tímaverkefni 4 - padlet by Indíana Daníelsdóttir

Vatnsleysin vítamín
Vatnsleysin vítamín: B-vítamín (alls 8) og C-vítamín

B-vítamín (8 talsins) og C-vítamín eru vatnsleysanleg vítamín sem frásogast auðveldlega í smáþörmum en skiljast líka auðveldlega út um nýru (með þvagi). þau finnast víða í mat t.d. Kjöti, fiski, mjólk og heilkornum. Einnig í laufgrænu grænmeti, egg, baunir og ávextir.

B-vítamín

- B-vítamín eru mjög mikilvæg í myndun DNA og frumuskiptingu.

- Þau taka þátt í myndun rauðkorna.

- Taka öll eða flest þátt í orkuefnaskiptum.

- Það er mjög sjaldgæft að vera með skort á b-vítamínum en getur lýst sér í orkuskorti.

C-vítamín

- C-vítamín getur dregið úr myndun krabbameinsvaldandi nítrósamína í maga.

- Hjálparefni við myndun byggingarpróteina og er því nauðsynlegir fyrir sterka vefi.

- Skortur C-vítamína er sjaldgæfur og tekur u.þ.b. mánuð að þróast á C-vítamínsnauðu fæði. Blæðingar í tannholdi og undir húð, mjög sár verkur og beinbrot gróa illa, Blóðleysi og sýkingar. Geðtruflanir og þunglyndi.

fituleysin vítamín
Fituleysin vítamín: A-vítamín, D-vítamín, E-vítamín og K-vítamín

D – Vítamín

- Það skiptir miklu máli að líkaminn okkar fær nægilegt magna af D-vítamínum. Sérstaklega er mikilvægt fyrir okkur íslendinga að taka inn D – vitamin vegan þess að við fáum ekki eins mikla sól og annars staðar.

- D-vítamín geta haft almenn og jákvæða áhrif á heilsu á fólk.

- Skortur á D vítamínum getur valdið beinkröm hjá börnum og beinmeyru eða beinþynningu hjá fullorðum.

- Ef maður tekur inn of mikið af D – vítamíni getur það valdið flökurleika, lystarleysi, pirringi og fleira.

A-vítamín

- A-vítamín eru t.d. í lifri, smjöri, mjólk, eggjarauðum, lýsi og fleira.

- Einkenni á skorti A – vítamíns er t.d. Náttblinda sem er fyrsta einkenni, Blinda, Veldur blindu hjá meira en hálfri milljón barna á forskólaaldri á hverju ári, aukin sýkingarhætta og keratín myndun í húð.

- Ofneysla A-vítamína: Flökurleiki, uppköst, kviðverkir, niðurgangur, Lystarleysi, þyngdartap Beinverkir og fleira.

- Of mikið magn á fyrstu vikum meðgöngu getur leitt til fósturskaða.

E-vítamín

- E-vítamín er hægt að finna t.d. í flestum jurtaolíum og matvælum unnum úr þeim, einnig í grænu laufmiklu grænmeti, heilu korni, lifur, hnetum og fræjum.

- Skortseinkenni: Rof á rauðum blóðkornum, truflun á samhæfingu vöðva og viðbrögðum, Áhrif á sjón og tal. Ekki eins eitrað og önnur fituleysin vitamin.

- Styrkir frumuhimnu og ver gegn sindurefnum

- Verndar lungu gegn oxunar skemmdum af völdum umhverfis

- mengunar Getur hjálpað til við að vernda DNA gegn skemmdum

- Getur hjálpað til við að vernda fitu og LDL gegn oxun

- Hjálpar til við verndun augna, lifrar, brjósta- og vöðvavefs.

- Hjálpar til við að viðhalda β-karótín andoxunarvirkni

K-vítamín

- Mikilvægt hlutverk í blóðstorknun og er virkun nokkurra blóðstorkupróteina. Hjálpar líka til við beinmyndun og bakteríur í meltingarvegi mynda K-vítamín.

- K-vítamín eru í Grænu grænmeti og jurtaolíum. Hætta á skorti ef fituupptaka er skert eða við langvarandi sýklalyfjameðferð

- Einnig er nýburum alltaf gefið K-vítamín við fæðingu

Steinefni
Steinefni: natríum, kalk, klór, kalíum, fosfór, magnesíum og brennisteinn

Steinefni (aðalsteinefni) eru lífsnauðsynleg ólífræn efni sem finnast í líkamanum. hlutverk steinefna geta verið alls konar og fer það eftir efnum. til dæmis taka þátt í vatnsjafnvægi, taka þátt í sýru-basa hvörfum, mikilvæg við taugaboð, vöðvasamdrátt og beinheilsuna, taka þátt í emsímvirkni og eru hlutar annarra próteina eða hormóna.

helsta steinefni líkamans og þá er verið að tala um sem við þurfum að innbyrgða, er Kalk. kalk er ca 2% af mannslíkamanum og er í beinum, tönnum og sumstaðar í blóði og vefjum líkamans. Þegar skortur kalks er í líkamanum þá yfirleitt kemur það í aðeins einni birtingarmynd sem er beinþynning. kalkgjafar eru t.d. blómkál, rósakál, rófur, grænkál, spergilkál, möndlur, sesamfræ, spínat, sætar kartöflur o.s.frv.

Magnesíum tekur þátt í beinmyndun. Í um 50% Mg er að finna í beinunum. Magnesíum finnst mest í jurtaríkinu. Það er ekki algengt að fá Magnesíum skort og sérstaklega hjá fólki sem borðar fjölbreytta fæðu. En hinsvegar er Magnesíum skortur algengur hjá fólki sem glímir við alkólisma, alvarlegan próteinskort eða langvarandi uppköstum/niðurgangi hjá fólki. einnig er hægt að fá eitrun en þá gerist það vegna of mikillar inntöku fæðubótarefnis.

Natríum viðheldur eðlilegu vökvajafnvægi með hjálp annarra efna. yfirleitt má finna natríum í mati með miklu matarsalti t.d. pakkarmat, unnum kjötvörum og svo mörgu öðru.

Kalíum tekur líka þátt í að viðhalda eðlilegu vökvajafnvægi. má segja að "minna unnið vara = meira kalíum (svo einmitt öfugt natríum)

Klór er líka eitt af þeim efnum sem tekur þátt í að viðhalda vökvajafnvægi og er nauðsynlegt við meltingu.

fosfór er mjög víða í mat og þá sérstaklega próteinríkum mat. eitt helsta steinefni í beinum. og tönnum.

Brennisteinn er í raun ekki notað sem eitt og sér næringarefni. þess vegna er líka skortur og eitrun ekki þekkt. en hægt er að finna brennistein í allskyns mat og drykkjum

snefilefni
Snefilefni: Járn, sink, joð, seven, kopar, mangan, flúor, króm og mólýbden.

snefilefni eru lífsnauðsynleg ólífræn efni.
Til að uppfylla snefilefna þörfina hjá okkur þurfum við aðeins að vera með fjölbreytt mataræði.

Járn er mjög þekkt snefilefni og er svona það helsta snefilefnið sem fólk kannast við. það hefur með sér í för einn algengasta skortinn sem er járnskortur. Járnskortur er mjög algengur og ennþá algengari hjá kvennmönnum vegna tíðahringsins og allskyns annarra orsaka. daglegt járntap er meira hjá þeim og þess vegna þurfa flest allar konur að taka inn meira járn. Einnig hefur járnskortur mjög mikil áhrif á okkur öll en getur komið fram í allskonar myndum t.d. minna viðnám gegn sýkingum, lélegt kuldaþol, fölleiki, bláleit augnhvíta, slen og þreyta. Járn má finna í rauðu kjöti og hvítu kjöti, soðnu eggi og nýrnabaunum.

Joð má finna í sjávarfangi og neytt úr mjólkurmat.

Sink finnst í próteinríkum mat. sink hefur mörg lykil hlutverk t.d. mikilvægt fyrir vöxt barna, mikilvægt í ónæmiskerfinu, áhrif á hegðun og lærdómsgetu og o.s.fv.

Selen er svo kallað andoxunarefni sem vinnur í samvinnu við E-vítamín. það er mjög áhugavert að Selen skortur tengist hjartasjúkdómi í kínverskum börnum. En hægt er að fá eitrun við of mikla inntöku þessa efnis. Kopar er snefilefni. við þurfum ekki mikið að kopari í líkamann ráðlagður daglegur skammtur þess er 0,9 mg á dag

vatn
vatn er lífsnauðsynlegt næringarefni. Má segja að það sé lífsnauðsynlegt því vatn hefur mörg hlutverk í líkama mannsins og einnig lífvera yfir höfuð. Vatn hefur ýmis konar hlutverk sem það gegnir t.d. flytja næringu og úrgang, tekur þátt í efnahvörfum, öll efnaskipti fara fram í vatnslausn, stuðla að stöðugum líkamshita og kælir þá líkamann við áreynslu, viðhalda  rúmmáli blóðs og réttu sýrustigi svo til að smyrja liðamótin. líkamsþyngdin okkar byggist á því að um 50-75% af þyngdinni okkar er vatn. mér finnst einnig áhugavert að vatnsskortur er ein algengasta dánarorsökin