Heimsókn á vettvang by Heiðdís Rós

Iðjuþjálfi í Brákarhlíð
Ég heimsótti Aldísi Eiríksdóttur sem er iðjuþjálfi á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi. Hún útskrifaðist frá Háskólanum á Akureyri 2015 og er nú í 80% starfshlutfalli Í Brákahlíð. Starfsmenn Brákarhlíðar eru um 80 í ýmsum stöðuhlutföllum. Hennar starf er meira félagslegt heldur en t.d. starf iðjuþjálfa í endurhæfingu. Hún er ekki að reyna að byggja upp færni heldur er hún að reyna að viðhalda færni og sjá til þess að fólkið njóti iðjunnar sem það er að fást við.

Basar
Þegar ég heimsótti staðinn var verið að undirbúa basar sem var haldinn 4. nóvember þar sem handverkin voru seld og rennur ágoði sölunnar til sumarferðalags heimilis- og starfsfólks Brákarhlíðar.

Iðjustofa
Í iðjustofunni er eitthvað fyrir alla og fara verkefnin eftir færni og áhuga einstaklinga, t.d. sitja margar konur og prjóna en þær hafa ekki allir gaman að því. Þarna eru litabækur sem eru mikið notaðar til slökunnar, þær henta mörgum og myndirnar eru misjafnlega krefjandi. Það er einnig föndrað og smíðað. Aldís notar svo það sem hefur verið búið til í önnur verkefni, t.d. hefur hún klippt út myndirnar sem hafa verið litaðar og skrifað ljóð aftaná, plastað inn, og í samverustundum velur fólk sér fallega mynd og les ljóðin fyrir hina. Þau búa svo vel að það eru fyrrverandi smiðir sem mæta mikið í vinnustöfuna og þar fá þeir að blómstra. Þeir taka þátt í að skipuleggja verkefnin og leiðbeina Aldísi svo ef það þarf að kaupa skrúfur eða verkfæri. Einnig er mikið af listafólki sem gerir smáatriði á hlutina sem eru skapaðir.