Foreldraþing Kóraskóla - Hópur 4 (8. bekkur) by Ingvar Sigurgeirsson

5. Hvað geta foreldrar gert til að styðja við Kóraskóla, nemendahópinn í heild sinni og nám og vellíðan síns barns? Hvernig eflum við samskipti og byggjum upp traust milli skólans (sem stofnunar) og foreldra?
Foreldrar þurfa að vera duglegir að eiga samtal við skólann.

Að foreldrar séu virkir og mæti á þá viðburði sem eru í boði - þar liggur ábyrgð foreldra. Því betur sem foreldrar þekkjast því auðveldara eru samskiptin og að taka á málum.

Hvetja foreldra til að hafa samband sín á milli ef eitthvað kemur upp á.

Upplýsingaflæði frá skólanum til foreldra þarf að vera gott. Upplýsingaflæði þarf að vera í föstum skorðum, t.d. vikupóstar.

Mikilvægt að foreldrar tali alltaf vel um skólann fyrir framan börnin sín.

Að foreldrar taki ekki undir með börnunum sínum þegar þau baktala/kvarta undan kennurum, frekar að finna lausnir.

Treysta fagfólkinu innan dyra sem allt er að gera sitt besta. Árgangarnir stórir og oft erfitt að bregðast við öllu.

Kennarar duglegir að skrá góða vinnusemi og virkni nemenda sem er mjög gott.

Kannski mættu vera fleiri foreldrafundir með stjórnendum - þá geta þeir sem vilja mætt.

Skólastjóri mætti vera sýnilegri, nemendur halda að aðstoðarskólastjórinn sé skólastjóri. Ef foreldrar þekkja ekki skólastjórnendur, t.d. vita ekki hvernig þeir líta út, þá eiga þeir erfiðara með að treysta.

Skólastjórnendur gætu sent foreldrum kynningabréf til að kynna sig. Þó er alveg skiljanlegt að stjórnendur hafa marga bolta á lofti og erfitt að sinna öllu.

4. Starfsfólk skólans hefur áhuga á því að geta betur stjórnað notkun nemenda á símum á skólatíma, t.d. þannig að nemendur hafi síma sína í töskum, skápum eða svokölluðum símahótelum. Hver er ykkar afstaða?
Mismunandi sjónarmið komu fram:

Síminn heima

Skólatíminn sé símalaus, hvort heldur sem er í tímum eða frímínútum.

Síminn í töskunni en ef þau nota hann á skólatíma þá geti kennarinn sagt nemendum að setja hann á hótelið.

Ekki nota síma innan skólans.

Allt í lagi að koma með hann í skólann en sé geymdur á ákveðnum stað í skólanum á skólatíma.

Vil líka sjá reglur um ipadana heim - draga úr því að ipadar komi heim.

Gerist fullt í símtækjunum sem hvorki foreldrar né kennarar sjá.

Þarf að gera frímínútur aðlaðandi, t.d. spil o.fl. útisvæði þarf að vera aðgengilegt þannig að þeir sem vilja geti farið út.

Foreldrar hafa reynslu af því að síminn hjálpi börnunum þeirra ef upp koma erfiðar aðstæður og þau vilja ekki leita til starfsfólks.

Finna leiðir þannig að allir finni sig örugga og geta treyst starfsfólki.

Símar geta líka verið truflandi fyrir foreldra sem fá símtöl á skólatíma

1. Hverjir eru að ykkar dómi helstu styrkleikar skólans?
Frábært starfsfólk

Nýr skóli sem hægt er að móta

Unglingaskóli, mörg sóknarfæri, t.d. fjölbreytni í valgreinum sem gæti styrkt nemendur að vinna út frá sínu áhugasviði

Þemanám - læra mikið á því þó það sé ekki alltaf skemmtilegt

Guðlaug aðstoðarskólastjóri sterk, t.d. tekur á móti krökkunum á morgnana og er á vappinu. Mjög sýnileg

Kúlan - samstarf - mikill styrkleiki og að starfsfólkið sé í hádeginu. Starfsfólkið í Kúlunni hvetjandi.

Minni skóli

Hafa unnið að því og sýnt að þau vilja slípa, gera betur og hlusta.

Allir tilbúnir að bregðast við þegar þarf.

Maturinn - eins og hann er alls staðar, félagslegt. Þau mæta í mat og hafragrauturinn á morgnana er í boði sem er frábært.

Krakkarnir upplifa ekki kaótík - sjá t.d. ekki slagsmál eða neitt slíkt. Þetta á samt ekki við um upplifun allra.

Skólinn býður upp á fræðslu, foreldrar mættu vera duglegir að mæta.

2. Hvað er brýnast að bæta í skólastarfinu? Og hver eru helstu sóknarfærin?
Að tekið sé tillit til einstaklingsmiðunar - hægt að koma til móts við þá sem þurfa aðstoð á einhvern hátt eða aðlögun að sínu umhverfi.

Unglingaskóli - hægt að gera margt spennandi eins og með val o.fl.

Þarf að samræma einkunnagjöf - framúrskarandi er ekki samræmt á milli skóla - það er ósanngjarnt. Hér er sjaldan gefið framúrskarandi. Námsmat of huglægt. Nemendur fá ekki sama mat fyrir sameiginleg verkefni.

Ósamræmi á milli kennara - ekki sömu kröfur í sama verkefni.

Ipad notkun: áhyggjur af réttritun og fingrasetningu. Afleysingakennari kenndi stærðfræði án ipada - jók skilning margra í stærðfræðinni.

Nýr skóli - hægt að gera svo margt.

Upplýsingagjöf til foreldra mæti vera hnitmiðaðri og að foreldrar hafi aðgang að efninu nemenda. Þau hafi val um hvort þau vilji vinna í ipad eða bókum. Foreldrar hafa ekki yfirsýn yfir hvað á að vinna og hvenær - krakkarnir hafa það ekki heldur. Mætti t.d. setja inn á Mentor hvað á að gera og hvenær. Foreldrar myndu vilja hafa meiri yfirsýn. Kennarar þurfa að virða skil á verkefnum, stundum eru verkefni framlengd af því að það eru svo fáir búnir að skila. Þetta kennir krökkunum að það skiptir ekki máli þó þau klári ekki á réttum tíma. Þarf að vinna markvisst með aga, það eru afleiðingar af því sem þú gerir.

Þemanám er geggjað en mættu líka vera fastir tímar í kjarnagreinunum. Þemanám eitt og sér býr nemendur ekki undir það sem koma skal í framhaldsskólanum.

Margir krakkar saman í rými - erfitt fyrir suma nemendur að vera í stórum hóp. Mætti stundum skipta í smærri hópa, erfitt fyrir suma að fá hópfyrirmæli. Bekkjarskiptingar mættu vera meira flæðandi. Sterku krakkarnir eða þeir sem haga sér vel þurfa líka að fá athygli.

Í haust voru bara nýir kennarar sem tóku við hópnum, allt frábærir starfsmenn, en þau voru að byrja að kenna í skipulaginu sem er í skólanum. Krefjandi fyrir þau og þar af leiðandi á nemendur og foreldra.

Þarf að huga betur að nemendum sem eru með sérþarfir, t.d. lesblindugreiningu.

Auka vægi listgreina

Lítið gert úr því að krakkar læri að setja upp verkefni, skrifa vel o.fl. Vantar oft grunninn sem þarf.

Tæknilega er Mentor ekki nógu gott kerfi fyrir foreldra - Classroom er líka óþjált.

Aðstaðan: kalt á efri hæðinni, heitt á neðri hæðinni. Þarf að bæta hljóðvistina, gólfdúkur hræðilegur, vantar sófa. Vantar hlýleika í umhverfið. Aðgengi að íþróttahúsi.

3. Hvað finnst ykkur að ætti að einkenna skólabrag og skólamenningu Kóraskóla?
Virðing, vinsemd og að allir fái að njóta sín eins og þeir eru.

Mikilvægt að allir sýni hvert öðru kærleik

Að öll börn fái að tilheyra - passað upp á að allir tilheyri

Góð vinátta, samskipti og umburðarlyndi

Gleði og gaman

Afleiðingar - ef upp koma agamál þá þarf að taka á þeim af festu og fylgja þeim eftir.

Með öllu þessu kemur hlýleiki og traust.

Nemendur verða að fá að dafna og blómstra á sínum forsendum.

6. Framtíðarsýn og sérstaða Kóraskóla? Fyrir hvað á skólinn helst að standa? Hvernig sjáið þið skólann fyrir ykkur eftir 10 ár (draumaskólinn)? Hver ættu að vera einkunnarorð skólans?
Unglingaskóli þar sem unnin eru fjölbreytt verkefni út frá áhugamálum unglinga. Því sem vel er gert er lyft upp.

Uppbrotsdagar og þemadagar reglulega sem bjóða upp á fjölbreyttar aðferðir.

Allir tilheyra - mannleg samskipti, finna að maður skiptir máli og það er einhver sem ber umhyggju fyrir manni.

Umburðarlyndi

Nemendum kennt að tjá sig og segja sína skoðun

Þrautseigja

Metnaðarfullt nám og metnaðarfullir kennarar sem sækjast í að vilja kenna í skólanum.

Unglingakennarar kenna í unglingaskóla! Kennarar sem sækja um að vinna í þessum skóla verða að vilja vinna í þessu umhverfi; teymiskennslu og samþættingu námsgreina (þemu).

Hópastærðir miða að þörfum árgangsins hverju sinni. Kennarar fá þann stuðning sem þeir þurfa til að veita nemendum þann stuðning sem þarf.

Skólinn hefur forgang að íþróttaaðstöðunni á skólatíma.

Bókasafnið er vel búið og aðgengilegt með starfsmanni.

Stefnan ætti að vera að búa til gott og eftirsóknarvert starfsumhverfi fyrir kennara þá fylgir allt það góða með.

Einkunnarorð:

Virðing - Kærleikur - Gleði - Agi

Heimasíða Kóraskóla