Félagskvíðaröskun by

Hvað er félagskvíðaröskun?
Félagskvíðaröskun er einnig oft kallað félagsfælni og er geðsjúkdómur sem einkennist af kvíða og ótta við það að vera dæmdur á neikvæðan hátt í félagslegum aðstæðum. Fólk með félagsfælni óttast að það verði sér til skammar og í stað þess að njóta samræður hugsar það of mikið um hvernig annað fólk líti á þau. Þau óttast um að þau segi eða geri eitthvað vitlaust og forðast þess vegna félagslegar aðstæður. Þetta er algengasta kvíðaröskunin og hrjáir um 12% fólks.

Almenn einkenni
Einkennin eru fjölmörg og birtast við félagslegar aðstæður. Hér eru þau helstu sem hrjáir flesta:

Forðast oft félagslegar aðstæður.

Ótti við að vera álitað heimskt, vandræðilegt eða jafnvel leiðinlegt.

Eiga erfitt með að vera maður sjálfur.

Kvíði í samskiptum við aðra.

Félagslega einangraður.

Veldur einstaklingum kvíða við tilhugsunina um félagslegar aðstæður.

Líkamleg einkenni
Hraður hjartsláttur

Ógleði

Aukinn sviti

Hiti í andliti

Magaverkur

Skjálfi

Vöðvaspenna

Einstaklingar upplifa ofsakvíðaköst í félagslegum aðstæðum.

Kvíðaraskanir
Til eru margar tegundir kvíða, meðal annars:

Aðskilnaðarkvíði

Einstök fælni

Víðáttufælni

Almenn kvíðaröskun

og margt fleira

Ég ætla hins vegar að fjalla um félagskvíðaröskun. En manneskja sem þjáist af kvíða býr við stöðuga spennu. Einstaklingur finnur yfirleitt fyrir óöryggi og kvíðir flestum stundum. Við finnum eflasut öll fyrir kvíða en það er þó oftast í skamman tíma. Einstaklingur sem er hins vegar greindur með kvíða, finnur stöðugt fyrir honum alveg sama hvað.

Meðferðarstofnanir á Íslandi
Á Íslandi eru nokkrar stofnanir sem einstaklingar geta leitað sér meðferðar við félagskvíða. Dæmi um stofnanir sem eru með meðferðir:

Mín líða: þar getur þú fengið aðstoð við að draga úr kvíðanum með annað hvort fjarviðtali og/eða einnig farið í meðferð. Meðferðatímarnir innihalda meðal annars fræðslu, æfingar og verkefni, og spurningalista. meðferðin fer fram á netinu og þú getur haft samband hvenær sem þú villt. Meðferðin kostar 39.900kr. og þetta eru 10 viðtalstímar.

Hægt er að panta viðtalstíma hjá Kvíðameðferðastöðinni (KMS). Þar er hægt að fara í hugræna atferlismeðferð, einstaklingsviðtöl, hópmeðferð og fleira.

Litla kvíðameðferðastöðin: Það er stofnun sem er ætluð börnum og unglingum sem glíma við félagskvíða. þar er hægt að fara í mismunandi meðferðir svo sem hópmeðferð og fleira. Þar er einnig hægt að fara á fræðslu námskeið um félagskvíða. Börn á aldrinum 6-16 ára geta farið í greiningaviðtal sem kostar 18.900kr.

Aldur
Félagsfælni kemur yfirleitt snemma á ævinni eða um 11-15 ára og oftast ekki seinna en 25 ára.

Heimildir
https://asm.is/felagskvidi/

https://kms.is/felagsfaelni/

https://www.minlidan.is/fraedsla/felagskvidi/

https://skemman.is/bitstream/1946/16705/1/BS-verkefni%20%28Edda%20Sif%20Bergmann%20%C3%9Eorvaldsd%C3%B3ttir%29.pdf

Orsakir félagskvíða
Orsakir félagskvíða geta verið margar, meðal annars erfðir, fjöldskylduumhverfi eða annað. Rannsóknir hafa bent til þess að erfðir spila stóran þátt í því hvort einstaklingur greinist með félagsröskun. Það hafa verið gerðar tvíburarannskóknir og þær hafa leitt til þess að ef annar tvíburi glímir við félagskvíða eru líkur á að hinn tvíburinn taki það með sér, en það eru minni líkur að það gerist hjá tvíeggja tvíburum heldur en eineggja.
Samband foreldra og barna skiptir einnig máli. Ef að foreldri er kvíðinn í félagslegum aðstæðum eru líkur á að barnið verði það líka þar sem að börn fylgjast með og læra af þeim foreldrum/ forráðamönnum.
Félagsfælni hjá börnum og unglingum getur því miður einnig komið fram eftir neikvæða reynslu, svo sem einelti, ofbeldi eða vera hafnaður af jafnöldrum.

Meðferð
Meðferðir við félagskvíða fara fram með annað hvort lyfjameðferðum eða viðtalsmeðferðum. Það fer alveg eftir einstaklingum hvað hentar þeim. Kvíðastigveldi er greiningaraðferð til þess að mæla hversu mikill kvíðinn er. Heilbrigðisstarfsmaður eða sálfræðingur greinir þig út frá einkennum og hegðunarmynstrum. Það er hægt að fara í eftirfarandi meðferðir:

Hugræn atferlismeðferð: Í þeirri meðferð lærir þú að ná stjórn á kvíðanum með slökun og öndun, þú lærir einnig að skipta út neikvæðum hugsunum í jákvæðar.

Útsetningarmeðferð: Þar lærir þú smám saman að takast á við félagslegar aðstæður í staðin fyrir að forðast þeirra.

Hópmeðferð: Þessi meðferð hjálpar þér að læra félagslega færni og þú lærir tækni til að hafa samskipti við fólk. Það getur verið gott að fara í hópmeðferð með fleira fólki því þa finnst þér þú ekki vera ein/n.