Hugmyndafræði Waldorfstefnu. by Elma Dröfn Gísladóttir

Hópmeðlimir:
Elma Dröfn Gísladóttir
Emil Örn Brynjuson
Kristjana Sigmundsdóttir
Natalia Grygo

Okkar þekking við upphaf verkefnis:
Við vissum ekki mikið um hugmyndafræðina en við höfðum smá þekkingu á Waldorfskólunum hér á Íslandi t.d. að það væri boðið upp á grænmetisfæði, mikil áhersla er lögð á útiveru og tengingu við náttúruna ásamt takmarkaðri tölvukennslu þegar um grunnskóla stigið er að ræða. Við vitum að það er kennt kennsluefni í viku til skiptis í stað fyrir að hafa hefðbundna stundaskrá sem skiptist í daga.

Hugmyndafræðin:
Leitast er við að efla alla þætti manneskjunar, ekki bara á þekkingu. Áhersla er lögð jafnmikið á vitsmunalegan, tilfinningalegan og líkamlegan þroska. Markmiðið er að ná fram lifandi áhuga hjá nemanda og stuðla hann til að finna hamingju á leið sinni í aukinn þroska.

Samkvæmt Rudolf Steiner var leiðin til þess að ná þessu markmiði að leitast við að ná jafnvegi milli þriggja þátta sem hann taldi tengir manneskjuna við umheiminn. Líkamlega, tilfinningalega og með hugsun, s.s. höfuð, hjarta og hönd.

Þetta eru þær helstu hugmyndir á bakvið stefnuna, og það sést í gegnum hvernig þessir skólar starfa. Miðað við hefðbundna grunnskóla, er mun meiri áhersla lögð á listræna og verklega atburði.

Upphaf Waldorfstefnu:
Fyrsti Waldorfskólinn var stofnaður árið 1919 í borginni Stuttgart í Þýskalandi. Rétt hjá var sígarettuverksmiðju, þannig starfsfólk verksmiðjunnar gat sent börn sín í skólann. Rudolf Steiner varð kennslustjóri skólans. Skólinn byggði á skilningi á mannlegum þroska. Waldorfskólarnir fóru að breiðast hratt út um heiminn. Í dag eru til yfir þrjú þúsund Waldorfskólar og leikskólar. Flestir þeirra eru í Evrópu.

Stofnandi Waldorf hugmyndafræðinnar:
Stofnandi Waldorf hugmyndafræðina var Rudolf Steiner. Hann fæddist 27. febrúar, 1861 í Austurríska keisaradæminu og dó 30. mars, 1925 í Sviss. Rudolf Steiner ólst upp í millistéttarfjölskyldu. Hann var austurrískur heimspekingur, félagslegur útbrotamaður, arkitekt og dulspekingur. Steiner var líka upphafsmaður Mannspekifélagsins.

Waldorf á Íslandi
Reknir eru tveir skólar á Íslandi sem fylgja Waldorf hugmyndafræðinni. Waldorfskólinn Sólstafir, stofnaður 1994, og Waldorfskólinn Lækjarbotnum,stofnaður 1990-1. Báðir eru þeir samreknir grunn- og leikskólar.
Leikskólarnir vinna eftir ákveðnum hrynjanda, dags-, viku- og ársskipulagi. Mikið er lagt upp úr stöðugu dagskipulagi sem tryggir börnum öryggi. Dagskipulagið byggist á morgunhring, frjálsum leik, vinnustund, útiveru og sögustund. Unnið er með náttúrulegan efnivið og áhersla lögð á náttúru.
Í morgunstund eru sungnir söngvar, farið í leiki og sagðar þulur.
Frjáls leikur er þungamiðja dagsins. Nægur tími er gefinn fyrir samfelldan leik þar sem börn eru þátttakendur af eigin forsendum og þar öðlast þau félagslegan þroska, málþroska og skapandi hugsun.
Vinnustund er notuð til þess að efla einstaklingsbundna upplifun og þekkingu barna. Hver dagur hefur sitt verk m.a. listasmiðja og handavinna.
Sögustundir eru notaðar til þess að efla ímyndurarafl. Ekki er lesið bækur heldur sagðar sögur um viðfangsefni sem börnin tengja við  og geta dregið lærdóm í leikinn sinn og nám.
Unnið er náið með foreldrum.

Dæmi um lotutöflu hjá 1-2 bekk

Samanburður Waldorf og Reggio Emilia
Waldorf:

Börn fædd með náttúrulega eiginleika í að læra sem þau þurfa að þróa með sér og næra

Kennarar vinna útfrá einstakings þörfum barna

Læra þegar þau eru tilbúin

Dagskipulag sem tyggir öryggi

Frjáls leikur, náttúrulegur efniviður

Sögustundir, listir, ímyndunarafl

Náttúra og útivist mikilvæg

Grænmetisfæði

Lítið notað tækni

Foreldrasamstaf mikið

Reggio Emilia:

Verkefni innblásin af áhuga barna af hverju sinni

Börn frumkvöðlar í námi sínu, sjálfstýrt nám

Börn fæðast með hundrað tungumál til tjáningar

Lýðræðisleg vinnubrögð

Unnið í litlum hópum, kennslurými skiptir máli

Opnar spurningar sem vekja áhuga barna á frekari námi

Kennarar skrásetja námsferli barna, samtöl og myndir

Kennarar eru samnemendur barna

Foreldrasamstarf mikið

Matseld í Waldorf skólum
Almennt er boðið upp á grænmetisfæði í Waldorfskólum en einnig er boðið uppá fisk og aðeins á þorrablóti er hangikjöt og kjötsúpa í boði. Börnin læra að rækta sinn eigin mat sem er síðan notaður og ásamt því læra þau geymsluaðferðir svo sem súrsun, sykrun, og söltun. Mikil áhersla er lögð á að enginn matur fer til sóunar og hafa báðir skólanir hér á Íslandi hlotið grænfánann

Mitt mat á stefnunni - Kristjana
Að sjálfu sér er þetta mjög áhugaverð stefna það er margt sem hinir týpísku ríkisreknu leikskólar mættu læra frá Waldorfskólunum en einnig finnst mér að tölvukennslu ætti að vera meiri þegar krakkarnir eru komir í eldri bekki svo þau geta verið samkeppnishæf þegar þau fara í menntaskóla. Það sem ég lærði og fannst mest áhugavert var kennslan sem börnin fá í matseld og ræktun.

Mitt mat á stefnunni - Elma
Eftir að hafa unnið með og lesið mikið um stefnuna lýst mér ágætlega vel á hugmyndafræði Waldorfstefnu. Sérstaklega hvernig hún er framkvæmd í leikskólum hér á landi. Ég er mjög hrifin af föstu skipulagi þeirra og sammála áherslunni á frjálsan leik. Sögustund þeirra og framkvæmd hennar heillar mig. Útivera, náttúran og náttúrulegur efniviður finnst mér frábær tól í kennslu barna. Ég er ekki endilega sammála því að bjóða bara grænmetisfæði í skólanum eða því að tækni er lítið notuð, því tækni er líka frábært tól í kennslu barna.

Mitt mat á stefnunni - Emil
Kostir:
- Meiri áhersla á að þróa listræna og verklega hæfileika nemenda.
- Meiri einstaklingsmiðað nám.
- Hugsað vel um hamingju nemenda.
Gallar:
- Geta ekki hafið eins marga krakka og hefðbundnir skólar.
- Ekki eins margir samnemendur fyrir krakka að umgangast.
- Mikil áhersla á listum sem vekur ekki endilega mikinn áhuga hjá sumum.

Mitt mat á stefnunni - Natalia
Almennt hljómar Waldorf hugmyndafræðin mjög áhugaverð. Mér finnst frábært að börn fá meira frelsi og meiri athygli frá kennaranum. Þetta hjálpar einnig að rækta sambandið á milli nemendans og kennara. Mér finnst mjög gott að börn fái tækifæri til að gera allskonar listir td. spila á hljóðfæri, sauma eða mála. Það að börn geta fengið að rækta matinn sinn og svo undirbúa hann er líka mjög áhugavert. Börn í Waldorfskólum geta samt líka verið smá einangruð. Það er í lagi að börn hafa ekki aðgang að allri tækni þegar þau eru ung, en það gæti verið gott fyrir eldri börnin að kynnast tækni. Af því að Waldorfskólar eru færri en venjulegir skólar, getur verið erfitt fyrir börn sem þurfa að flytja að komast í annan sambærilegan skóla.