOg

Kynning á höfundum vefsíðunnar
Við settum upp vefsíðuna og settum inn stutta lýsingu á okkur ásamt andlitsmyndum.
Síðan settum við upp örfáa leiki til að byrja með og ákáðum uppsettninguna á síðunni.

Áframhaldið
Við ætlum að halda áfram að funda saman og spjalla um verkefnið á zoom eins og við höfum verið að gera. Þar höfum við tekið saman flestar ákvarðanir. Við ætlum að halda áfram að setja inn alla þá leiki sem við kunnum og vonandi kynna nýja leiki fyrir hvor annari í leiðinni. Við settum okkur markmið að vera með a.m.k. 50 leiki á síðunni fyrir lokaskil á síðunni.

Endurskoðun Verkefnaáætlun:
Við sjáum fyrir okkur að halda áfram að bæta inn á þessu síðu þrátt fyrir að við verðum búnar að skila henni inn til kennaranna. Við eigum eftir að eflast og þroskast í starfi læra nýja leiki sem við setjum vonadi inn á síðuna jafnóðum.  Við ætlum síðan að breiða út boðskapinn og segja fleiri kennurum frá síðunni þannig að hún nýtist sem flestum. Við sjáum líka fyrir okkur að foreldrar geti nýtt sér síðuna til þess að fá hugmyndir af leikjum t.d. fyrir bekkjarkvöld og afmælisveislur.

Viðmið um þekkingu, leikni og hæfni að verkefninu loknu
Að loknu þessu verkefni verðum við búnar að læra marga nýja leiki, ásamt því að læra að búa til vefsíðu sem mun hvoru tveggja nýtast okkur í starfi.

Endurskoðuð verkefnaáætlun:
Við nánari skoðun á lærdómsviðmiðum þessa námskeiðs og hvað við sem nemendur ættum að geta gert við námskeiðslok, teljum við að við getum tengt eftirfarandi lærdómsviðmið við verkefnið okkar:

Geta gert okkur grein fyrir mismunadi kennsluhátttum þar sem upplýsingatækni er nýtt og lagt mat á kosti þeirra og takmarkanir.

Geta beitt nýrri þekkingu á viðfangsefnum námskeiðsins og hugtökum sem tengjast því bæði í umræðum og fræðilegum skrifum.

Þróað með okkur hæfni og sjálfstæð vinnubögð til að afla okkur frekari leikni og þekkingar á sviðum sem viðfangsefni námskeiðsins ná til.

Kennsluhættir eru að breytast og verða fjölbreyttari og með því að setja upp svona leikjabanka erum við að ýta undir það að kennarar nýti sér námsefni af vefsíðu til kennslu. Leikirnir á síðunni eru marvíslegir og geta nýst í hinum ýmsu námsgreinum bæði á leik- og grunnskólastigi.

Með því að setja upp svona leikjavef erum við að auka aðgengi kennara að námsefni sem nýtist í kennslu og gerir hana fjölbreyttari, áhugaverðari og skapandi. Með því að nýta leiki í kennslu fá nemendur tækifæri til þess að vinna saman á jækvæðan hátt og læra félgshæfni, samkennd, samvinnu og efla hreyfiþroska sinn í gegnum leik.

Við teljum að svona verkefnavinna eins og gerð þessarar síðu hafi eflt sjálfstæð vinnubrögð okkar og ný þekking hafi orðið til bæði hvað varðar upplýsingatækni, vefsíðugerð og kennsluhætti.

Áætlað vægi og mat og hvernig verkefninu verður skilað
Verkefninu verður skilað sem heimasíðu. Við áætlum að síðan verði frekar stór og með mikið af leikjum og verði aðgengileg og auðlesin. Við teljum að þrátt fyrir að verkefnið verði búið verði síðan þannig að við munum allar halda áfram að bæta inn á hana eftir að áfanganum lýkur og höldum henni að einhverju leiti áfram og uppfærum leikjabankann næstu árin. Þar sem að það bætist í reynslubankann hjá okkur öllum þegar að við verðum búnar að starfa sem kennarar í nokkur ár.

Einnig er spennandi að hugsa til þess að gera myndskeið með hverjum leik fyrir sig eins og við fengum ábendingu um þannig að það verði ennþá auðveldara að skoða og fá útskýringu á hverjum leik fyrir sig.

Okkar von er að þessi síða verði skemmtileg, aðgengileg og auðveld í notkun þannig að allir leikir séu vel útskýrðir og allir geti nýtt sér hana.

Að lokum
Skiladagsetningin þessa verkefnis nálgast nú óðfluga og vinnum við hörðum höndum í því að fínpússa síðuna með því að lesa vel yfir, laga stafsetningavillur og orðalag þar sem við á.
Við höfum verið í miklum samskiptum okkar á milli í hópavinnunni sem hjálpar gríðarlega og gengur okkur vel að vinna saman sem hópur.

Book - creator:
Upp kom sú hugmynd frekar snemma í ferlinu að okkur langaði að gera leikjabók samhliða heimasíðunni og er staðan núna sú að bók hefur orðið til með hjálp book-creator forritinu. Allir þeir leikir sem finna má á síðu okkar eru komnir í bókina og er verið að leggja lokahönd á hana.

Okkar von og framtíðarsýn er sú að bókin verði aðgengileg á netinu öllum þeim sem vilja og/eða jafnvel henda eintaki í prentun.