Geðheilsuteymi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) austur by Andrea Björt Ólafsdóttur

Kynning á vinnustað frh.
Þverfaglegt teymi geðlækna, hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga, sjúkraliða og liðveitenda starfa undir nafni geðheilsuteymis (Heilsugæslan, e.d.a). Sem stendur eru níu starfsmenn í teyminu og u.þ.b. 6-7 stöðugildi. Í farvatninu eru breytingar og stefnt er á 12 stöðugildi, þar sem fleiri starfsstéttir bætast við þar á meðal iðjuþjálfi (munnleg heimild, Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, 1. október 2018).

Fyrir 1. mars 2017 hét þjónustan Geðheilsustöð Breiðholts og var staðsett í Álfabakka 16, 109 Reykjavík (Heilsugæslan, 2017).
Geðheilsustöð Breiðholts hlaut nýsköpunarverðlaun í opinberri þjónustu og stjórnsýslu árið 2015 (Stjórnarráð Íslands, 2015).

Í þingsályktun um stefnu og aðgerðaráætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára (þingskjal nr. 1217/2015-2016), lið A.2 segir m.a:  „Að fólk sem glímir við geðröskun hafi aðgang að þverfaglegu teymi heilbrigðis- og félags­þjónustu sem komi að greiningu og meðferð“. Þó að þjónusta Geðheilsuteymis HH austur falli undir heilbrigðisþjónustu, benda þau skjólstæðingum sínum á góð félagsleg úrræði sem þau eiga í samstarfi við. Auk þess að reyna aðstoða einstaklinga sem vilja að öðlast vinnu (munnleg heimild, Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, 1. október 2018).

Kynning á vinnustað
Geðheilsuteymi HH austur er til að þjóna einstaklingum, 18 ára og eldri, með geðröskun sem fyrsta vanda (aðal vandi skjólstæðings), sem búsettir eru í austurhluta höfuðborgarsvæðisins. Til austurhlutans teljast Breiðholt, Árbær, Grafarvogur, Norðlingaholt, Grafarholt og Kjalarnes. Núverandi staðsetning þjónustunnar er í Spönginni 35, 112 Reykjavík (Grafarvogi). Það stendur þó til að flytja sem fyrst því þetta er einungis tímabundin lausn. Æskileg staðsetning er nær Breiðholti vegna þess að flestir skjólstæðingar þjónustunnar eru búsettir þar (munnleg heimild, Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, 1. október 2018).

Nýtt teymi var myndað, Geðheilsuteymi HH vestur, til að þjóna íbúum á mið- og vestursvæði höfuðborgarinnar. (Heilsugæslan, 2018). Auk þess er stefnt á að mynda teymi sem sér um suðurhluta höfuðborgarsvæðisins í framtíðinni, þ.e. Garðabæ, Kópavog og Hafnarfjörð (munnleg heimild, Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, 1. október 2018).
Teymin eiga að vinna á grundvelli þarfagreiningar og eftir hugmyndafræði valdeflingar (Agnes Agnarsdóttir o.fl., 2017).

Þetta er í samræmi við framkvæmd aðgerðar A.2 í þingsályktun um stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára (þingskjal nr. 1217/2015-2016) um að fjölga geðheilsuteymum á höfuðborgarsvæðinu.

Hvar fellur þessi þjónusta inn í lagaumhverfið?
Þjónustan, sem Geðheilsuteymið HH austur veitir, flokkast undir heilbrigðisþjónustu (lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007), og er sérþjónusta sem fellur undir HH (Heilsugæslan, e.d.a). Heilbrigðismál tilheyra verkefnum Velferðaráðuneytisins (Stjórnarráð Íslands, e.d.), ráðuneytið er þ.a.l. yfir HH og  Geðheilsuteyminu.

Mikilvægt er að geyma allar persónuupplýsingar um skjólstæðinga á öruggum stað þar sem óviðkomandi kemst ekki í þær (lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga 90/2018). Auk þess eru allir heilbrigðisstarfsmenn bundnir þagnaskyldu allra skjólstæðinga sinna, jafnvel þó fagmaður láti af störfum eða eftir andlát skjólstæðinga (lög um réttindi sjúklinga nr. 74/1997)

Margir skjólstæðingar geðheilsuteymisins eru félagslega einangraðir. Teymið fer því í heimavitjanir bæði vegna lyfjagjafa en einnig til að aðstoða skjólstæðinga sína við að koma daglegum athöfnum sínum í betra farveg. Þar tekur félagslega kerfið við (lög um félagsþjónustu sveitafélaganna nr. 40/1991).

Hvernig þjónustu er verið að veita?
Ákveðin þjónusta er veitt til þess að uppfylla hlutverk teymis og veita einstaklings miðaða nálgun, m.a.:
Vitjanir - farið heim til fólks

Farið með lyf og sprautur

Meta ástand heimilis

Eiga samræður við skjólstæðing

Fræðsla/námskeið

Hugræn atferlismeðferð (HAM)

Batanámskeið

Samspil hina ólíku þátta á heilsu

Nálastungur í eyru

The National Acupuncture Detoxification Association protocol (NADA)

Á að minnka kortisól magn í blóði. Kortisól er stress hormón líkamans.

Dáleiðsla og kvarðar til þess að greina skjólstæðingana, eru einnig notað. Teymið byggir einnig vinnu sína á líkani sem kallast Lífseggið, (munnleg heimild, Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, 1. október 2018), sem er hægt að sjá hér síðar.

Hver er tilgangur þjónustunnar?
Tilgangurinn er að veita meðferð og stuðning fyrir þá sem þurfa sérhæfða meðferð í styttri eða lengri tíma. Hún er ætluð fyrir þá sem hafa glímt við langtíma flókin eða fjölþætt vandamál. Einnig á teymið að veita ráðgjöf til heilsugæslustöðva um geðsjúkdóma og meðhöndlun þeirra ásamt upplýsingum um forgangsröðun eftir þörfum (Agnes Agnarsdóttir o.fl., 2017).

Geðheilsuteymið á að vinna eftir batahugmyndafræðinni og klíniskum leiðbeiningum (sjá umfjöllun síðar). Þau veita meðferð til að draga úr vanlíðan og þjáningu sem tengjast geðrænum veikindum og stuðla að góðu flæði skjólstæðings milli teymisins og annarra heilbrigðisstofnanna. Teymið þarf að vera upplýst um úrræði í nágrenni skjólstæðings sem hann getur nýtt sér og vera í samstarfi við aðrar stofnanir eða félagasamtök. Þau veita ráðgjöf fyrir aðstandendur og aðstoða þau við að finna önnur viðeigandi úrræði (Agnes Agnarsdóttir o.fl., 2017).

Samantekt á hvernig samræmið er á milli lagatexta og þeirrar þjónustu sem verið er að veita - auk stefnu stjórnvalda varðandi þjónustuna
Breytingar hafa orðið í samræmi við þingsályktun um stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára (þingskjal nr. 1217/2015-2016). Samkvæmt ályktuninni hafa stjórnvöld tvö ár í viðbót til að ná að uppfylla öll markmiðin sem sett voru fram. Eitt af aðalmarkmiðum áætlunar er að þjónusta við einstaklinga með geðraskanir sé samþætt og samfelld. Þá er átt við að þessi hópur hafi góðan aðgang að þverfaglegu teymi heilbrigðis- og félagsþjónustu sem komi að greiningu og meðferð. Þá er stefnan að fjölga geðheilsuteymum svo þau megi finna í öllum landshlutum. Geðheilsuteymi HH tilheyra einungis höfuðborgarsvæðinu.

Í nýjum lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir (nr. 38/2018), sem tóku gildi 1. október 2018, er betur skilgreint að fólk með geðræn vandamál falla þar undir. Geðræn skerðing getur hindrað fólk til fullrar þátttöku, m.a. hefur Geðteyminu ekki tekist að ráða skjólstæðinga sína til vinnu vegna geðröskunar eða sögu um geðröskun (munnleg heimild, Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, 3. október 2018). Auk þess ef manneskja með geðröskun er í hjólastól getur hún ekki fengið sömu þjónustu vegna aðgengismála. Þetta er ekki í samræmi við áðurnefnd lög, né samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (9. grein/2008).

Hver á rétt á slíkri þjónustu?
Meirihluti fólks með geðsjúkdóma á rétt á þjónustunni (Agnes Agnarsdóttir o.fl., 2017). Samt sem áður fylgir þjónustan ekki aðgerðaráætlun (þingskjal nr. 1217/2015-2016 Þingsályktun um stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára) um að veita börnum og ungmennum sérstaklega þjónustu. Eins og kom fram í kynningu á vinnustað er þjónustan einungis í boði fyrir 18 ára og eldri.

Geðþjónusta skiptist í  þrjú stig:

1. stig: Heilsugæsla og stofur út í bæ

2. stig: Geðheilsuteymið

3. stig: Spítalinn (dýrasta úrræðið)

Teymið vinnur með einstaklingum sem eru annað hvort að veikjast í fyrsta skiptið eða þá sem eru með langvinnan vanda. Einstaklingarnir þurfa að vera búin að að sækja 1. stigs úrræði áður en komið er til Geðheilsuteymisins (munnleg heimild, Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, 1.október 2018).

Hvernig er aðgengi notenda að slíkri þjónustu?
Umsóknarferli
Á heimasíðu Geðheilsuteymis HH austur er hægt að finna umsóknareyðublöð. Tekið er við umsóknum frá  starfsfólki heilbrigðis- og velferðarþjónustunnar (Heilsugæsla, e.d.b). Læknir þarf ekki að skrifa tilvísun, en nauðsynlegt er að útskýra hver vandi einstaklingsins er. Eftir að umsókn hefur verið móttekin er einstaklingur boðaður í matsviðtal. í þessu viðtali er metið hvort þjónusta verði veitt einstaklingum. Í matsviðtalinu eru fimm þættir ræddir, þ.e. hver staðan er í dag, geðræn einkenni, lyf, hvort það séu aðrir meðferðaraðilar, og hvað geðteymið getur gert fyrir einstaklinginn (munnleg heimild, Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, 3. október 2018).

Biðlistar
U.þ.b. 20 - 30 einstaklingar eru á biðlista að svo stöddu (október 2018) og er nokkurra mánaða bið, vegna vöntunar á starfskröftum. Ekki er hægt að taka inn nýja skjólstæðinga fyrr en búið er að útskrifa einstakling sem þarf ekki lengur á þjónustunni að halda (munnleg heimild, Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, 3. október 2018).

Efnislegt umhverfi sem hefur áhrif á aðgengi félagslegra úrræða
Aðgengi einstaklinga í hjólastól er ekki gott hjá Vin og Hlutverkasetrinu. Engin lyfta er hjá Vin og lyftan hjá Hlutverkasetrinu er biluð. Kostnaður við að gera við lyftuna og rekstur á henni er of mikill.
Þetta er ekki í samræmi við lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir (nr. 38/2018), sbr. 3. grein um rétt til þjónustu.

Hvernig er eftirliti með þjónustunni hagað?
Landlæknir fer með gæða eftirlit heilbrigðisþjónustu. Hann fylgist með hvort heilbrigðisstofnanir uppfyllir faglegar kröfur eða önnur skilyrði í heilbrigðislöggjöf. Ef hann telur að stofnanir uppfylli ekki þau skilyrði sem sett eru beinir hann tilmælum um úrbætur til rekstraraðila. Ef rekstraraðili bregst ekki við tilmælum landlæknis þarf hann að að skýra ráðherra frá málinu og koma með tillögur um hvað skal gera. Ráðherra getur þá tekið ákvörðun um að stöðva reksturinn tímabundið, þar til að kröfurnar hafa verið uppfylltar, eða stöðvar reksturinn að fullu (lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007).
Auk þess er yfirstjórn heilsugæslunnar sem sér um eftirlit þjónustunnar (munnleg heimild, Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, 3. október 2018).

Nemandi: Andrea Björt Ólafsdóttir
Mynd 2

Nemandi: Guðrún Agla Gunnarsdóttir
Mynd 3

Nemandi: Helga Dröfn Jónsdóttir
Mynd 4

Kennari: Sigrún Kristín Jónasdóttir (Kittý)
Mynd 1

Dæmi um úrræði
Geðheilsuteymið á í samstarfi við mörg mismunandi úrræði og ber þeim að vinna að því að halda góðu flæði skjólstæðinga milli hinna mismunandi heilbrigðisstofnana (Agnes Agnarsdóttir o.fl., 2017).  Meðal úrræða eru Dvöl, Klúbburinn Geysir, Grófin, Hugarafl, Hlutverkasetur og Vin. Sem dæmi má nefna Hlutverkasetrið og Vin sem tvö ólík úrræði fyrir þennan hóp. Báðir staðir eru opnir öllum og bjóða upp á mörg og fjölbreytt námskeið, þeir vinna að því að auka virkni einstaklingsins og rjúfa félagslega einangrun. Fólki er frjálst að koma daglega, sækja ákveðin námskeið eða viðburði, koma sjaldan eða hvað sem hentar hverjum einstaklingi (munnleg heimild, Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, 1.október 2018).

Mynd af umsóknarferlinu
Mynd 6
(Agnes Agnarsdóttir o.fl., 2017)

Myndaskrá
Mynd 1: Sigrún Kristín Jónasdóttir (moodle, 2. október 2018).
Mynd 2: Andrea Björt Ólafsdóttir. 2018. Úr einkasafni.
Mynd 3: Guðrún Agla Gunnarsdóttir. 2018. Úr einkasafni.
Mynd 4: Helga Dröfn Jónasdóttir. 2018. Úr einkasafni.
Mynd 5: Lífseggið. 2009. Úr einkasafni.
Mynd 6: Mynd af umsóknarferlinu. 2017. Sótt af https://www.heilsugaeslan.is/library/Files/Um-Heilsugaesluna/Ge%C3%B0heilsuteymi%20HH%20-%20Heild.pdf

Hlutverk teymis
Samkvæmt Hauki Inga Jónsyni og Helga Þór Ingasyni, er teymi hópur af einstaklingum sem sameina krafta sína til þess að leysa sameiginleg verkefni og ná ákveðnum markmiðum (munnleg heimild, vitnað í Hervöru Ölmu Árnadóttir, vor 2018).

Geðheilsuteymið hefur margþætt hlutverk, m.a. má nefna:

Stuðningur og eftirfylgni t.d. vegna sjúkdóms

Stuðningur og fræðsla til þess að einstaklingar nái tökum á eigin aðstæðum og líðan

Aðstoða einstaklinga við að tengjast félagslegum úrræðum

Hvatning  og stuðningur til að auka félagslega virkni

Skjólstæðingur og fjölskylda hans fá fræðslu og stuðning

Hvatning og stuðningur til þess að sinna persónulegum þáttum

Þjónustuþörf, búseta, andlegt og líkamlegt ástand metið

Lyfjagjafir/lyfjainntekt

Fá ráðleggingar um hvar hægt er að fá frekari stuðning og fræðslu

(munnleg heimild, Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, 1. október 2018).

Heimildarskrá

Hlutverk mismunandi starfsstétta á Geðheilsuteymi HH Austur
Sálfræðingurinn er með meðferðarviðtöl og kemur einnig inn í matsviðtölin, kennslu og fleira sem til fellur hverju sinni.

Hjúkrunarfræðingarnir eru með lyfjagjafir og eftirlit með lyfjum, heilsufarseftirlit/fræðslu, kennslu, aðstoð með virkni og fræðslu. Nokkrir hjúkrunarfræðinganna eru einnig með viðbótarmenntun t.d í áfallaúrvinnslu og slökun, NADA o.s.frv. Nýta það í sértæka meðferðavinnu. Þeir koma líka inn í matsviðtölin eins og allar starfsstéttirnar. Hjúkrunarfræðingar eru bæði í heimavitjunum og í viðtölum. Einnig í þróunarvinnu. Einn hjúkrunarfræðingurinn er auk þess lýðheilsufræðingur sem hún nýtir í viðtölunum.

Sjúkraliðinn er með heimavitjanir, heilsufarseftirlit og aðstoð, lyfjagjafir, aðstoð með virkni og fleira. Kemur einnig inn í matsviðtölin og kennslu. Sama gildir um þroskaþjálfann sem er einnig með sérþekkingu á taugaröskunum.

Geðlæknirinn sér um viðtöl, greiningar, kennslu/fræðslu og lyf. Kemur einnig að matsviðtölum og þróun.

Liðveislan sér um félagslega liðveislu.

Allar starfsstéttirnar koma einnig að þróun teymisins og kennslu. Einnig að sjá um samskipti við hinar ýmsu stofnanir og úrræði.

(Tölvupóstur, Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, 5. október 2018)

Þar sem þetta er þverfaglegt teymi geta hlutverk starfstétta skarast milli teymismeðlima. Þrátt fyrir að starfsfólkið sé sérhæft í ákveðnum sviðum (munnleg heimild, Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, 5.október 2018).

Lífseggið
Búið til af Guðrúnu Gyðu Ölvisdóttur, sem er geðhjúkrunarfræðingur í teyminu.

Mynd 5

Batahugmyndafræðin (recovery model) & klínískar leiðbeiningar
Batahugmyndafræðin er  viðurkennd þekking og mikið notuð af geðheilsuteyminu og byggist upp á þeirri reynslu sem fólk með geðrænar áskoranir hefur notað til að lifa ánægjulegu og fullnægjandi lífi. . Þá er áfallasagan skoðuð en ekki verið að skoða hvað er að fólki. Batahugmyndafræðin gengur út á að vinna með tilfinningar og aðstæður og þar er þeim mætt á jafningjagrundvelli því virðing og viðurkenning er höfð að leiðarljósi (munnleg heimild, Sigríður Hrönn 1.október 2018).

Klínískar leiðbeiningar eru leiðbeiningar fyrir heilbrigðisstarfsfólk og almenning um kerfisbundið verklag sem miðar að því að veita bestu mögulegu þjónustu sem hægt er að bjóða upp á án áhættu og of mikils tilkostnaðar
(Embætti Landlæknis, 2017).

Dæmi um úrræði frh.
Hlutverkasetrið er opin virknimiðstöð. Það er styrkt af hinum ýmsu stofnunum, einstaklingum sem og Reykjavíkurborg. Þangað eru allir velkomnir sem vilja auka lífsgæði sín, komast út úr mikilli einangrun eða þiggja aðstoð við atvinnutengda endurhæfingu (Hlutverkasetrið, e.d.b). Þar eru mörg fjölbreytt námskeið í boði svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þar starfa iðjuþjálfar, listamenn og fólk með mismunandi lífsreynslu og þekkingu (Hlutverkasetrið, e.d.a). Núverandi og fyrrverandi notendur hafa gjarnan sett upp kynningar, fræðslustundir eða námskeið í því sem þeir kunna, eru góðir í eða hafa starfað við. (munnleg heimild, Guðrún Helga, 1. október 2018).

Vin er einnig úrræði sem Geðheilsuteymið vísar á. Það er rekið af Rauða krossinum og Reykjavíkurborg. Hópurinn sem sækir Vin er með frekar háan meðalaldur og hefur glímt við alvarlegar geðraskanir/geðfötlun lengi. Gestir Vinjar eru margir mjög félagslega einangraðir og markmið starfsins er því að minnka þessa einangrun, fækka endurinnlögnum á geðdeildir og minnka þörfina fyrir opinbera þjónustu t.d. með því að auka stuðning við sjálfstæða búsetu (munnleg heimild, Halldóra Pálsdóttir, 2. október 2018).