Barna og unglingabækur. Karen Ösp og Sindri Lars by Sindri Omarsson

1.
Rotturnar er bók eftir hana Ragnheiði Eyjólfsdóttur og fjallar um unglinga sem eru að fara í sumarvinnu út á landi. Þau mæta á svæðið og þá tekur fararstjórinn á móti þeim fagnandi. Nokkrir krakkar eru svo valin af handahófi til þess að vinna við bensínskála sem hefur ekki verið í notkun í fjölda ára og líst þeim ekkert svakalega vel á staðinn. Þegar þau vakna eftir fyrstu nóttina er ein stelpa í hópnum mjög lasin og verður svo sótt af lækni, að þau halda. Þeim er sagt að hún hafi verið bitin af dýri og væri sýkt af hættulegri veiru. Fljótlega er farið með alla krakkana í einangrun, að þau halda, en í rauninni eru þau á tilraunastofu. Þar verða þau föst inni í gegnum söguna þar sem þau eru sýkt og notuð til meðferðar. Þau halda þó að þau séu sýkt af veiru. Í  lokinn átta þau sig á því að ekki er allt sem sýnist og reyna að finna sér leið út. Bókin endar svo með því að tvö þeirra komast út með aðstoð bróður einnar sem hefur verið að leitað hennar.

2.
Rotturnar er bók eftir hana Ragnheiði Eyjólfsdóttur eins og áður hefur komið fram. Útgefandi bókarinnar er Vaka-Helgafell og er það staðsett í Reykjavík. Bókin kom út árið 2018 og er hún vísindaskáldsaga.

3
Við myndum segja að þessi bók henti unglingastigi mjög vel, sérstaklega 8-9 bekk þar sem það er aldurinn þar sem krakkarnir fara að finna fyrir ákveðni tilfinningu hvað varðar ástina og áhættur. Bókin er spennandi og kemur bæði ást og ævintýri fyrir í sögunni sem á eftir að ná til krakkanna. Einnig munu þau ná að tengja vel við söguna þar sem unglingar eru aðalpersónur og þeirra tilfinningar og upplifanir fá að lita söguna.

4.
Nemendur vinna saman í 4-5 manna hópum og velta fyrir sér söguþræðinum og boðskap sögunnar. Þau hafa til hliðsjónar spurningar frá kennara sem þau munu þurfa að svara og segja þannig frá sögunni.

1.Greinið frá innri og ytri tíma sögunnar

2. Greinið frá sögumanni sögunnar og sjónarhorni hans

3. Sjáið þið einhvern boðskap í sögunni? Ræðið ykkar á milli og skrifið niður helsta boðskapinn.

4. Hvernig manneskja er Hildisif? Hvernig persóna kemur hún fram sem? Ræðið hana og berið hana svo við Garúnu? Hvernig eru þær ólíkar?

5. Er í lagi að hakka sig inní kerfi lögreglunnar, í leit að sannleikanum? Myndu þið gera það sama?

6. Er það rétt af krökkunum að koma illa fram við Hildisif vegna smithættu? Hvernig myndu ykkur líða ef þið væruð í sömu sporum og Hildisif?

7. Ef það væri einn kafli í viðbót, um hvað myndi hann fjalla? Segið frá því í stuttu máli hvað myndi gerast næst.

5.
Rotturnar er skrifuð svo skemmtilega og nær maður að festast við lesturinn strax í byrjun. Spennan helst í gegnum alla söguna og munu 8 og 9 bekkingar ná að tengja svo vel við hana þar sem hún fjallar um unglinga og þeirra líf er rosalega venjulegt hvað varðar síma og netnotkun nemenda, talsmáta og hegðun þeirra. Einnig er gott að sjá að allir ná að verða góðir og sterkir vinir, þó þau koma úr ólíkum áttum og ná ekki að tengjast í byrjun. Samvinna þeirra í seinasta hluta bókarinnar er einnig mjög góð og nemendur geta lært ýmislegt af henni.

6.
Rotturnar er bók sem kom okkur svakalega á óvart. Við vorum ekkert að gera okkur einhverjar vonir fyrir þessari bók og ætluðum bara að lesa hana vegna þess að við þurftum þess. Byrjunin á bókinni greip okkur strax, maður varð spenntur og sögðum við bæði að við höfum aldrei lesið bók jafn fljótt og þessa. Bókin festist við augun á okkur í 2 daga því við kláruðum bókina svo fljótt. Rotturnar er klárlega bók sem við mælum með, skiptir engu máli hversu gamall/gömul manneskjan er. Bókin fær 9 af 10 í einkunn frá okkur.