Með gleðina að leiðarljósi: Kveikjum neistann - þróunarverkefni í Grunnskóla Vestmannaeyja by Ingvar Sigurgeirsson

Erla Signý Sigurðardóttir
Erla Signý Sigurðardóttir er umsjónarkennari í 1. bekk í Grunnskóla Vestmannaeyja. Hún lauk BA prófi í uppeldis- og menntunarfræði árið 2012 og M.Ed.-prófi í sérkennslufræði og skóla margbreytileikans árið 2020 við Háskóla Íslands. Hún bætti einnig við sig námskeiðum af námsleiðinni kennslufræði yngri barna í grunnskóla. Erla Signý hefur unnið í GRV í nokkur ár, fyrst sem stuðningsfulltrúi og nú sem kennari. Henni fannst Kveikjum neistann verkefnið strax mjög spennandi og er ánægð að hafa fengið tækifæri til þess að taka þátt í því.

Erla Signý Sigurðardóttir og Herdís Rós Njálsdóttir: Kveikjum neistann ...
Þær Erla og Herdís segja frá helstu áherslum í rannsókninni, hvaða breytingar voru gerðar á stundatöflum barnanna, ræða reynslu kennara á gólfinu og mat á árangrinum þetta fyrsta ár.

Herdís Rós Njálsdóttir
Herdís Rós er læsisfræðingur og starfar sem sérkennari í Grunnskólanum í Vestmannaeyjum. Hún lauk B.ed. námi í kennslufræðum 2007 með áherslu á stærðfræðikennslu. Eftir að hafa starfað í stuttan tíma í Grunnskóla Vestmannaeyja hóf hún aftur nám í Háskóla Íslands og lauk M.Ed. gráðu vorið 2014 með áherslu á mál og læsi. Herdís kom aftur til starfa hjá GRV veturinn 2014-2015 og hefur starfað þar síðan. Fyrst sem umsjónarkennari og svo sem sérkennari bæði á mið- og yngsta stigi. Þegar Hermundur Sigmundsson prófessor kom með kynningu á Kveikjum neistann verkefninu fannst henni nálgunin mjög spennandi. Hún er spennt og þakklát fyrir að fá tækifæri til að taka þátt í verkefninu.

Upplýsingar um verkefnið Kveikjum neistann

Markmið verkefnisins
Að 80% nemenda séu fulllæsir við lok 2. bekkjar.

Unnið verði með réttar áskoranir miðað við færni og lestraráhugi skapaður með lestri góðra bóka.

Áhersla á markvissa kennslu lesskilnings svo nemendur geti lesið sér til gagns.

Að nemendur verði framúrskarandi í skapandi skrifum og framsögn.

Að nemendur kunni samlagningu, frádrátt, margföldun og deilingu við 12 ára aldur. Þeir öðlist síðan kunnáttu og færni í öðrum þáttum stærðfræðinnar í 8.-10. bekk .

Að nemendur öðlist ástríðu fyrir náttúrufræði/umhverfisfræði.

Að nemendur bæti hreyfifærni, hreysti og einbeitingu.

Grunnkenningar verkefnisins
Endurtekningin skapar meistarann (Edelman)

Markviss þjálfun hvers nemanda og eftirfylgni er lykill að færni og þróun þekkingar. Jákvæð styrking er þar í lykilhlutverki (Ericsson)

Börn verða að fá réttar áskoranir miðað við færni til að komast í flæði en þannig ná þeir frábærum árangri (Csikszentmihalyi)

Hugarfar grósku, ástríðu og þrautseigju einkennir starfsemi skólans. Þeim viðfangsefnum er flaggað sem kveikja áhuga hjá hverjum nemenda (Dweck, Duckworth)

Skapandi skrif er mikilvægt þema öll námsárin

Lyklar verkefnisins
Áhersla á lestur, stærðfræði, náttúrufræði, hreyfingu og áhugahvöt

Lykill 1: Læsi ‘best practice’. Notuð verður ‘bókstaf-hljóða aðferð/hljóðaaðferð’. Þegar læsi er náð koma áskoranir miðað við færni, s.s. lestur bóka, lesskilningur, textagerð, skapandi skrif og munnleg framsögn.

Lykill 2: Grunnþættir stærðfræðinnar festir í sessi áður en kemur að öðrum þáttum. Áhugi og ástríða fyrir náttúrufræði. Áhersla á verkleg (hands on) verkefni.

Lykill 3: Hugarfar, ástríða, þrautseigja, tilgangur. Vinna markvisst frá 1. bekk með þessa þætti.

Lykill 4: Efla hreyfingu. Jákvæð áhrif á ró/einbeitingu/sjálfsmynd/hreyfifærni/hreysti.

Lykill 5: Þjálfunartíminn. Allir fá áskoranir miðað við færni í grunnfögum. Efla færni/þekkingu.

Lykill 6: Ástríðutíminn. Nemendur fá val um skapandi fög: Tónlist/raftónlist, myndlist, dans/leiklist/framsögn, skák o.s.frv.

Ný nálgun
Lagt var upp með að breyta uppbyggingu skóladagsins hjá 1. bekk. Og fyrsta skrefið var að breyta stundatöflunni og einfalda skipulag skóladagsins.

Dagurinn er byggður þannig  upp að 3x í viku byrja nemendur í íþróttum. Þeir mæta í skólann í samveru í 20 mínútur og fara svo í íþróttir. Rannsóknir hafa sýnt að hreyfing snemma að morgni eykur úthald og einbeitingu.

Mánudaga og föstudaga er hreyfing tekin um miðjan morgun.

Grunnfög ( íslenska, stærðfræði, samfélags - og náttúrugreinar) eru kennd fyrri hluta dags. Rétt fyrir hádegi taka við þjálfunartímar þar sem nemendur fá verkefni við hæfi, áskorun miðað við færni. Nemendum er skipt í 4 mismunandi námshópa eftir stöðu þeirra í námi. Metið út frá skimunarprófum.

Eftir hádegi 3x í viku eru ástríðutímar, þar sem nemendur fara í heimilisfræði, myndmennt, textíl, tónlist og smíði. Einnig verður boðið upp á forritun og jafnvel skák.

Ástríðutímar eru stýrt val sem þýðir að nemendur geta oft valið um hvaða tíma þeir sækja, eftir áhugasviði. Þó allir eigi að prufa allt á skólaárinu.

Smellið á myndina til að skoða yfirlit um málstofur og vinnusmiðjur: