Kynjakerfi á Instagram by

Hugtakið Kynjakerfi
Hugtakið kynjafræði byggist á staðalímyndum um kynin og lýsir ríkjandi hugmyndum samfélaga um kyn, kyngervi og kynhneigð. Kynjakerfið byggir á kynjatvíhyggju(e. Gender binary) og samkvæmt ríkjandi kynjakerfi eru einungis til 2 kyn(karl og kona). Kynjakerfi ákveða hvernig samfélög gera greinamun á milli kvenna og karla og einnig þær væntingar sem fólk þarf að uppfylla til þess að tilheyra kynjaflokki. Dæmi um væntingar eru meðal annars hegðun, tilfinningar, útlit og klæðnaður. Dæmi um kynjakerfi er feðraveldi.

stelpur vs strákar á Instagram
Á Instagram kemur fram pressan á stelpur um að vera petite, mjóar, samt með stóran rass og brjóst og með fullkomna húð. Oft eru stelpur að bera sig saman við myndir af konum sem hafa farið í lítaaðgerðir og/eða photoshoppað myndirnar sínar. Það eru oft mjög óraunverulegar væntingar til útlits kvenna og finna margar þeirra fyrir þessum væntingum út frá því sem þær sjá á Instagram.

Strákar finna einnig fyrir slíkri pressu tengdri útliti vegna ríkjandi kynjakerfis á Instagram. Væntingarnar geta einnig verið óraunverulegar og tengjast ríkjandi karlmennsku og hinum fullkomna karlmanni sem er með stóra vöðva og lítur vel út. Því miður er þessi pressa alltaf að aukast og á Instagram finna kynin fyrir pressu til að líta einhvern veginn út.

Kynjaðar auglýsingar
Staðan er sú að strákar fá frekar auglýsingar fyrir áfengi og fjárhættuspil. Þær auglýsingar tengjast ríkjandi karlmennsku á þann hátt að strákarnir eiga að vera þeir sem taka áhættur og vera algjör partý dýr. Stelpur fá frekar auglýsingar tengdar útliti eins og fegrunarmeðferðum og megrunarkúrum. Slíkar auglýsingar sem beinast að stelpum ýta undir væntingarnar um að þær eigi að líta einhvern veginn út og því ýta þær undir óöryggi. Óöryggið ýtir undir photoshop eða aðrar leiðir til að líta út fyrir að vera fullkomin og er þetta þá orðið að vítahring. Slíkar auglýsingar tengjast styðjandi kvenleika því að ,,hið fullkomna útlit’’ er það sem uppfyllir þarfir og langanir karla.

Heimildir
stelpur vs strákar á Instagram:

Male body-image pressure increases with influence from social media - Spartan Newsroom (msu.edu)

hugtök:
https://kynjafraedi.vefbok.forlagid.is/?id=32

kynjaðar auglýsingar: https://www.ruv.is/frett/2022/11/15/afengi-haldid-ad-drengjum-en-botoxi-ad-stulkum

Afleiðingar kynjakerfis á Instagram:
Does Social Media Have a Negative Impact on Body Image? | Psychology Today

Afleiðingar kynjakerfis á Instagram
Afleiðingar kynjakerfisins á Instagram eru margar. Kynjakerfið á Instagram ýtir undir ákveðna mótun viðhorfa til líkamsímyndar sem fylgja ráðandi karlmennsku og styðjandi kvenleika. Samfélagsmiðlar eins og Instagram hafa neikvæð áhrif á sjálfsöryggi fólks og sérstaklega þegar verið er að fylgjast með vinsælu fólki miðað við venjulegt fólk. Því miður hafa átraskanir aukist vegna þess sem sést á Instagram og því er mikilvægt að gera sér grein fyrir að það sem maður sér á Instagram er ekki alltaf raunverulegt. Kynjakerfið á Instagram ýtir undir hugmyndir um staðalímyndir og hið fullkomna útlit. Vert er að hafa í huga að það er pláss fyrir fleiri en bara body buildera og fyrirsætur á Instagram.

Styðjandi og mengandi kvenleiki
Það er oft talað um styðjandi kvenleika(e. emphasized femininity) sem systurhugtak ráðandi karlmennsku þar sem að bæði hugtökin koma frá Connell. Styðjandi kvenleiki er þegar þörfum og löngunum karla er mætt. Til þess að kona uppfyllir þarfir og langanir karla þá þarf hún að uppfylla ákveðin útlitstaðla, sem eru breytileg eftir árum. Styðjandi kvenleiki tengist ráðandi karlmennsku því það ýttir undir og viðheldur athöfnum sem halda stofnanabundnu yfirráði karla yfir konum. Dæmi um styðjandi kvenleika er einstaklingur sem hefur farið í lítaraðgerð, auglýsir útlits tengda hluti fram yfir annað.

Mengandi kvenleiki er andstæðan við styðjandi kvenleika og kemur frá Mimi Schippers. Mengandi kvenleiki er þegar hugmyndum styðjandi kvenleika er ögrað. Í mengandi kvenleika er ekki uppfyllt þarfir og langanir karla heldur er kvenleikin þannig að konur taka mál í sínar eigin hendur, þora fara á móti staðalímyndum um kvenleika og eru óhlýðnar. Dæmi um slíkan einstakling væri kona eins og Edda Falak.

Ríkjandi karlmennska vs undirskipuð karlmennska
Ríkjandi karlmennska (e. dominant masculinity) er úr kenningaramma Connells um ráðandi karlmennsku. Ríkjandi karlmennska hefur í sér hugmyndir um hvernig hinn fullkomni karlmaður er. Það eru til samfélagslega samþykktar leiðir sem karlmenn geta notað til þess að þykja karmannlegir en flestir karlar ná ekki að tilheyra þessum hóp. Dæmi um slíkan einstakling á Instagram er bodybuilder.

Undirskipuð karlmennska (e. subordinated masculinity) tilheyrir einnig kenningaramma Connells um ráðandi karlmennsku. Í undirskipaðri karlmennsku tilheyra þær gerðir karlmennsku sem eru talin tengjast kvenleika og uppfylla ekki væntingar ríkjandi karlmennsku. Dæmi um undirskipaða karlmennsku á Instagram er samkynhneigður karlmaður.