Skólastefna Bláskógabyggðar - fundargerðir stýrihóps by Ingvar Sigurgeirsson

Fyrsti fundur stýrihóps um endurskoðun skólastefnu fyrir Bláskógabyggð, í Aratungu 13. desember 2023.
Á fundi

Amelía Dröfn Hákonardóttir, fulltrúi nemenda

Anna Greta Ólafsdóttir, tilnefnd af skólanefnd

Áslaug Alda Þórarinsdóttir, formaður skólanefndar, tilnefnd af sveitarstjórn

Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri (sat fundinn til kl. 16.00 – mun ekki sitja fundina nema hún verði sérstaklega til kölluð)

Sólmundur M. Sigurðarson, tilnefndur af sveitarstjórn

Karl Hallgrímsson, fulltrúi stjórnenda grunn- og leikskóla

Dagný Rut Gretarsdóttir, fulltrúi kennara

Sveitarstjóri setti fundinn og nefndi sérstaklega að í hópinn vantaði fulltrúa foreldra (þó margir í hópnum væru vissulega foreldrar). Þá vantaði rödd eða raddir af leikskólastiginu.

Fundarmenn kynntu sig og Ingvar fór yfir það hvernig skólastefnuverkefni hafa verið unnin á vegum Skólastofunnar (fyrirtækis hans og Lilju M. Jónsdóttur), sjá hér: https://skolastofan.is/wp-content/uploads/2023/12/Skolastefnuverkefni.pptx

Skipst var á skoðunum um forsendur skólastefnunnar. Eftirfarandi atriðum var haldið til haga (bætið endilega á listann).

Áríðandi er að nota tækifærið og greina helstu áskoranir og  sóknarfæri í skólamálunum í tengslum við gerð skólastefnunnar.

Viðhorfa allra hagaðila verði leitað og athuga þarf:

Þessi verði gætt að kanna viðhorf leikskólabarnanna og að nemendur í grunnskólnum geti óhindrað lýst viðhorfum sínum (ekki bara á fundum, heldur einnig með nafnlausum könnunum).

Ákveða þarf hvernig viðhorfa foreldra verði aflað. Hugsanlega tveir fundir (Laugarvatn, Reykholt).

Nýta þau gæðaviðmið fyrir skólastarfi  sem þróuð hafa verið af Menntamálastofnun og Reykjavíkurborg, sjá hér:

Huga þarf að samstarfi skólanna og samfellu á milli skólastiga.

Líta þarf til fjölmenningar og nemenda sem annað móðurmál en íslensku – og til móttökuáætlanna. Bent var á að dæmi væru um erlend börn á leikskólaaldri sem ekki gengju í leikskóla.

Efling leikskólastigsins þarf að vera forgangsverkefni. Þar er mönnunarvandi. Málörvun þarf að vera í brennidepli (vísað var til þróunarverkefna sem Ásthildur Snorradóttir hefur leitt).

Frístundamálin.

Húsnæðismálin; byggingar eru komnar til ára sinna og hannaðar með hliðsjón af „gamaldags“ kennsluháttum. Húsnæðið er um margt óhentugt.

Skólarnir eru báðir grænfánaskólar og heilsueflandi skólar – og líta þarf til heimsmarkmiðað Sameinuðu þjóðanna.

Mötuneytin.

Sveitarfélagið hefur stutt vel við skólana.

Skólaaksturinn.

Samræming á starfstíma leik- og grunnskóla.

Niðurstaða:

Við það er miðað að stefnan nái til alls skólastarfs í sveitarfélaginu; leik-, grunn- og tónlistarskóla og einnig til félags- og tómstundastarfs, sem og skólaþjónustu. Áhersla verður lögð á að stefnuskjalið verði hnitmiðað og að stefnan verði lifandi tæki, sem notað verði sem gátlisti til að meta þróun skólatarfsins.

Ýmis gögn eru fyrirliggjandi sem styðjast má við, m.a. niðurstöður Skólapúlsins og nýlegt ytra mat á vegum Menntamálastofnunar.

Safna þarf saman á einn stað þeim stefnumótunarskjölum sem tengjast skólastefnunni.

Ákvörðun um hvernig nákvæmlega verður unnið að gerð skólastefnunnar verður tekin á næsta fundi hópsins, sem verður í Aratungu mánudaginn 8. janúar kl. 15.00-16.30.

Við það er miðað að hópurinn hittist einu sinni í mánuði og að stefnumótunarskjal verði til ekki seinna en í vor.

Sett verður upp vefsíða (Padlet) fyrir hópinn.

Heimaverkefni: Að skoða skólastefnur annarra sveitarfélaga og móta sér skoðun á því hvaða framsetningarform hentar best. Einnig að huga að því í hvaða flokkum ákvæði skólastefnunnar verða settar fram.

Annar fundur stýrihóps um endurskoðun skólastefnu fyrir Bláskógabyggð í Aratungu 8. janúar 2024
Mættir: Allir nema Sólmundur sem hafði boðað forföll.

Lagt var upp með þrjú meginviðfangsefni:

1.        Að ákveða hvernig unnið skyldi að stefnunni (fundur, samráð)?

2.        Að skiptast á skoðunum um framsetninguna og kanna samstöðu um form.

3.        Að ákveða helstu flokka (kafla) skólastefnunnar.

Ákveðið var að stýrihópurinn tæki ákvörðun um kaflaskiptingu skólastefnunnar áður en farið væri í umræður við nemendur, starfsfólk og íbúa. Talið er eðlilegt að verði haldnir íbúafundir verði þeir tveir, annar í Reykholti og hinn á Laugarvatni.

Ólíkar hugmyndir eru uppi innan hópsins um það hvernig best sé að setja stefnuna fram. Nokkrir hallast að því að leggja núverandi skólastefnu til grundvallar og endurskoða hana með hliðsjón af því hvernig skólamál hafa þróast frá því að hún var sett. Aðrir hallast að annarri framsetningu, t.d. að hafa hana meira  í anda stefnumiðaðs árangursmats.

Mismunandi skoðanir eru líka á því að hvaða marki taka eigi fram í skólastefnunni í hvaða umbætur eigi að ráðast. Sumir telja fullnægjandi að setja fram gæðaviðmið fyrir helstu þætti.

Áhugi er á að setja stefnuna fram með myndrænum hætti.

Rætt var um helstu kafla skólastefnunnar og náðist ekki lending í því að ákveða þá. Það verður meginviðfangsefni á næsta fundi.

Rifjuð var upp skilgreining á tilgangi skólastefnu úr handbók Sambands íslenskra sveitarfélaga:

Skólastefna sveitarfélags er leiðarvísir um skólastarf í sveitarfélaginu. Gerð skólastefnu snýst um að skilgreina leiðir til að sveitarstjórnarfólk, stjórnendur og starfsfólk skólanna og aðrir hagsmunaaðilar geti rækt hlutverk sitt, unnið í samræmi við gildi og náð þeirri framtíðarsýn sem stefnt er að. Í skólastefnunni felst að dregin er fram sérstaða sveitarfélagsins og þær áherslur í skólamálum sem íbúar hafa komið sér saman um. Stefnan sjálf breytir ekki skólunum heldur myndar hún grundvöll fyrir ákvarðanatöku og skýrir hvaða leiðir ákveðið er að fara til að ná ætluðum árangri. (Björk Óttarsdóttir, 2010).

Næsti fundur var ákveðinn miðvikudaginn 31. janúar, kl. 15.00-17.00.

Þriðji fundur stýrihóps um endurskoðun skólastefnu fyrir Bláskógabyggð í Aratungu 21. febrúar 2024
Mættir: Allir mættir

Fyrir fundinn fundaði Ingvar með nýjum meðlimum, þeim Hörpu Sævarsdóttur (sem leysir Áslaugu Öldu af hólmi), Jónu Sigríði Guðmundsdóttur (fulltrúi foreldra og einnig kennari við Reykholtsskóla) og Lieselot Simoen, leikskólastjóra (fulltrúi leikskólastigsins).

Í fundarboði var lögð áhersla á að taka þyrfti þessar ákvarðanir á fundinum:

Á að byggja á núverandi stefnu og endurskoða hana eða semja nýja?

Eigum við (stýrihópurinn) að skrifa stefnuna og bera hana undir hagaðila eða eigum við að ræða fyrst við þá og endurskoða eða semja með hliðsjón af því sem út úr þeim viðræðum kemur?

Varðandi fyrri spurninguna var bent á að tilmæli væru frá sveitarstjórn um „að byrja að nokkru leyti upp á nýtt“; móta nýja stefnu. Markmið þurfi að vera skýr, sem og leiðarljós og leiðir.

Bent var á að tengja stefnuna betur við staðbundna þætti. Stefnan frá 2018 væri hugsanlega of almenn (gæti verið fyrir hvaða sveitarfélag sem er).

Niðurstaðan varðandi seinni spurninguna var að stýrihópurinn myndi fyrst gera nokkurs konar beinagrind að stefnunni (flokkar, kaflar), síðan yrði efnt til funda með starfsfólki, nemendum og íbúum og í framhaldi af því samin drög að stefnunni með hliðsjón af niðurstöðum fundanna.

Byrjað var á að taka saman yfirlit (sjá hér). Stefnt er að því að ljúka við það á næsta fundi sem verður mánudaginn 11. mars í Aratungu, kl. 16.00. Jafnframt að gera tímaáætlun fyrir stefnumótunarvinnuna. Eins og nú er virðast líkur á því að verkinu verði ekki lokið fyrir vorið).

Eftirfarandi var einnig skráð:

Stefnan þarf að vera raunhæf.

Framsetning þarf að vera aðgengileg („Ekki þungt og viðamikið plagg“). Stefnan þarf að sýna vel allar megináherslur.

Þurfum að ávarpa fjölmenninguna.

Áhersla á umhverfismennt þarf að koma fram: Skólanir eru grænfánaskólar, áhersla er lögð á heimsmarkmiðin, útiveru og tengsl við heimabyggð.

Jafnrétti og jafnræði þurfa að vera áhersluatriði.

Hafa menntastefnuna til 2030 til viðmiðunar ... (hugsanlega má nota kaflaskiptinguna úr henni).

Bent á Árborgarstefnuna (óbirt) sem gæti verið til fyrirmyndar.

Hafa má góða lýsingu skólunum og  áherslum þeirra í stefnuskjalinu.

Á stefnan að taka á símamálunum? Mætti ræða á fundum um stefnuna.

Á að víkja að nauðsyn úrbóta varðandi aðstöðu til kennslu (t.d. til náttúrufræðikennslu)? Nefnt var að Reykoltsskólabyggingin væri „barn síns tíma“

Hvernig er hægt að rjúfa faglega einangrun kennara?

Hvernig er best að hafa skólaþjónustu?

Hvernig á að haga samstarfi skólanna?

Móta þarf stefnu um skólaakstur.

Mötuneytin („eldað frá gunni“ eða ...?)

Heimasíða stýrihópsins

Fjórði fundur stýrihóps um endurskoðun skólastefnu fyrir Bláskógabyggð í Aratungu 11. mars 2024
Allir mættir nema Sólmundur sem hafði boðað forföll. Anna Gréta kom þegar nokkuð var liðið á fundinn. Harpa tók þátt í fjarfundi.

Eftirfarandi ákvarðanir voru teknar:

IS tók að sér að fella saman hugmyndir frá síðasta fundi að grind fyrir stefnuna og tillögur Önnu Grétu.,

Næsta skref er að IS heimsæki skólana og eigi samtal við stjórnendur, starfsfólk, nemendur (grunnskólanna) og foreldra. Eftirfarandi spurningar verði lagðar til grundvallar: Hvert er mat ykkar á stöðu skólamála? Hverjir eru helstu styrkleikar? Hvað er brýnast að bæta? Hver eru helstu sóknarfæri? Hvernig viljið þið sjá skólana þróast í framtíðinni? Önnur mál?

Ekki væri ástæða til að ræða skólaskipan í sveitarfélaginu. Hins vegar væri áríðandi að ræða samstarf skólanna.

Sérstaða skólanna verði dregin fram í stefnunni.

Í stefnunni þarf að víkja að kröfum um skólaþjónustu, m.a. þyrfti að leggja áherslu á kennsluráðgjöf (kennslufræðilega ráðgjöf).

Fjalla þarf um málefni ungmennaráðanna.

Hafa þarf sterka fjölmenningaráherslu.

Einnig þetta: Ræða þarf að hvaða marki vikið verður að skólaaksturs- og símamálum.

Næsti fundur ákveðinn kl. 16.00, þriðjudaginn 16. apríl. Gert er ráð fyrir löngum vinnufundi, enda liggi þá fyrir niðurstöður funda með starfsfólki, nemendum og foreldrum.

Fimmti fundur stýrihóps um endurskoðun skólastefnu fyrir Bláskógabyggð í Aratundu 16. apríl 2024
Allir mættir nema Amelía.

Fyrir fundinum lágu niðurstöður fundanna sem Ingvar og Lilja hafa haldið með nemendum, foreldrum og starfsfólki skólanna skólanna, sjá hér: https://padlet.com/ingvarsigurgeirsson/skolastefna_blaskogabyggd

Mat þeirra er að fundirnir hafi gengið vel, þrátt fyrir heldur litla mætingu á fundi fyrir foreldra. Fundir með nemendum hefðu gengið sérstaklega vel.

Einnig var lögð fram samantekt á niðurstöðum um þau atriði sem vænta má að fari inn í skólastefnuna, sjá hér: https://padlet.com/ingvarsigurgeirsson/meginkaflar_skolastefnunnar

Farið var yfir listann á fundinum og eftirfarandi atriðum haldið til haga:

Víkja þarf að matnum, að hann sé í boði alla daga vikunnar, sé hollur og eldaður í heimabyggð og úr hráefni úr heimabyggð eftir því sem kostur er.

Gera þarf yfirlit um það sem gera þarf í húsnæðismálum og raða endurbótum í forgangsröð.

Ákvæði um skólaakstur: Þess sé gætt í útboðum að gerðar séu ítrustu gæðakröfur (fjórhjóladrif, bílbelti og öryggismál). Þá þurfa að vera til verkferlar ef út af bregður (slys, tafir).

Ákvæði verði um að útikennsla verði efld enn frekar.

Vinna þarf markvisst að því að efla skilning á mikilvægi leikskólastigsins og vinna að jákvæðum viðhorfum til þess.

Ræða þarf fyrirkomulag skólaþjónustunnar, hvort betur henti að taka þátt í samlagi um hana eða í sveitarfélaginu og  kaupa hana í verktöku.

Samræmi sé í þjónustu skólanna, hvað varðar þjónustustig, óháð búsetu.

Ítarlega var rætt um hvort fella ætti meira saman starfstíma leik- og grunnskóla, sem og um sveigjanleika í skólaskilum. Eiga elstu leikskólabörnin og yngstu grunnskólabörnin að vera meira saman (sbr. Laugarvatn), á að bjóða foreldrum að fimm ára börnin séu grunnskólamegin, alveg eða t.d. frá áramótum?

Hafa þarf ákvæði um fjölmenningu, inngildingu, móttökuáætanir og virka stoðþjónustu.

Sveitarfélagið verður að leita leiða til að laða að fagmenntað starfsfólk að skólunum, og horfa þar sérstaklega til leikskólastigsins (akstursstyrir, húsnæðisfyrirgreiðsla).

Rætt hvernig fjalla ætti um áherslu á íslenkst mál – setja þyrfti skólunum málstefnu.

Einnig var eftirfarandi rætt:

Í stýrihópinn eru mun fleiri nær Reykholti en Laugarvatni. Þess þarf að gæta vel að það hafi ekki áhrif á stefnumótunina.

Spurt var hvort til greina hefði komið að fá allt skólahús HÍ til afnota fyrir Bláskógaskóla, Laugarvatni.

Spurt var um notkun Álfaborgar á íþróttahúsi og hvort

Til greina kemur að hafa í inngangi skólastefnunnar lýsingu á skólunum og áherslum þerra (kynningu).

Á að bjóða foreldrum val milli leikskóla eða greiðslu fyrir að vera með yngstu börnin heima.

Samþykkt var að Ingvar myndi nú hefjast handa við að taka saman drög að ákvæðum í skólastefnuna og að Anna Gréta og Karl yrðu honum innan handar.  Næstu fundur ákveðinn þriðjudaginn 21. maí, kl. 16.00 í Aratungu.

Sjötti fundur stýrihópsins í Aratungu 21. maí. 2024
Allir mættir nema Amelía og Anna Gréta. Dagný tók þátt í seinni hluta fundarins.

Í byrjun uppsetning á skólastefnu Skeiða- og Gnúpverjahrepps skoðuð, en um hana sá Anna Gréta. Fundarmenn voru mjög hrifnir af því hvernig stefnan hefur verið sett fram.

Skoðuð var hugmynd Önnu Grétu um framsetningu á skólastefnunni þar sem gert er ráð fyrir mun nákvæmari útfærslu og skilgreindar forsendur, tímamörk, mat og ábyrgð.

Ákveðið var að ráðast ekki að sinni í svo ítarlega útfærslu, en leggja þessa hugmynd fram með skilum á stefnunni. Anna Gréta, Ingvar og Karl ganga frá því dæmi (Námsumhverfi og aðbúanður).

Farið var yfir stefnudrögin sem fyrir lágu lið fyrir lið, orðalagi breytt á nokkrum stöðum, auk viðbóta. Gengið hefur verið úr skugga um að samræmi sé á milli ákvæðanna í skólastefnunni og annarrar stefnumörkunar Bláskógabyggðar (forvarnar- og lýðheilsustefnu, Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, Heilsueflandi Bláskógabyggð).

Næsti fundur verður mánudaginn 3. júní, í Aratungu kl. 16.00 og er gert ráð fyrir því að það verði lokafundur.

Gert er ráð fyrir því að allir í stýrihópnum rýni drögin fyrir fundinn og setji inn athugasemdir eftir því sem þeir telja þörf á.

Sjöundi fundir stýrihópins - fjarfundur 3. júní 2024
Allir mættir nema Amelía og Sólmundur

Farið var yfir drög að skólastefnunni og nokkrar athugasemdir gerðar sem tillit var tekið til.

Bent var að að í skólastefnunni þyrftu að vera ákvæði um geðrækt og tilfinningahæfni. Ingvar gerir tillögu um framsetningu á þessu (sjá í drögunum).

Ákveðið var að allir læsu stefnuna næstu daga og sendu ábendingar til Ingvars Önnu Grétu og Karls fyrir fimmtudag. Þau fara yfir þær athugasemdir sem berast og gera tillögur um hvernig út þeim verður unnið.

Ingvar mun leggja til að leitað verði til Önnu Grétu um að setja stefnuna upp.