Leikjatölvur og leikir og áhrif þeirra á fólk. by Ágúst Már Steinþórsson

Saga leikjatölvunnar
Tölvuleikir í dag eru ótrúlegir, og ef maður skoðar tölvuleiki frá því fyrir jafnvel bara nokkrum árum er ótrúlegt að sjá hversu miklar framfarir hafa farið fram í tölvuleikjagerð og auðvítað í tölvum almennt.

Fyrsta leikjatalvan sem að kom á markaðinn var Magnavox Odyssey árið 1972, en leikirnir í henni var margt ólíkt leikjum í dag, í leikjunum var ekkert hljóð og myndgæðin afar léleg, upplausnin mjög gróf og myndin svarthvít.
https://www.visindavefur.is/svar.php?id=6082

Playstation 2
Árið 2000 kom playstation 2 talvan út frá fyrirtækinu Sony og sló gjörsamlega í gegn, hún seldist upp í búðum og var vinsælasta leikjatalvan á þessum tíma, mætti segja að talvan hafi verið algjör bylting.
Talvan var fyrsta leikjatalvan sem var hægt að setja disk í, sem þýddi betri gæði í leikjunum og einnig hægt að spila myndir í tölvunni á dvd formi, svo var hreinlega ódýrara að kaupa playstation leikjatölvuna frekar en dvd-spilara, talvan seldist í 150 milljónum eintaka sem voru gífurlega góðar tölur.
https://www.youtube.com/watch?v=Hvcps5dFzfc
Árið 2000 markaði ákveðna breytingu í tölvuleikjum og leikjatölvum, playstation 2 bjó til mikla samkeppni fyrir aðra tækjarisa og einnig settu þeir pressu á sjálfan sig í að búa til leiki og bæta tölvuna og búa til betri tölvur.

Fleiri og betri leikir streyma inn
Eftir árið 2000 þegar playstation kom út varð mikil aukning á leikjum og betri og betri leikir komu á markaðinn, stórfyrirtæki fóru í keppnir að búa til leiki en Sony tróndi á toppnum enn þó.

Atvinnu tölvuleikjaspilarar
Dæmi er um marga tölvuleikjaspilara sem spila tölvuleiki sem atvinnu, þeir nota oftast vefsíður eins og youtube eða Twitch til að setja vídeó inn á þær eða spila í beinni fyrir áhorfendur.

Þá græða þeir bæði pening fyrir áhorfin, í gegnum áskriftir frá aðdáendum og svo græða þeir einnig þegar fólk gefur pening til þeirra.
Margir halda að það sé auðvelt að verða atvinnu leikjaspilari og eru margir sem reyna það en það ná ekki allir að gera það sem atvinnu.

Tyler Blewins

Tyler Blewins eða betur þekktur undir spilara nafninu Ninja, er einn sá vinsælasti í dag.
Tyler er 26 ára og byrjaði að spila sem atvinnumaður í leiknum Halo og öðlaðist nokkra aðdáendur þar, en aðallega komu aðdáendurnir þegar hann byrjaði að spila vinsæla leikinn Fortnite.

Í dag er Tyler með 11 milljónir áskrifta á youtube og er talið að launainnkoma hans á hverjum mánuði sé í kringum 1,5 milljón dollara sem að eru u.þ.b 156 milljónir íslenskra króna á mánuði!
https://www.youtube.com/watch?reload=9&v=URxXt4vJw1Y
https://en.wikipedia.org/wiki/Ninja_(streamer)

Pressa frá leikjum?
Árið 2000 kom leikurinn The sims út, The sims er leikur þar sem þú býrð til þinn eiginn karakter og stjórnar honum, þú getur fengið þér hús, konu, börn, þessi leikur er í raun bara hermir fyrir líf í raunveruleika.
https://en.wikipedia.org/wiki/The_Sims Ég tel að þarna megi rekja byrjun á pressuna hvernig líf á að vera hjá fólki, fólk talar um instagram og að fólk upplifi pressu til að vera fullkomið frá módelum og photoshoppuðum myndum af instagram og ég sé fyrir mér að fólk hafi upplifað líf sitt leiðinlegt og misheppnað ef að það spilaði leikinn mikið og í rauninni langaði meira að vera í leiknum að lifa lífi karaktersins frekar en sínu, þetta hafði áhrif á menningu fólks og gerir enn í dag, við lifum eftir kröfum og erum sjaldnast sátt með okkur til fulls.
Í dag er þessi slæma  hreyfing þróaðri með betri interneti, samfélagsmiðlum og auðveldari dreifingu á myndum og rosalega photoshoppuðum myndum.

Vaxandi vandamál?
Tölvuleikjatölvur eru nánast á öllum heimilum, og tölvufíkn verður stöðugt meira vandamál, krakkar byrja oft að sýna einkenni tölvufíknar mjög ung og þetta er vaxandi vandamál.

Tölvuleikir eru þó ekki alslæmir þeir mjög góð skemmtun og einnig eru til leikir sem eru fræðandi og margir leikir þjálfa heilann t.d í viðbrögðum, leysa verkefni, stærðfræði og ákvarðanatökum. Í hófi eru þeir virkilega góð skemmtun en um leið og maður fer að eyða of miklum tíma í að spila þá gæti það haft slæm áhrif á líf manns.

Þróun mannsins eftir tölvuleikja sprenginguna.
Tölvuleikir urðu meira og meira partur af daglegu lífi hjá fólki og börn gjörsamlega elskuðu að fara í tölvuna, foreldrar gátu líka sett börnin sín framan við skjáinn og slakað síðan bara á frammi og haft litlar áhyggjur því að barnið skemmti sér konunglega við að spila tölvuleiki.

Tölvuleikir í dag eru ennþá að verða betri og betri og tölvurnar í takt við það, tölvuleikirnir eru komnir í síma og fólk getur þá spilað í rauninni hvar sem er, hvenær sem er.

Fyritækin sem búa til tölvuleikina og tölvurnar græða gríðarlega mikinn pening og í dag eru dæmi um tölvuleiki sem að eru fríir að spila en maður getur keypt sér eitthvað í leiknum sjálfum, þó að þessir leikir séu fríir þá græða þeir einnig fúlgur fjár vegna þessara hluta sem fólk er að kaupa sér í leiknum, gott dæmi um þetta er leikurinn Fortnite sem að er einn vinsælasti leikurinn í dag, með sirka 45 milljónir niðurhala á leiknum.

https://www.pcgamesn.com/fortnite/fortnite-vs-pubg-map-players-graphics-gameplay-weapons-review#playercount

Áhrif á menningu mannsins
Áhrif leikjatölvunnar og leikjanna hafa haft mikil áhrif á menningu okkar manna, bæði góð og slæm.
Þau góðu eru að tölvuleikir eru góð skemmtun og geta þjálfað mann í ákveðnum hlutum og auðvitað eru til fræðandi leikir, þar sem maður á að leysa ráðgátur eða leysa stærðfræðidæmi og listinn heldur áfram.
En neikvæðu áhrifin eru einnig mörg og þau eru aðallega tengd samfélaginu eða andlegum erfiðum.
Leikir geta t.d leitt til:
Slæmra áhrifa á sjónina.
Ofbeldis.
Misnotkun á áfengi og dópi..
Kynhaturs.
Kvíða.
Tölvufíknar og of mikils spilatíma.
Skorti á hreyfingu sem leiðir svo til líkamlegra vandræða.
Kostnaður og fólk eyðir of miklum pening í leikinn. sinn og endar gjaldþrota.
Aðskilnaður frá veruleikanum.
Sálfræðilegir þættir.
Einangrun frá samfélaginu.
https://prezi.com/ats4jwi0p7jm/impact-of-computer-games-on-society-and-individuals/

Ég er sekur
Ég spila sjálfur mikið af tölvuleikjum en ég tel það ekki hafa slæm áhrif á mig, ég reyni að halda spilun minni í hófi og set alltaf mikilvægari verkefni í fyrsta sætið, eða oftast allaveganna.
Ég tel að ef ég mætti ráða hvort leikjatölvur og leikir væru til í dag myndi ég allan daginn segja já við að hafa þetta í okkar heimi, þó að r0kin bendi kannski til þess að gallarnir séu fleiri þá getur þetta verið svo skemmtileg afþreying og fólk þarf bara að læra að halda þessu í hófi rétt eins og drykkju.