Benjamín Dúfa by Gabriela Lif

Útdráttur
Benjamín dúfa er 12 ára og býr til riddararegluna Rauði drekinn með vinum sínum í hverfinu. Þeir búa til regluna til að hefna fyrir köttinn hennar Guðlaugar gömlu. Í hverfinu búa líka hrekkjusvín sem eru alltaf að stríða krökkunum í hverfinu. Þegar kviknar í húsinu hennnar Guðlaugar gömlu sem hefur bjargað krökkunum frá hrekkjusvínunum margoft þá bjargar hrekkjusvínið Helgi svarti henni út úr brennandi húsinu. Strákarnir í reglunni safna fyrir nýju húsi fyrir gömlu konuna og karlarnir í hverfinu hjálpast að við að reisa húsið
. Þegar aðrir strákar í hverfinu stofna Svörtu fjöðrina heimta þeir bardaga á milli félaga. Sá bardagi endar með ósköpum þar sem að einn strákurinn úr Rauða drekanum deyr.

Um verkið
Höfundur bókarinnar er Friðrik Erlingsson. Vaka-Helgafell gaf bókina út árið árið 1992. Hægt er að nálgast bókina á flestum bókasöfnum landsins og einnig er hægt að kaupa hana hjá forlaginu. Sagan hefur verið þýdd á mörg tungumál. Hún hlaut meðal annars íslensku barnabókaverðlaunin árið 1992 og var tilnefnd til Norrænu barnabókaverðlaunanna árin 1993 og 1995.

Hér er má sjá helstu upplýsingar um bókina og blaðsíðu 44-46 úr bókinni.

Aldurshópur, 7. bekkur
Bókin og verkefnavinna úr bókinni hentar vel fyrir 7. bekk. Bókin er ekki of þung og ekki of erfið í lestri fyrir þann aldurshóp. Bókin sjálf er 134 blaðsíður og þar að leiðandi ekki of löng og ekki of stutt. Bókin fjallar um krakka á aldrinu 9-12 ára þannig aðalpersónur bókarinnar eru á svipuðum aldri og nemendur í 7. bekk. Nemendur í 7. bekk ættu að ná tengingu við aðalpersónur bókarinnar og setja sig í þeirra spor, einnig ætti það að vekja áhuga meðal nemenda.

Umræður
Við höfum tekið þá ákvörðun að hafa umræðuspurningar eftir að nemendur hafa lokið við lestur á kafla 3, 6, 9, 12, 15, 18. Umræður verða með kennara og allir taka þátt í að ræða saman. Þannig kennarinn varpar fram spurningum á borð við ,,hvað getum við lært af atvikinu þar sem Helgi bjargar Guðlaugu gömlu’’. ,,Hver er boðaskapur sögunar’’ ,,hvað finnst ykkur um dauða Bólu-Hjálmars’’ ,,en samband Guðlaugar og Helga eftir dauða Bólu- Hjálmars og brunann’’. Spurningar á borð við þessar fá nemendurnar til þess að kafa dýpra og áttað sig á hugtakinu fyrirgefningu.  Það er svo margt í þessari bók sem börn gæta lært af og hún hefur fallegan boðskap.

Verkefni
Eftir að nemendur hafa lokið við lestur bókarinnar fá þeir tækifæri til þess að sökkva sér í hugmyndavinnu. Nemendum verður skipt upp í 4-5 manna hópa þar sem þau hafa frjálsar hendur til þess að vinna með ákveðið atvik/atriði úr bókinni. Þau geta t.d. gert leikþátt, lesið uppúr bókinni, búið til veggspjald eða annað sem þeim dettur í hug. Það er gott að gefa nemendum frekar frjálsar hendur í þessu verkefni en samt gefa þeim hugmyndir til þess að koma þeim á stað. Nemendur eiga síðan að kynna sitt verkefni fyrir bekknum.

Eftir að þessari verkefnavinnu er lokið fá nemendur ,,verðlaun’’ þar sem er horft á myndina Benjamín Dúfa. Það væri horft á myndina saman á ,,spari föstudegi’’. Eftir að myndinni lýkur eru umræður milli nemenda og kennara þar sem þau velta fyrir sér saman hvað er ólíkt með myndinni og bókinni og hvort nemendur hafi ímyndað sér þetta öðruvísi á meðan þau lásu bókina.

Rök fyrir bókinni
Bókin er góð fyrir nemendur 7. bekk vegna þess að boðskapurinn er mikilvægur fyrir börn á þessum aldri. Í bókinni koma fram mikilvægir þættir á borð við mikilvægi vináttu, fyrirgefningu og samstöðu. Bókin sýnir okkur það einnig að þrátt fyrir að fólk geri slæma hluti þýðir það ekki þau séu slæmt fólk. Nemendur kynnast því einnig að dauðinn er alltaf erfiður sama þótt það séu dýr eða manneskjur. Nemendur sjá einnig að það eru afleiðingar. Við teljum að nemendur geti lært margt af lestrinum en á sama tíma haft gaman að.

Lokaorð
Bókin Benjamín Dúfa er bók fyrir alla hún er skemmtileg, spennandi og sorgleg.  Það geta allir lært af boðskap bókarinnar og lært eitt og annað um lífið. Bókina og myndina er eitthvað sem allir ættu að lesa eða horfa á.
Einnig er bókin fullkomin til verkefnavinnu fyrir nemendur í eldri bekkjum grunnskóla.

Kennsluaðferðir
Kennslustundirnar byrja á lestrarstund. Nemendur nota þann tíma í að lesa eða hlusta á bókina. Þeir geta ýmist klárað þá kafla sem verða teknir fyrir í viðkomandi kennslustund eða haldið áfram. Hér er nemendum frjálst að sitja við borðið sitt eða í einhvers konar kósý horni eins og sófum eða á teppi (ef það er til staðar í kennslustofunni). Með þessu vekur kennari athygli nemenda á viðfangsefni dagsins strax í upphafi kennslutímans. Að því loknu hefst umræða þar sem kennari notast við samræðuaðferð. Nemendur sitja saman í hring í kennslustofunni þar sem þau geta horft framan í hvort annað. Með þessu skapar kennari þægilegra andrúmsloft. Kennarinn stýrir umræðunni, varpar fram spurningum og hvetur nemendur til þess að skiptast á skoðunum sínum.

Þegar allir hafa lokið við bókina notast kennari við frásagnarlist til þess að þjálfa nemendur í framsögn og lifandi flutning. Hér hafa nemendur frjálsar hendur við framkvæmd verkefnisins en þannig geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi.

Að lokum er kvikmynasýning. Nemendur hafa þegar lesið bókina og þekkja því viðfangsefnið vel. Hér fá nemendur tækifæri til að sjá annað sjónarhorn af sögunni. Kvikmyndir geta sýnt ólíkar áherslur, aðalatriðin verða dramatískari og smáatriðin færri.