Drauga - Dísa by Böðvar Dór Brynjarsson

Drauga Dísa
Drauga -  Dísa er barna/unglingabók sem kom út árið 2015 og hún er eftir Gunnar Theodór Eggertsson. Sagan gerist í tveimur heimum, sá fyrsti er nútíminn sem  Dísa lifir í 21 (öldin), hinn heimurinn gerist á 18 öld. Dag einn fer Dísa með foreldrum sínum upp í sveit. Hún fer að kanna svæðið  og þá finnur hún tré sem er hlið á milli þessara tveggja heima ,sem Dísa uppgötvar og þá fyrst fara hjólin. að snúast. Hún kynnist bóndastrák í frá 18 öld sem heitir Björn og þau lenda í ýmsum skemmtilegum ævintýrum saman.

Tengls bókarinnar við raunveruleikann
Sagan Drauga - Dísa inniheldur ýmis málefni sem hægt er að tengja við raunveruleika barna.

Einelti er mikilvægur þáttur í þessari sögu, Dísa sem er aðalpersónanna í sögunni er lögð í einelti daglega í skólanum af Emilíu sem er ein af vinsælu stelpunum í skólanum. Einelti á sér stað í dag í grunnskólum sama hvort okkur líkar það betur eða verr og er hlutur af daglegu lífi sumra barna, augljóst er að það væri hægt að búa til vinnu með nemendum út frá einelti til dæmis í lífsleikni.
Kennari gæti til dæmis spurt nemendur ef þið væruð dísa hvernig mynduð þið takast á við eineltið ?
Að falla inn í hópinn. Í einum hluta sögunar planar Dísa að hefna sín á Emilíu og planið hennar virkaði, til þess að það virkaði breytti hún algjörlega um hegðun til þess að falla inn í vinsæla hópinn og hún var meðvituð um það að hún var að þykjast vera önnur en hún sjálf.
Þetta tengist daglegu lífi unglinga að miklu leyti en þá er svo sannarlega pressa á því að falla inn í hópinn en er það rétt að gera það án þess að vera maður sjálfur ?
Þetta gæti verið spurning sem gæti verið lögð fyrir nemendur á miðstigi og elsta stigi í lífsleikni.
Þetta eru einungis tvö dæmi til að gefa yfirlit um það hvernig bókinni tengist daglegu lífi barna og hvernig það væri hægt að nota hana í kennslu.

Ólíkir unglingar
Við erum jafn mörg og við erum ólík. Börn og unglingar eru engin undantekning þar sem þau/þeir hafa mismunandi áhugamál.
Drauga - Dísa kemur einmitt inn á þetta efni , Dísa sem er aðalpersóna sögunnar hefur áhugamál sem megnið af krökkum á hennar aldri hefur engan áhuga á en það er að lesa og semja sögur, Dísu er strítt mikið fyrir að vera öðruvísi en aðrir.
Áhugamál eiga ekki að vera vandamál , heldur eiga þau að veita ánægju. Börn og unglingar eiga ekki að þurfa að skammast sín fyrir það að hafa mismunandi áhugamál og það er hægt að vinna með þetta efni að okkar mati.
Í Samfélagsfræði eða lífsleikni væri svo sannarlega hægt að láta nemendur gera kynningu um sitt helsta áhugamál og kynna það svo fyrir samnemendum sínum , þeir sem eru með sömu áhugamál gætu svo unnið saman

Við lífsleiknikennslu
Þegar unnin eru verkefni tengdum lífsleikni og samfélagsfræði er mikilvægt að við notum kennsluaðferðir sem halda þeim við efnið og vekja áhuga. Við getum notað aðstæður sem Dísa lendir í og látið unglinganna okkar fá það verkefni að leysa það.
Við sem kennarar gætum þá tekið aðstæður úr lífi Dísu og nota þær til að búa til verkefni. Verkefnin geta verið ýmis, þar af bæði verkleg og skrifleg.
Við viljum að nemendur tjái sig og skapi umræður. Markmið okkar með því að er opna augu sín fyrir alvarleika eineltis og það að þau geti séð það frá hlið þolandans. Við getum einnig nýtt okkur þann part þegar Dísa hefnir sín. Hvað var það sem Dísa græddi á að hefna sín?. Bókin býður upp á svo marga möguleika til að vinna með í tengslum við sjónarhorn á beinu og óbeinu ofbeldi innan skóla.

Lokaorð/umræður
Okkur finnst nauðsynlegt að kennarar séu vel að sér í þeim efnum sem þeir kenna og hafi áhuga á því viðfangsefni. Þegar það kemur að kennslu og kennsluaðferðum vorum við sammála að fjölbreytni sé sá þáttur sem mestu máli skiptir.
Við vorum sammála um mikilvægi þess að kennsluhættir séu fjölbreyttir og veki áhuga sem flestra nemanda og það hversu mikilvægt Það er að miðlum bókmenntum áfram til nemenda.