Gay Claxton by Kristín Sigurðardóttir

Claxton gerir ráð fyrir minni athygli á efnisþætti námskrár og mat á þeim en leggur mikla áherslu á að byggja upp sjálfstæði og persónuleika nemenda.  Það segir hann er mjög áríðandi við að þroska hæfileika nemenda til náms:  Þeir þurfa t.d. að vera forvitnir , sjálfstæðir og íhugulir og kennarar þurfa að hlúa að þessum eiginleikum og breyta viðhorfi þeirra og gildum.

Gay Claxton
Hann hefur þróað kennsluleið þar sem umhverfið, framkoma og hvernig talað er við börnin er lykilatriði.  Hann byggir þetta á kenningum sínum og hún hefur verið prófuð og þróuð í 12 ár.  Hér má sjá nánar um þessa aðferð

Tvær hliðar á hugmynd Claxton
Það eru tvær aðalhliðar á hugmynd Claxtons.   Fyrri er þörfin fyrir breytingar í skólakerfinu og hin er sú jákvæða hugmynd að flestir nemendur hafi getuna til að vera betri námsmenn.  Veröldin er að breytilegt umhverfi þar sem nemendur þurfa að lifa af við óöryggi, margbreytileika tækniþróunar og flókið innra form.  Claxton segir menntun þurfa að breytast til að mæta þessum áskorunum en hann segir það ekki gerast ef fólk heldur áfram að horfa á þröngar skilgreinigar á því hvað nám er;  ef haldið er áfram að einblína á innihald frekar en framfarir, skilning framyfir færni, hæfileika frekar en þátttöku og kennslu fram yfir uppgötvun.

Kenningin er drifin áfram á því sjónarmiði að skólar undirbúi nemendur ekki nægilega vel fyrir nám út ævina í sífellt flóknari og meira ögrandi heimi.  Skólar eru uppteknari af prófum, niðurstöðum og samanburði sem hamlar nemendur í því að þróa hæfileika sinn til að læra fyrir sjálfa sig og njóta þess.  Þetta segir hann gerir nemendur ósjálfstæðari og verr undirbúna til að takast á við alvöru vandamál þar sem lausnin er ekki augljós.

Í öðru lagi segir Claxton að skv. vitsmunakenningum hafi flestir nemendur hæfnina til að verða betri nemendur ef aðstæðurnar til náms eru viðunandi, styðjandi og hvetjandi.  Hann telur vísindin nú bjóða uppá víðari skilning á því hvað felst í námi.  Sá skilningur innifelur tilfinningar, ímyndun, innsæi og upplifun, ytri verkfæri og félagslegt samfélag sem og viljan til að skilja.  Ef þessar fersku hugmyndir um nám og kennslu ná fram í stað þeirra hefðbundnu verða nemendur betur undirbúnir til að takast á við áskoranirnar sem eiga eftir að koma upp í lífi þeirra.

Claxton segir að í dag sé einblínt á tvo þætti í skólastarfi

·       Hvað á að kenna

·       Hvernig það er metið

Hans námsleið inniheldur þriðja þáttinn sem er; færni og viðhorf til náms, nemendur eru mótaðir af því hvernig þeim er kennt og hvernig er talað við þá eða til þeirra.  Þessi leikni og viðhorf fela í sér það sem Claxton kallar hæfni svo sem sköpun, þrautseigju, sveigjanleika, samúð og ímyndun, allt eiginleikar sem eru nauðsynlegir til að lifa góðu lífi í heimi í sífelldri þróun.

Gay Claxton
Hér greinir Claxton sjálfur frá hugmyndum sínum.

Heimildir:
Aubrey, K og Riley, A. (2016). Understanding and using educational theories. London: Sage

Hvers vegna Claxton
Claxton leggur áherslu á að byggja upp sjálfstæði og persónuleika nemenda, hann segir nútíma skóla ekki búa nemendur nógu vel undir líf og starf í sífellt flóknari og meira ögrandi heimi.  Hann telur mikilvægt að nemendur þrói hæfileika sinn til að læra fyrir sjálfa sig og njóta þess.  Þetta er lykilatriði í námi, að okkar mati, að geta notið þess að læra og þá er mikilvægt að börnum sé boðið uppá skemmtilegar námsleiðir sem ögra en eru þó viðráðanlegar. Í leikskólanum skiptir leikurinn höfuðmáli og er okkar aðal kennsluaðferð.  Það að bæta við leik/námi í snjalltæki eykur fjölbreytni og víðsýni nemenda á möguleika tækjanna og gefur þeim um leið þekkingu á tækninni og öryggi í notkun hennar en fari fram sem horfir er líklegt að henni haldi áfram að fleygja fram. Með tækninni berast í ómældu magni upplýsingar sem eru að misjöfnum gæðum. Nemendur þurfa að öðlast dómgreind til að vega þær og meta sem og sjálfstæði kjark og þor til að standa á sínu.