Starfsþróunarverkefni - Fjölbreyttir kennsluhættir. by Óðinn Arnarsson

Inngangur
Í þessu starfsþróunarverkefni vildi ég skoða hvernig mismunandi kennsluaðferðir, sérstaklega stöðvavinna og hópavinna, nýtast til að virkja nemendur og auka skilning þeirra á námsefninu. Ég hafði áhuga á að prófa fjölbreytt verkefni þar sem nemendur vinna saman og takast á við verkefnin með skapandi hætti.

Markmið
Markmið mitt var að kanna hvernig þessar kennsluaðferðir henta mínum nemendahópi, hvaða áhrif þær hefðu á þátttöku og áhuga, og hvernig ég sem kennari gæti þróað eigin kennsluhætti í ljósi reynslunnar. Í verkefninu geri ég grein fyrir framkvæmd, mati (ígrundun), áskorunum og þeim lærdómi sem ég dreg af verkefninu og hvernig það hefur mótað mína sýn á kennslu og námið sem fer fram í skólastofunni.

Stöðvavinna 1.
Á fyrstu stöðvavinnunni í stærðfræði voru þau að vinna með tugabrot og mælieiningar, þar voru 5 mismunandi stöðvar.

Fyrsta stöðin var almennur reikningur (+og-) á tugabrotum þar sem þau vigtuðu 2 hluti og áttu að sýna útreikningana fyrir hvort öðru. þar voru þau einnig að notast við vigt.

Önnur stöðin var með handahófskenndum tölum,  nemendur drógu upp mismunandi tölur og áttu að gera tvennt, fyrst var að reyna búa til minnstu tölu sem þau gátu og síðan stærstu tölu sem þau gátu. Enn þau máttu ekki breyta um staðsetningu á kommunni sem var ákvörðuð út frá teningakasti.

þriðja stöðin var margföldun tugabrota, þar sem nemendur áttu að margfalda náttúrulega tölu með tölu tugabrots tölu sem þau drógu úr pappírsbunka.

Fjórða stöðin var samstæðustöð en nemendur áttu þá að setja saman mismunandi form af vökva rétt saman, eins og 1 lítri = 10 dl.

Fimmta stöðin var inn á multi þar sem nemendur áttu að reikna mismunandi tugabrotsdæmi, nema að það var mikið sjónrænna þar inni en ef þau skrifuðu tölurnar upp.

Ígrundun:

Mikill óróleiki hjá nemendum.

Áhugaleysi skein úr nemendum sem vildu ekkert vinna með ákveðnum nemendum. (dregið í hópa)

Tveir nemendur sem unnu vel á öllum stöðum.

Prófa næst að leyfa þeim að velja í hópa.

Stöðvavinna 2.
Önnur stöðvavinnan var um Rúmmál og yfirborðsflatarmál.

Fyrsta stöðin var að nemendur áttu að velja tölu af margföldunarspjaldi og hinn aðilinn átti að búa til kubb sem var gerður úr mörgum litlum kubbum sem gerði upp töluna, eins og ég valdi töluna 24, þá áttir þú að búa til kubb sem væri þá 2 á lengd, 3 á breidd og 4 á hæð.

Önnur stöðin var um rúmmál inn á multi, en þar voru nemendur inni á multi að fylla tank, þau voru þá með mælieiningarnar hæð, lengd og breidd og áttu að ákvarða hvað rúmmálið væri í tankinum.

Þriðja stöðin var Flatarmál, en þar voru nemendur með tússtöflur og margföldunartöflu. nemendur skiptust á að velja tölu og áttu þeir að sýna hvort öðru hvernig þeir finna flatarmál flatarins, ef það var of létt þá létt ég þá teikna upp yfirborðsflatarmál og reikna hvað það væri mikið.

Fjórða stöðin var eins og önnur stöðin, verkefni inn á multi nema þá áttu þeir að ákvarða hversu marga kubba væru á mynd, þar sem þeir gátu snúið og talið kubbana eins og þeir vildu.

Fimmta stöðin var reikningur á mismunandi ferningslaga formum og áttu þau að finna yfirborðsflatarmál formanna. Hefðbundinn reikningur á blaði.

Ígrundun:

Fyrsta stöðin var gekk ekki vel, skoða betur.

Multi stöðvarnar og þriðja og fjórða stöðin gengu vel. (Spjaldtölvurnar)

Of margir áhugalausir, stelpurnar mjög duglegar.

Gleymdi tímanum, var of mikið að hjálpa. (Passa það)

Fyrir utan það gekk þetta ágætlega.

Muna að spyrja í lok tímans (námsmat).

Stöðvavinna 3.
Þriðja stöðvavinnan var um almenn brot.

Fyrsta stöðin var þraut, en þau áttu þá að setja saman þríhyrninga með jöfn gildi, t.d. 10%=1/10=0,10. markmiðið var að klára alla kubbana.

Önnur stöðin var lenging og stytting brota inn á multi á iPad, en nemendur fengu þá að sjá hvernig þau lengdu brot og styttu.

Þriðja stöðin var samstæðuspil, en þá áttu nemendur að setja saman jafngild brot sem lágu á borðinu og reyna ná öllum samstæðunum.

Fjórða stöðin var samlagning og frádráttur brota, en þar áttu nemendur að draga brot og leggja þau saman, ef það var of létt þá mátti annar nemandinn breyta öðru brotinu þannig að hin þyrftu að lengja brotin.

Fimmta stöðin var margföldun brota og stytting brot, en þá dróg nemandi brot og valdi eina náttúrulega tölu. Hinn nemandinn átti þá að reikna dæmið og útskýra fyrir hinum hvað hann gerði.

Ígrundun:

Nokkrir nemendur áttu í miklum erfiðleikum með að átta sig á jafngildum brotum, tugabrota og prósentu. (Fara betur yfir það).

Fyrsta stöðin gekk vel, áhugavert að sjá nemendur reyna við þríhyrningsspilið. (Var samt að hjálpa of mikið).

Annars gekk þetta ágætlega.

Mikill stígandi í hópnum í stöðvavinnu.

Mjög þreyttur, leyfa nemendum að lenda á hindrunum.

Námsmat: Lengdu brotið 2/4 með 5. Hvernig get ég stytt það aftur? Getið þið nefnt brot sem er jafn stórt?

Fræðilegur bakgrunnur
Áhugaverð grein, en hún fjallar um nokkrar mikilvægar áherslur í stöðvavinnu, sem ég nýtti mér í undirbúningnum varðandi stöðvarnar.

Áherslur greinarinnar:

Greinin leggur áherslu á að stöðva vinna getur stutt við hæfnimiðað nám með því að:

Auka áhuga og virkni nemenda.

Stuðla að fjölbreyttri nálgun að námi.

Efla samvinnu og samskipti nemenda.

Pho, D. H., Nguyen, H. T., Nguyen, H. M., og Nguyen, T. T. N. (2021). The use of learning station method according to competency development for elementary students in Vietnam. Cogent Education, 8(1). https://doi.org/10.1080/2331186X.2020.1870799

Fræðilegur bakgrunnur 2.
Ég skoðaði grein eftir þá Mevlut og Cihad um áhrif stöðvavinnu í skólum.

Helstu niðurstöður greinarinnar:

Áhrif: Greinin sýnir að stöðvavinna getur haft marktæk jákvæð áhrif á námsárangur með áhrifastærð upp á 0.84 út frá Meta-greiningaferli.

Árangur eftir skólastigi: Áhrifin voru mest á grunnskólastigi (1.012), minni á framhaldsskólastigi (0.615) og lítil sem engin á háskólastigi (0.013).

Árangur eftir námsgreinum: Stöðvavinna hafði mest áhrif í náttúrufræði (1.224), félagsfræði (1.037) og móðurmáli (tyrknesku) (1.026), en minni áhrif í stærðfræði (0.107) og efnafræði (0.013).

Lengd inngrips: Bestur árangur náðist þegar stöðvavinna var notuð í 3–4 vikur (1.192), samanborið við styttri eða lengri tímabil.

Aydogmus, M.,  og  Şentürk, C. (2019). The Effects of Learning Stations Technique on Academic Achievement: a Meta-Analytic Study. Research in Pedagogy, 9(1), 1–15. https://doi.org/10.17810/2015.87

Hópavinna 1.
Í fyrsta hópavinnunni, eða ensku hópavinnunni áttu þau að stigbreyta lýsingarorð sem þau fundu í textanum sem við vorum að lesa. Nemendur ákváðu hvaða lýsingarorð þau skrifuðu niður og hengdu upp á plaggatið, sem var með ákveðnum áherslum, var orðið með eitt atkvæði, var orðið með y-endingu eða var orðið með meira en 2 atkvæði og bætti við sig more eða most. Nemendur þýddu síðan orðin á íslensku og settu þau á hinn endann á plaggatin.

Ígrundun:

Nemendur duglegir.

Góð samvinna varðandi lýsingarorðin, hjálpast að finna orðin í textanum.

Væri mögulega skemmtilegt að gera svipað með nafnorðin og sagnorðin.

Hópavinna 2.
Í náttúrufræðinni var einnig hópavinna en við vorum þá að læra um síun vatns, nemendur áttu að búa til síunarstöð sem síaði skítugt vatn, þau voru með box, rör, skæri og allskonar efnivið til þess að sía vatnið.

Ígrundun:

Mjög skemmtilegt verkefni.

Nemendur mjög áhugasamir.

Þurfti lítið að segja þeim til, mjög sjálfbjarga.

Áherslur stöðvavinnunnar
Út frá greininni hér á undan ákvað ég að hafa þessar áherslur hjá mér í undirbúningnum á stöðvavinnunni.

Læsi

Nemendur vinna með hugtök út frá lesefninu, þar sem nemendur vinna ákveðinn orðaforða í öllum fögum, mér dettur í hug að nemendur geti svarað tilbúnum orðadæmum í stærðfræði sem stuðlar að samræðum hjá nemendum.

Spil

Nemendur spila saman, ákveðin spil sem tengjast viðfangsefni fagsins, í ensku eða náttúrufræði getur það verið að útskýra orð sem þau draga og safna þannig stigum. Í stærðfræði getur það verið að tengja saman mismunandi mælieiningar eða almenn brot og tugabrot.

Upplýsingatækni

Nemendur vinna þá saman að ákveðnu markmiði, tilraunir eða verklegar athuganir tengdar því námsmarkmiði sem á við hverju sinni.

Verkleg vinna

Nemendur vinna þá saman að ákveðnu markmiði, tilraunir eða verklegar athuganir tengdar því námsmarkmiði sem á við hverju sinni.

Samræður

Nemendur vinna saman verkefni í gegnum samræður, þar sem þau fá verkefni þar sem þau þurfa að útskýra fyrir hvort öðru hvernig þau leysa verkefnið.

Niðurstöður - Stöðvavinna
Stöðvavinnan sem ég skipulagði í stærðfræði var fjölbreytt og vel útfærð miðað við viðfangsefni, en ég sé að hún var of flókin fyrir nemendur.

Nemendur fengu tækifæri til að nálgast námsefnið með ólíkum hætti þá í gegnum verklega vinnu, reikningsæfingar, leiki og tækni. Þrátt fyrir góða skipulagningu skilaði stöðvavinnan ekki þeim árangri sem ég hafði vonast til.

Áhugi nemenda var takmarkaður og hegðun truflaði gang verkefnanna, sérstaklega þegar unnið var með samnemendum sem voru ekki vinir.

En greinin frá Tyrklandi styður nákvæmlega það sem varð raunin, það tekur 3-4 skipti að nemendur átta sig á vinnubrögðunum í stöðvavinnu, það voru kannski of margir nemendur sem "komust undan" námsmatinu þegar ég spurði nemendur.

Niðurstöður - Hópavinna
Hópavinnan í ensku og náttúrufræði gekk aftur á móti afar vel. Nemendur sýndu mikinn áhuga, tóku virkan þátt og unnu saman að lausnum með skapandi og markvissum hætti. Í þessum verkefnum komu fram færni nemenda í samskiptum, samvinnu og lausnaleit.

Helstu áskoranir
Að halda uppi fókus og áhuga nemenda í stöðvavinnu, sérstaklega þegar þeir þurftu að vinna með ólíkum félögum.

Að tryggja að nemendur nýttu tímann vel á hverri stöð án þess að fara út í óæskilega hegðun.

Að meta hvort fjölbreytt stöðvavinna væri raunverulega að stuðla að auknum skilningi nemenda á námsefninu eða einungis að skapa umhverfi fyrir hegðun sem kom í veg fyrir frekara nám.

Að taka myndir og vera með námsmat í lok tímans.

Að hvíla sig, þar sem allar kennslustundirnar í stöðvavinnunni voru mjög þreytandi. Ég var á hlaupum fram og tilbaka að hjálpa, útskýra og sýna.

Lærdómur, umræða og lokaorð
Verkefnið kenndi mér að kennsluaðferðir þurfa að vera í  samræmi við þarfir og eðli nemendahópsins. Þótt stöðvavinna sé öflug aðferð við réttar aðstæður, var hún í þessu tilviki ekki hentug fyrir hópinn sem ég kenndi, þó að það væri stígandi í vinnu hjá hópunum. Hópavinna, þar sem nemendur vinna saman að einu stóru markmiði og með stigvaxandi markmiðum, virkaði mun betur.

Helsti lærdómur:

Skipulag er númer 1,2 og 3. Þegar kemur að stöðvavinnu.

Góð útskýring í byrjun er mjög mikilvægt og tekur smá tíma, en það skilar sínu í stöðvavinnunni.

Færri stöðvar með góðum stigvaxandi markmiðum eru gulls ígildi.

Hópavinna getur verið öflug kennsluaðferð fyrir kennara til þess að byggja upp sjálfstæð vinnubrögð hjá nemendum.

Leyfa sér að gera mistök, læra af þeim.

Út frá þessu verkefni sé ég að verkefni þurfa alls ekki að vera flókin, það er stundum betra að leggja meiri áherslu á verkefni þar sem nemendur vinna saman í minni hópum með skýran tilgang og stigvaxandi krefjandi verkefni. Að auki mun ég nýta stöðvavinnu með meiri varúð og aðeins þar sem hún þjónar skýru námsmarkmiði og hæfir nemendahópnum.

Heimildaskrá
Aydogmus, M.,  og  Şentürk, C. (2019). The Effects of Learning Stations Technique on Academic Achievement: a Meta-Analytic Study. Research in Pedagogy, 9(1), 1–15. https://doi.org/10.17810/2015.87

Pho, D. H., Nguyen, H. T., Nguyen, H. M., og Nguyen, T. T. N. (2021). The use of learning station method according to competency development for elementary students in Vietnam. Cogent Education, 8(1). https://doi.org/10.1080/2331186X.2020.1870799

Starfsþróunaráætlun - Janúar
Hér er starfsþróunaráætlunin, sem ég reyndi að fara eftir.