Lög og reglugerðir leikskóla. (Valgerður, Lovísa, Hulda, Arnar, Hafrún, Paulina.) by Valgerður Þorsteinsdóttir

Hvað vitum við um lög og reglugerðir leikskóla?
Við vitum að allir leikskólar á Íslandi móta starf sitt eftir aðalnámsskrá menntamálaráðuneytis.
Hvað viljum við vita?
Við viljum vita hvaða reglum og lögum þurfa að fylgja.
Við viljum vita hvað réttindi og skyldur  við höfum sem leikskólakennarar.

Barnasáttmáli Sameinuðu Þjóðanna
Árið 2013 var barnasáttmáli sameinuðu þjóðanna lögfestur á Íslandi. Sáttmálanum er ætlað að standa vörð um réttindi barna.
Áhersluatriði sáttmálans eru umhyggja, vernd og þátttaka.

Meginhugmyndafræði sáttmálans er að tryggja það að grundvallarþörfum allra barna sé fullnægt (líkamlegum, félagslegum) og að þau hljóti vernd gegn ofbeldi, misnoktun og mismunun. Börn eiga rétt á góðri  heilbrigðisþjónustu og þau ríki sem eru aðildarríki að sáttmálanum  skulu taka ráðstafanir til þess að draga úr barnadauða, sjúkdómum og vannæringu.
Einnig hafa börn rétt á tjáningar-,skoðana- og trúfrelsi.

Fagmennska Kennara
Kennarar vinna í samráði við skólastjórnendur að þróun skólanámskrár í samræmi við aðstæður og sérstaka áherslu á hverju skólastigi. Það er á ábyrgð kennara að útfæra á faglegan hátt í kennslu sinni og öðru skólastarfi fyrirmæli menntalaga og þá stefnu sem birtist í aðalnámskrá.
Í byrjun 21. aldar hafa orðið gagngerar breytingar í íslensku samfélagi sem hafa bein og óbein áhrif á skólakerfið og þá um leið nám nemenda og störf kennara.

Heimildir
http://www.barnasattmali.is/barnasattmalinn/barnasattmalinnstyttriutgafa.html

https://www.stjornarradid.is/media/menntamalaraduneyti-media/media/forsidumyndir/lokadrog-leiksk_vefur.pdf

http://www.samband.is/verkefnin/skolamal/log-og-reglugerdir/
https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?ID=ba75ec24-e04f-4e16-8901-ea5954d63147

Myndir fundnar á Google.com undir leitarorðinu 'Kindergarten'.

Almennt um aðalnámskrá
Aðalnámskrá leikskóla er skrá þar sem lýst er hlutverki hvers skólastigs og áherslu á námi og kennslu hverju þeirra; markmiðum, viðfangsefnum og starfsháttum. Henni er ætlað að tryggja janfrétti barna í öllum leikskólum landsins. Menntun hefur verið skipt í  6 grunnþætti sem mynda kjarna menntastefnurnar. Þessir grunnþættir eru læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun.

Í sumum skólum er svo gerð sérstök skólanámskrá þar sem aðalnámskráin er útfærð í samræmi við stefnu á hverjum skóla eins og einkunarorð, nemendahóp, faglega áherslu og sérkenni í hverju tilviki.

Heilbrigði og vellíðan
Heilbrigði byggist á andlegri, líkamlegri og félagslegri vellíðan.
Í skóla, sem leggur áherslu á daglega hreyfingu og markvisst hreyfiuppeldi, er lagður grunnur að líkamlegri, andlegri og félagslegri velferð til lífstíðar. Veita þarf fræðslu um hreyfingu, efla hreyfifærni og skapa öruggt umhverfi sem hvetur alla til hreyfingar.
Mikilvægt er að skólinn taki mið af þörfum allra barna og ungmenna á einstaklingsbundinn hátt. Allir þurfa tækifæri til að njóta styrkleika sinna sem er lykilþáttur í að byggja upp jákvæða sjálfsmynd.

Leikur og nám
Í barnalögum er lögð mikil áhersla á mikilvægi leiks og að börn hljóti tækifæri til þess að  læra í gegnum hann.  Aðalnámskrá leggur einnig áherslu á mikilvægi leiks.

Leikur er ómissandi þáttur æsku árana  og þungamiðja leikskólastarfsins. Leikur er sjálfsprottinn og börnum eðlislægur. Þau leika sér af fúsum og frjálsum vilja og á eigin forsendum. Leikur getur veitt gleði og vellíðan en jafnframt falið í sér valdabaráttu og átök.

Leikur er meginnámsleið barna .

Í leik skapast vettvangur þar sem spurningar vakna og börn leysa vandamál sem upp koma á eigin forsendum.

Leikur getur komið af stað sköpunarkrafti barna og löngun þeirra til að læra og vilja vita meira.

Leikur getur verið bæði markmið og leið í leikskólastarfi.

Leikskólakennarar eiga að stuðla að námi í gegnum leik , m.a. með því að:

• Skapa fjölbreytilegt leikumhverfi og veita aðgengi að leikefni sem hvetur börn til að rannsaka, finna lausnir og skapa. • Gefa leik nægan og samfelldan tíma.
• Gefa leik nægjanlegt rými svo að börnin hafi svigrúm til að hreyfa sig og til að þróa leik og dýpka.
• Styðja við sjálfsprottnar athafnir og áhuga.
• Eiga samskipti við börn og mynda tengsl við þau í gegnum leik.
• Vera vakandi fyrir þeim tækifærum sem upp koma í leik og nota þau til að kveikja áhuga barna og styðja við nám þeirra.
• Styðja við og efla jákvæð samskipti í leik.
• Sjá til þess að öll börn hafi tækifæri til þátttöku í leik úti og inni.

Lög um stofnun og rekstur leikskóla
Tóku gildi 1. júlí 2008.

Leikskóli annast að ósk foreldra uppeldi, umönnun og menntun barna á leikskólaaldri í samræmi við lög þessi.  [...]  Í leikskólum skal velferð  og hagur hafður að leiðarljósi í öllu starfi.

Börn hafa rétt á góðri umönnun og öruggu umhverfi til mentunnar og leiks og ber starfsfólki leikskólans  að veita þeim það.

Helstu markmið leikskóla
Í stuttu máli eru aðalmarkmið leikskóla að fylgjast með og efla alhliða þroska barna. Þeir eiga að vinna náið með foreldrum og hlúa að öllum þörfum hvers og eins barns, svo hvert þeirra geti notið æsku sinnar. Einnig eiga leikskólar að stuðla að eðlilegri færni í íslensku og veita 'skipulega málörvun'. (Dagleg samskipti við börnin og söngvar t.d.) Rækta á hæfileika barnanna til  tjáningar og sköpunar,  rækta sjálfsmynd þeirra og heilbrigðisvitund. Efla á víðsýni, sjálfstæði og siðferðisvitund barna, leggja grundvöll þeirra að því að vera ábyrgir þátttakendur í lýðræðisþjóðfélagi.

Allir leikskólar eiga að búa yfir ákveðinni lágmarksaðstöðu til þess að tryggja vellíðan barna og starfsfólks. Til staðar þurfa að vera rými fyrir mismunandi deildir skólans, búnaður og tækjakostur til leiks, náms og hvíldar barna. Einnig þarf að vera til staðar rými fyrir börn með sérþarfir, fjölnotarými fyrir viðburði og aðstaða til neyslu matar. Skipulögð skólalóð og þurrkaðstaða á að vera til staðar fyrir fatnað barna og starfsfólks.

Aðskilin hreinlætisaðstaða fyrir börn og starfsfólk, vinnurými fyrir starfsfólk og setustofa þurfa einnig að vera til staðar.

Jafnrétti
Markmið jafnréttismenntunar er að skapa tækifæri fyrir alla til að þroskast á eigin forsendum.