Ágústráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun í Hraunvallaskóla 14. ágúst 2024 by Ingvar Sigurgeirsson

Ármann Halldórsson
Ármann hefur lokið grunnnámi og kennsluréttindum frá Háskóla Íslands, auk þess að hafa meistarapróf í menntavísindum frá sama skóla. Hefur að auki numið heimspeki og ensku við Árósaháskóla.

Ármann er kennari í ensku, heimspeki og verkefnastjóri alþjóðaverkefna við Verzlunarskóla Íslands.

Ármann hefur tekið virkan þátt í umræðu og rannsóknum tengt menntamálum og er ásamt Róbert Jack höfundur kennslubókar í heimspeki.

Ármann Halldórsson og Michael Bang Sørensen: Vinnustofa um námsmatsmenningu í dönskum og íslenskum framhaldsskólum
Vinnustofa um námsmatsmenningu í dönskum og íslenskum framhaldsskólum

Þessi vinnustofa markar formlegt upphaf verkefnis um mismunandi námsmatsmenningu í dönskum og íslenskum framhaldsskólum sem er styrkt af Norplus áætluninni. Hér er um að ræða íslensku nálgunina sem er að raða saman allri vinnu nemenda yfir námstímann andspænis stórum og afgerandi samræmdum stúdentsprófum sem einkenna danska kerfið. Annar stór munur er rík áhersla í Danmörku á munnleg próf sem tíðkast í minna mæli á íslandi.

Vinnustofan mun fela í sér stutta kynningu á viðfangsefninu og þeim áhrifum sem þessar mismunandi nálganir hafa á skólastarf. Hér vakna spurningar um hvernig prófin hafa áhrif á kennslu, hvort að skortur á utanaðkomandi eftirliti dragi úr gæðum, hvernig þetta hefur áhrif á kvíða og hvort að fjárfesting dana í þessu mikla prófabatterí leiðir til betri árangurs danskra nemenda í frekara námi. Ljóst er að hér er um stórt svið að ræða og mikið af erfiðum spurningum sem reynt verður að nálgast svar við. Spurningar eins og hvort að íslenska kerfið leiðir til ákveðinnar yfirborðsmennsku, er hætta á að íslenskir kennarar hygli nemendum, er óréttlæti í að byggja allt mat á einu lokaprófi eins og í Danmörku? Niðurstaðan verður svo vonandi sú að við getum lært af hvort af öðru.

Þátttakendum mun svo gefast kostur á að skoða mismunandi dæmi um námsmatsaðferðir í löndunum og jafnframt hjálpa þeim Ármanni og Michael að skerpa á spurningunum og tálga þær svo að verkefnið skili sem bestum árangri. Þó að verkefnið tengist fyrst og fremst framhaldsskólastiginu þá á í rauninni það sama við varðandi grunnskólann en í Danmörku tíðkast stór lokapróf, munnleg og skrifleg eftir grunnskóla meðan að aðferðirnar sem við þekkjum eru símat.

Þar sem þátttakendur eru vitaskuld íslenskir verður meira púðri eytt í að segja frá og vinna með dæmi frá Danmörku.

Vinnustofan fer fram á ensku.

Aftur á ráðstefnusíðuna

Michael Bang Sørensen
Michael Bang hefur lokið Cand.scient.soc gráðu frá Roskilde háskóla og meistaraprófi í námsráðgjöf frá Árósaháskóla.

Kennari í félagsvísindagreinum og menningarlæsi og námsráðfjafi við Det frie Gymnasíum á Nørrebro.

Michael hefur verið virkur í rannsóknum á starfi sínu og haft sérstakan áhuga á þróun samræðuaðferða í kennslu. Hann hefur líka unnið verkefni tengd NGK náminu og starfað með framhaldsskólum á Grænlandi.