Bookmarks by

C vítamín
Helstu hlutverk: C-vítamín er ómissandi þáttur í byggingu kollagens. C-vítamín eykur nýtingu hermfrís járns í líkamanum og getur með því stuðlað að bættum járnbúskap. C-vítamín tekur þátt í myndun karnitíns. C-vítamín er einnig nauðsynlegt í myndun hormóna.

Helstu fæðugjafar: Hlestu fæðugjafar eru margs konar ávextir en einning er hægt að fá c- vítamín í ýmsum fæðutegundum og ekki síst í vítamínbættu kornmeti.

Skortur: Fyrstu einkenni c- vítamín skorts eru tannholdsblæðingar og punktablæðingar. Við meiri skorts c- vítamíns fara vöðvar að rýrna t.d. hjartavöðvinn. Sár gróa ekki, beinverkir verða gríðarlegir og tennur geta farið að losna. Sefasýki og þunglyndi koma stundum upp vegna skorts á c- vítamíni.

Eitrunareinkenni: Mjög mikil neysla c- vítamíns getur haft óæskileg áhrif.

Ráðlagður dagskammtur:  75 mg á dag

Efri mörk: 1000 mg á dag

Kalk
Hlutverk: hlutverk kalks er margþætt og mikilvægt. Kalk er nauðsynlegt fyrir ýmsa starfsemi eins og samdrátt vöðva, starfsemi taugakerfisins, blóðstorknun, virkni ýmissa hvata. Kalk hefur einnig hvetjandi áhrif á framleiðslu hormóns sem kallast calmodulin sem meðal annars hefur jákvæð lækkandi áhrif á blóðþrýsting.

Helstu fæðugjafar: mjólk og mjólkurvörur.

Skortur: skortur á kalki leiðir til beinþynningar sem er sársaukafullur sjúkdómur.

Eitrunareinkenni: því hefur verið haldið fram að mikil neysla kalks í formi fæðubótarefnaa geti ýtt undir myndun nýrnasteina og aukið líkur á blöðruhálskrabbameini. Þetta er þó umdeilt.

Ráðlagður dagskammtur: 800mg

Efri mörk: 2500mg

Magnesium
Hlutverk: Magnesíum hefur það hlutverk að gegna sem hjálparhvati. Magnesíum hefur hlutverk að gegna í meira en 300 efnahvörfum í líkamanum, það tekur þátt í að flytja kalíum- og kalkjónir í gegnum frumuveggi og í samvinnu við kalk hefur magnesíum hlutverk að gegna varðandi vöðvasamdrátt og blóðstorknun.

Helstu fæðugjafar: Magnesíum er að finna í flestum fæðutegundum od æmi um vörur sem innihalda mikið magnesium eru heilkornaafurðir, baunir, karftöflur,
grænmeti og mjólk.

Skortur: Magnesíumskortur er sjaldgæfur en ef skortur kemur fram er hann oftast tengdur sjúkdómum eins og nýrnasjúkdómum, alkóhólisma, alvarlegum próteinskorti eða langvarandi niðurgang og uppköstum.

Eitrunareinkenni: Eitrunaráhrif vegna neyslu magnesíum úr fæðu er ekki þekkt en menn fá þó oft heiftarlegan niðurgang þegar þau taka inn magnesíum í fæðubótarformi eða í formi hægðalosandi lyfja.

Ráðlagður dagskammtur: 280 mg á dag

Efri mörk: Ekki eru efrimörk.

Járn
Hlutverk: járn sem finnst líkama er bundið tveimur próteinsamböndum, blóðrauða og vöðvarauða. blauðrauði telur um 2/3 hluta þess járns sem finnst í líkama og megið hlutverk þess er að flytja súrefni frá lungunum til vefja líkamans. Hlutverk vöðvarauða er felst í flutningi og geymslu súrefnis í vöðvum. Járn er mikilvægur hluti hundraða próteina og hvata þar á meðal hvata sem koma að byggingu amínósýra, kollagens, hormóna og taugaboðefna.

Helstu fæðugjafar: dýra- og jurtaafurðir.

Skortur: járnskortur leiðir fyrst og fremst til blóðleysi, en blóðleysi kemur ekki fram fyrr en eftir langvarandi járnskort, en þá fer að bera á einkennum eins og brunatilfinningu í tungu, þurrki í munni og sárum í munnvikum. Án nægilegs járns dregur úr virkni orkuefnaskipta í frumum. Líkamleg einkenni járnskorts eru meðal annars þreyta, deyfð og sinnuleysi, andþyngsli, höfuðverkur, svimi.

Eitrunareinkenni: harla ólíklegt er talið að heilbrigt fólk verði fyrir eitrunaráhrifum vegna ofneyslu járns úr fæði. Til eru þó allskyns sjúkdómar eins og t.d. járngeymdarkvilli sem veldur óeðlilegri uppsöfnun járns og aukast þá líkur á lifrakrabba, sykursýki, hjartasjúkdómum og liðagigt. Neikvæðar afleiðingar mikillar neyslu járns í fæðubótarformi getur æeitt til meltingarfæravandamála eins og harðlífi, ógleði, uppkasta og niðurgangs.

Ráðlagður dagskammtur: konur - 15mg karlar - 9mg.

Efri mörk: 25mg

D vítamín
Hlutverk: D vítamín er nauðsynlegt til myndunar og viðhalds tanna og beina. D vítamín auðveldar frásog kalks og fosfórs úr fæðunni í smáþörmunum sem tryggir eðlilegan flutning kalks og fosfórs til beina.

Helstu fæðugjafar: Útfjólubláir geislum frá sólinni, lax, makríll, túnfiskurm sardínur, síld, egg og D vítamínbættar vörur, lýsi og vítamín í töfluformi.

Skortur: Skortur á D vítamíni leiðir til alvarlegra sjúkdóma, beinkramar hjá börnum og beinmeyru hjá fullorðnum.

Eitrunareinkenni: Ekki er vitað til þess að útfjólubláir geislar leiði til D vítamín eitrunar. En eitrun vegna ofneyslu D vítamíns er vel þekkt og í reynd, hefur verið talið líklegast allra vítamína til að leiða til eitrunar.

Ráðlagður dagskammtur: Konur og karlar 15 míkrógrömm á dag, 61 árs og eldri 20 míkrógrömm á dag.

Efri mörk: 100 míkrógrömm.

B12 vítamín
Hlutverk: B12 vítamín er stærsti allra vítamína og hefur jafnframt flóknustu efnabygginguna. Þessi vítamín gegna í myndun meþíóníns úr hómósýsteini og eru bæði viðriðin myndun kjarnsýranna DNA og RNA. Einnig hefur B12 vítamín það hlutverk að gegna þegar kemur að orkumyndun úr fitu og próteinum sem nýmindun blóðrauða og er þar af leiðandi nauðsynlegt fyrir eðlilega frumumyndun og frumustarfsemi í líkama.

Helstu fæðugjafar: Finnst í lifur, nautakjöti, svínakjöti, mjólk og ostum.

Skortur: Neysla á vítamíninu er mjög takmörkuð eða hreinlega ekki til staðar. Helsti áhættuhópurinn er jurtaætur sem útiloka algjörlega dýraafurðir. Skortseinkenni eru þreyta, kvíði og mannfælni.

Eitrunareinkenni: Virðast ekki valda eitrun né öðrum skaða.

Ráðlagður dagskammtur: u.þ.b. 2 míkrógrömm.

Efri mörk: Engin.