Koffín - Hópur 4 by Sigridur Inga Rúnarsdóttir

Aldís Ásta Heimisdóttir

Arna Kristín Einarsdóttir

Ársól Eva Birgisdóttir

Berglind Hauksdóttir

Berglind Rós Ágústsdóttir

Erla Salome Ólafsdóttir

Gabríela Auður Hákonardóttir

Júlía Rún Rósbergsdóttir

Sigríður Inga Rúnarsdóttir

Koffín hefur örvandi áhrif á líkamann, æðar líkamans víkka, hjartslátturinn verður örari, blóðflæði eykst til líffæranna, það hefur áhrif á öndunarmiðstöðvar líkamans, örvar meltingu og þvagmyndun. Ef einstaklingur drekkur of mikið magn af koffíni getur það haft óæskileg áhrif á líkamann það er að segja þá getur hann farið að upplifa skjálfta, hjartsláttartruflanir, svima, svefntruflanir og jafnvel höfuðverk. Það er þó einstaklingsbundið hversu viðkvæmt fólk er fyrir koffíni, þó eru rannsóknir sem sýna fram á að ef einstaklingur drekkur fleiri en 4 kaffibolla á dag eða meira en 400 mg af koffíni þá eykst hættan á skaðlegum áhrifum. Börn, ófrískar konur og aldraðir eru viðkvæmust fyrir áhrifum koffíns. Ófrískar konur og þær með börn á brjósti ættu ekki að neyta meira en 200 mg af koffíni á dag. Börn og unglingar ættu ekki að neyta meira en 2,5 mg/kg, sem gefur okkur það að barn sem vegur 20 kg ætti ekki að neyta meira magns en 50 mg en til samanburðar inniheldur ½ l af kóladrykk 65 mg koffíns (Matvælastofnun, 2020).

Breda, J. J., Whiting, S. H., Encarnação, R., Norberg, S., Jones, R., Reinap, M. og Jewell, J. (2014). Energy drink consumption in Europe: A review of the risks, adverse health effects, and policy options to respond. Frontiers in Public Health, 2. 1-5. https://doi.org/10.3389/fpubh.2014.00134

Coffee cherries. [Kaffiber í tré]. Kahawa estate Coffee. https://kahawaestate.com.au/coffee-process/red-cherries2-process/

Embætti landlæknis. (2019). Mataræði og neysla orkudrykkja. https://www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item37451/Talnabrunnur_Juni_2019.pdf

Embætti landlæknis. (2010, janúar). Mikilvægt er að fylgjast með koffínneyslu barna og unglinga.

https://www.landlaeknir.is/umembaettid/greinar/grein/item14677//Mikilvaegt-er-ad-fylgjast-vel-med-koffinneyslu-barna-og-unglinga

Embætti landlæknis. (2019). Upplýsingar um orkudrykki. https://www.landlaeknir.is/um-embaettid/greinar/grein/item38403/upplysingar-um-orkudrykki

European Commission. (2003). Opinion of the Scientific Committee on Food on Additional information on “energy” drinks. https://www.mast.is/static/files/Uploads/document/Skyrslur/opinionscientificcommitteeenergydr0503.pdf

Fittness. (2020, febrúar). Hvað má drekka mikið af kaffi?

https://fitness.is/hvad-ma-drekka-mikid-af-kaffi/

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins. (2021). Orkulaus með tannkul - tilefni til aðgerða. https://www.heilsugaeslan.is/um-hh/frettasafn/stok-frett/2021/01/29/Orkulaus-med-tannkul-tilefni-til-adgerda/

Heilsuvera. (e.d.) Orkudrykkir. https://www.heilsuvera.is/efnisflokkar/naering/orkudrykkir/

Jóhanna Ingvarsdóttir. (2007, 19. apríl). Koffínið hefur mismikil áhrif á fólk. Morgunblaðið.

https://www.mast.is/static/files/Uploads/document/itarefni/Zulema-koffin_19.april2007.pdf

Lyfja. (e.d.). Hvaða áhrif hafa orkudrykkir á svefn?

https://www.lyfja.is/fraedsla/fraedslugreinar/lifum-heil/hvada-ahrif-hafa-orkudrykkir-a-svefn

Matvælastofnun. (2021, maí). Orkudrykkir. https://www.mast.is/is/neytendur/faedubotarefni-og-orkudrykkir/orkudrykkir#itarefni

Matvælastofnun. (2020). Áhrif koffíns. https://www.mast.is/is/neytendur/mataraedi/ahrif-koffins#

Matvælastofnun. (2020). Neysla ungmenna á orkudrykkjum gefur tilefni til aðgerða. https://www.mast.is/is/um-mast/utgefid-efni/skyrslur/neysla-ungmenna-a-orkudrykkjum-gefur-tilefni-til-adgerda

Petre, A. (2020).What Is Caffeine, and Is It Good or Bad for Health? Healthline. https://www.healthline.com/nutrition/what-is-caffeine#how-it-works

Valgerður Árnadóttir. (2020). Neysla koffíndrykkja hefur aukist mikið. https://www.ruv.is/frett/2020/06/04/neysla-koffindrykkja-hefur-aukist-mikid

Neysla á koffíni hefur stóraukist á undanförnum árum, sérstaklega meðal unga fólksins í formi orkudrykkja. Víða er hægt að finna það í umheiminum, til að byrja með finnst það í náttúrunni, t.d. í plöntum, kaffibaunum, te og kakóbaunum (Embætti landlæknis, 2010)
Fólk sækist í koffín til þess að minnka þreytu og slen og til að auka einbeitingu, en til þess að ná þessum áhrifum fram þarf að passa að neyta koffíns í hófi. Ofneysla koffíns getur valdið óæskilegum aukaverkunum, t.d. kvíða, eirðarleysi, skjálfta, óreglulegum hjartslætti, svefnvandamálum, höfuðverk, mígreni og of háum blóðþrýsting. Þar að auki kemst koffín auðveldlega í gegn um fylgju og getur aukið líkur á fósturmissi og of lágri fæðingarþyngd (Petre, A., 2020).
Þegar koffín er neytt innan hóflegra marka eykur það virkni dópamíns og adrenalíns sem getur valdið betri heilastarfsemi og bætt hugarástand. Rannsóknir hafa m.a. sýnt fram á að eftir koffínneyslu sýnir fólk fram á aukna árverkni, bætt skammtímaminni og styttann viðbragðstíma (Petre, A., 2020). Hugsanlega vegna jákvæðra áhrifa koffíns á lund einstaklinga, hafa rannsóknir sýnt fram á að þeir sem drekka 2-3 kaffibolla á dag eru í töluvert minni sjálfsvígshættu en þeir sem ekki drekka kaffi eða koffín (Petre, A., 2020). Koffínneysla er einnig talin draga úr líkindum á Alzheimer’s og parkinsons og getur verndað gegn hjartasjúkdómum og sykursýki. Koffín eykur einnig efnaskipti, ýtir undir fitubrennslu og getur bætt frammistöðu á æfingum (Petre, A., 2020).

Koffín er náttúrulegt efni sem örvar starfsemi líkamans, hvort sem það er í heila, hjarta eða vöðvum líkamans. Þegar maður drekkur koffín er það tekið upp frá maganum inn í blóðstreymið þar sem það fer í lifrina og er brotið niður í smærri einingar. Þessar smærri einingar skapa örvandi áhrif koffíns með því að tengjast við móttaka fyrir adenósín, en adenósín er efni sem slakar á heilastarfsemi og veldur þreytu (Petre, A., 2020). Með því að tengjast adenósín móttökum hamlar koffín áhrif adenósíns og minnkar þannig þreytutilfinningu.

Koffín er fremur fljótvirkt efni, en það tekur einungis um 20 mínútur fyrir það að komast inn í blóðstreymið og um klukkustund að ná hámarks virkni (Petre, A., 2020).

Hversu háð/ur ertu kaffi ?

Hvaða hlutur inniheldur mest koffín ?

Hámarksdagskammtur koffín neyslu.

Koffínneysla er mikið áhyggjuefni í nútímasamfélagi og sýna rannsóknir að neysla koffíndrykkja margfaldast með hverju árinu. Hámarksdagskammtur koffínneyslu hjá fullorðnum einstakling er 400 mg en meðalneysla er um 100-600 mg á dag . Til að gera sér betur grein fyrir koffínmagni er til að mynda 120 mg af koffíni í einum kaffibolla (Valgerður Árnadóttir, 2020) (Embætti landlæknis, 2019). Hvað varðar börn og unglinga miðast hámarksskammtur koffínneyslu við 1,4 mg koffín fyrir hvert líkamskíló, það gefur okkur að unglingur sem vegur 50 kíló má að hámarki neyta 98 mg af koffíni á dag (Heilsuvera, e.d.).

Í rannsókn sem Háskólinn í Reykjavík gerði um koffínneyslu barna og unglinga kemur fram að koffínneysla hefur aukist töluvert á síðustu árum. Dagneysla framhaldsskólanema árið 2016 var 22% en árið 2018 var dagneysla komin upp í 55%. Ef horft er á þessa aukningu út frá kynjunum hefur dagneysla koffíns hjá stelpum aukist töluvert meira en hjá strákum eða um 40% á meðan neysla strákanna um 25%. Þrátt fyrir þetta var dagneysla kynjanna svipuð árið 2018, eða 55% hjá strákum og 54% hjá stelpum. Einnig var skoðuð dagleg koffínneysla grunnskólanema í 8-10. bekk og sýndu þær niðurstöður einnig að koffínneysla hafði aukist töluvert á þessum tveimur árum. Árið 2016 var dagneyslan 16% en árið 2018 var hún komin upp í 28% (Embætti landlæknis, 2019). Áhættunefnd framkvæmdi rannsókn fyrir matvælastofnun á unglingum í 8-10. bekk sem leiddi í ljós að koffínneysla íslenskra ungmenna er sú mesta í Evrópu (Matvælastofnun, 2020).

Áhrif þessara miklu koffínneyslu ungmenna hér á landi má rekja til markaðssetningu og framboðs (Matvælastofnun, 2020). Markaðurinn af drykkjum sem innihalda koffín hafa stóraukist hér á landi og markaðssetning þeirra helst í hendur við það. Markaðssetningin sem beinist að ungu fólki hefur skapað umhverfi sem getur verið verulega lífsógnandi fyrir lýðheilsu þeirra (Breda o.fl., 2014).

Aukning dagneyslu koffíns hjá framhaldsskólanemum.

Við skiptum verkefnum niður með okkur eftir því hvaða spurningum við vildum svara.
Erla, Gabríela og Sigríður Inga tóku að sér að svara spurningunum hvort að koffínneysla væri skaðleg fyrir líkamann og hvers konar áhrif koffín hefur á einstaklinginn. Þær sáu um að skrifa innganginn.
Berglind, Aldís og Berglind Rós tóku að sér að fjalla um áhrif koffíns á svefn, hvernig megi draga úr koffín neyslu og fjalla um orkudrykki. Einnig hvar koffín finnst í náttúrunni.
Arna, Ársól og Júlía svöruðu spurningum um koffínneyslu í nútímasamfélagi og komu inn á breytingu á markaðssetningu síðustu ára. Þær sáu um að skrifa lokaorð.

Við unnum svo allar að því að setja verkefnið saman á padlet.  Samvinna gekk vel og tóku allir virkan þátt í að skrifa sinn hluta. Heimildaskráning var unnin í sameiningu.

Náttúran framleiðir koffín
Koffín er hægt að finna í 60 plöntutegundum í náttúrunni! Þá má helst nefna telauf, matelauf, kakóbaunir, kólahnetur eða gúaranakjarnar og að sjálfsögðu kaffiber/kaffibaunir (Jóhanna Ingvarsdóttir, 2007).

Almennt
Orkudrykkir í sjálfu sér eiga ekki nánari skilgreiningu aðra en að bera heitið “orkudrykkir”. Þó þykir heitið fremur villandi þar sem sjaldan er eiginleg orka í drykkjunum þar sem algengast er að þeir séu hitaeiningasnauðir. Þessir hitaeiningasnauðu orkudrykkir eru þá bragðbættir með ýmiskonar sætuefnum. Orkudrykkir eiga það allir sameiginlegt að innihalda koffín og margir hverjir innihalda ýmis konar aukaefni. Innan Evrópu hefur ekki enn tekist að samræma reglur um magn þessara efna og innihald almennt. Hámarksmagn koffín sem leyfilegt er að hafa í hverjum drykk og selja hér á landi er 320mg/L án sérstaks leyfi matvælastofnunar (Matvælastofnun, 2021).

Fyrir hvern?
Orkudrykkir eru framleiddir með ákveðinn tilgang í huga og markaðssetning eftir því en henni er sérstaklega beint að ungu fólki, athafna- og íþróttafólki. Þar sem börn eru viðkvæmari fyrir áhrifum koffíns en fullorðnir eru þau í áhættuhópi varðandi neyslu þessarra drykkja. Kannanir á vegum HR hafa sýnt fram á aukna neyslu orkudrykkja á meðal efsta stigs í grunnskóla og styðja þessa kenningu.

(Matvælastofnun, 2021).

Hvernig er hægt að draga úr koffínneyslu barna og unglinga?
Eins og fram hefur komið hér á þessum padlet vegg er koffín mjög ávanabindandi efni sem hefur viðkvæm áhrif sérstaklega á börn og unglinga (Embætti landlæknis, 2010). Mikilvægt er að almenningur sé meðvitaður og upplýstur um áhrif koffínneyslu. Foreldrar ættu að vera varkárir og reyna að koma sinni þekkingu á framfæri. Foreldrar þurfa að fylgjast vel með því að börnin sín þá sérstaklega þau sem eru yngri en átján ára séu ekki að neyta koffínríkra orkudrykkja (Embætti landlæknis, 2010).
Þar sem börn í all flestum tilfellum smakka ekki á hefðbundnu kaffi eða tei hafa mörg hver tilhneigingu til að skipta út gosi eða öðrum svaladrykkjum fyrir bragðgóða orkudrykki. Tilkoma orkudrykkja og markaðssetning ýtir þannig enn fremur undir koffínneyslu barna (European Commission, 2003). Kennarar, starfsmenn félagsmiðstöðvar, íþróttaþjálfarar, afgreiðslufólk verslana og heildsalar bera einnig ábyrgð á að fræða krakka og koma í veg fyrir að þau drekki þessa drykki.
Í verslunum á Íslandi er orkudrykkjum stillt upp á áberandi hátt og oft eru þeir á afslætti sem eykur þannig líkur á að börn og unglingar kaupi sér þessa drykki. Með því að auðvelda aðgengi barna og unglinga að orkudrykkjum er líklegra að drykkjan eykst hjá þessum aldurshópi. Því er mjög mikilvægt að allt samfélagið hjálpist að og skori á stjórnvöld til þess að herða viðmið, auka eftirlit með auglýsingum orkudrykkja og takmarka aðgengi þeirra að orkudrykkjum. Hægt væri til dæmis að hækka verð drykkjanna, skylda framleiðendur til að merkja umbúðir orkudrykkja og vara þannig börn yngri en átján ára við neyslu orkudrykkja (Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, 2021).

Nægur svefn er einn af mikilvægustu þáttum manneskjunar til að halda góðri geðheilsu ásamt því að stunda heilbrigðan lífsstíl. Slæmur svefn eða léleg svefnrútína hefur neikvæða áhrif á líkamann okkar og geðheilbrigði. Að innbyrða mikið magn af koffíni á hverjum degi hefur slæm áhrif á svefn. Eftir um 30 mínútum, frá því að einstaklingur innbyrðir koffín, er virkni þess mest (Lyfja, e.d.). Miðað er við fyrir heilbrigðan einstakling að hann drekki um fjóra kaffibolla á dag sem svarar um 400 mg af koffíni (Fittness, 2020). Það eru ekki margir, af þeim sem drekka koffín, sem vita hversu langur helmingunartími koffíns er í líkamanum en hann er í kringum 5-7 klukkustundir. Þannig að eftir 12 klukkustundir er einn fjórði hluta koffíns enn til staðar í líkamanum. Það segir okkur að ef einstaklingur innbyrðir koffín seinnipart dags mun þó nokkuð magn vera ennþá í líkamanum þegar einstaklingurinn leggst til svefns. Því er mælt með því að innbyrða ekki koffín eftir klukkan 14:00 á daginn ef viðkomandi á við svefnvandamál að stríða. Lifrin gegnir mikilvægu hlutverki í líkamanum og eitt af því er að brjóta niður koffín úr líkamanum. Þegar maður verður eldri þá hægist á starfsemi líkamans sem og allri brennslu. Einstaklingur verður því næmari fyrir virkni koffínsins og jafnvel lengur en sá sem yngri er (Lyfja, e.d.).

Koffín sem er ennþá í líkamanum þegar lagst er til svefns getur orsakað erfiðleika við að sofna. Ef einstaklingur á það til að vakna á nóttunni þá getur koffínið orsakað það að einstaklingur nái ekki að sofna aftur. Koffínið getur líka haft áhrif á að lengd djúpsvefns verður minni en talið er eðlilegt og líkaminn þarf á að halda. Djúpsvefn er mjög mikilvægt svefnstig því á þessu svefnstigi myndum við vaxtarhormóna, endurnýjum frumur og losum eiturefni úr heila. Þetta svefnstig er einnig mikilvægt hvað varðar úrvinnslu áreita sem og minni. Því betri eða lengri sem djúpsvefnin er því færari er einstaklingur um að bæta árangur sinn í námi og starfi auk þess sem hann verður líka afkastameiri. Ef einstaklingur fær ekki nægan djúpsvefn getur það valdið þunglyndi, þyngdaraukingu og eykur líkur á veikindum (Lyfja, e.d.).

Eins og fram hefur komið er óhóflega koffínneysla skaðleg fyrir líkamann. Þrátt fyrir að koffín í óhóflegu magni geti haft slæm áhrif á líkamann, getur koffín í hóflegu magni haft einhver jákvæð áhrif. Mikilvægt er að fyrir þá einstaklinga sem kjósa að neyta koffíns, að kynna sér vel hámarksdagskammt ásamt því að vera meðvituð um mögulegar aukaverkanir. Óhófleg koffínneysla getur haft margvísleg áhrif, meðal annars truflun á líkamsstarfsemi og haft hamlandi áhrif á svefn. Margir gera sér ekki grein fyrir helmingunartíma koffíns eða hversu lengi lifrin er að brjóta það niður. Það getur gert það er verkum að einstaklingar neyta koffíns of seint eða eftir þann tíma dags sem ráðlagt er.

Koffínneysla hefur aukist töluvert síðustu ár og má rekja það til aukinar markaðssetningar og framboðs á vörum sem innihalda koffín. Þetta hefur valdið því að yngri einstaklingar eiga auðveldara með og eru líklegri til að sækjast í slíkar vörur. Ef horft er á neyslu koffíndrykkja síðustu ár og þá aukningu sem hefur nú þegar átt sér stað er líklegt að sú aukning haldi áfram á sama hraða ef ekki verður gripið til aðgerða.