Sköpun by Ásta Björk Árnadóttir

Skilgreining
Sköpun byggist á gagnrýninni hugsun og aðferðum sem opna sífellt nýja möguleika og því skiptir sköpunarferlið ekki síður máli en afrakstur verksins. Í sköpuninni felst hagnýting hugmynda og mótun viðhorfa, gildismats og hæfni. Vinnubrögð í listsköpun og vísindum einkennast oft af sköpunargleði, frumkvæði og frumleika. Þannig vinnubrögð er æskilegt að sjá í öllu námi og skólastarfi.
Sköpun snýst ekki eingöngu um nýtt og frumlegt heldur og hagnýtingu þess sem fyrir er. Hún snýst þannig um lausnir viðfangsefna og leit að nýjum möguleikum. Sköpun er mikilvægur grunnur að því að horfa til framtíðar og móta sér framtíðarsýn, taka þátt í mótun lýðræðissamfélags og skapa sér hlutverk innan þess.

Tenging við kenningar
Hægt er að tengja sköpun við grein Dahlberg um kenningar Wygotsky að því leiti að við, sem starfsmenn í menntastofnunum, reynum að láta börnin gera hlutina sjálf upp að sinni getu. Í þeirri grein er talað um að börnin séu partur í þátttökuleiðsögn í sínu lífi, taka þátt í að gera hluti og læra þannig.
Einnig getum tengt sköpun við hugmyndir Deweys um lærdómssamfélag þar sem börnin skapa sitt eigið námsefni og hafa þannig áhrif á nám sitt og umhverfi.
Svo er hægt að finna tengingu við grein Wells og Claxton þar sem talað er um að börn læra af reynslunni í mismunandi aðstæðum. Þau eiga að geta nýtt allar aðstæður til náms.
Síðast en ekki síst er hægt að tengja hugtakið við grein Rogoff þar sem einnig er talað um að börn eigi að fá námstækifæri í öllum daglegum athöfnum, hvort sem það er í skólanum, við eldamennsku heima við eða á meðan ferðast er á milli staða.

Tenging við kennslu
Þegar við vinnum með yngstu börnunum er það eitt og sér að fara í útiföt sköpun.
Sköpun er ferli, það getur verið allt frá því að mála og búa til listaverk, í það að leyfa barninu að vera í frjálsum leik.
Það er sama hvað við setjum fyrir framan barnið, kubbar, leir, föt, hveiti, um leið og barnið kemur við hlutinn þá er það sköpun.
Ef við horfum svo á þetta frá hinni hliðinni, kennarans, þá er allt skólastarf skapandi fyrir þá. Að skipuleggja starfið, að kenna börnunum, að vera með samveru er allt skapandi fyrir kennarann sjálfan.
Einnig skal nefna að skapandi kennari er góð fyrirmynd bæði fyrir samstarfsfólk sitt og börnin sem hann vinnur með.

Skapandi skólastarf
Skapandi skólastarf felur m.a. í sér að nemendur hafa tækifæri til að hafa áhrif á skólastarfið s.s. námsefni, skipulag, námsmat, mötuneytismál, skemmtanir o.fl. Þar er ýtt undir forvitni, spurningar og heilabrot, nemendum líður vel og þeir eru hvattir til að gera margvíslegar tilraunir. Litið er á mistök sem tækifæri til að læra af reynslu og nýir miðlar og ný tækni eru nýtt á áhugaverðan og skapandi hátt. Verk nemenda eru sýnileg og geta orðið öðrum nemendum og kennurum innblástur og hvatning.

B3 - Sköpun
Ásta Björk
Eyrún Björk
Lilja
Bjarki
Þorgerður Anna
Sára Annamária