Bekkjarstjórnun - starfsþróun by María Emilsdóttir

Skilrúm
Skilrúmin hef ég notað til þess að skipta stofunni betur upp. Ég er með mjög litla kennslustofu og stundum er gott að geta notað skilrúmin ef nemendur eru mikið að trufla hvorn annann eða fyrir nemendur til þess að geta einbeitt sér betur að vinnu sinni. Þessa hugmynd fékk ég eftir lestur greinar Simonsen, o.fl., (2008).

Sjónrænt skipulag
Með því að styðjast við sjónrænar vísbendingar þurfa nemendur ekki einungis að reiða sig á talað mál. Þetta eykur einnig sjálfstæði nemenda og minnkar óróleika (Ingibjörg Karlsdóttir, 2013).

Bekkjarsáttmáli
Bekkjarsáttmálinn var unninn út frá hugmyndum nemenda um hvernig þau vildu hafa samskiptin í bekknum. Við skráðum fullt af hugmyndum upp á töflu og nemendur kusu svo þau atriði sem þeim fannst skipta mestu máli og eru þau uppistaða bekkjarsáttmálans. Ef upp koma samskiptavandamál í hópnum, er mjög gott að geta vísað í bekkjarsáttmálann. Hann er mjög sýnilegur á vegg inn í kennslustofunni. Samkvæmt fyrirlestri Súsönnu Margrétar þá skiptir máli að nemendur eigi hlut að máli (Súsanna Margrét, munnleg heimild, 23. ágúst, 2021). Einnig er það mín reynsa að nemendur eru líklegri til þess að fara eftir reglum sem þeir setja sjálfir.

"Námsveggir"
Námsveggir eru góð leið til þess að auka virkni nemenda. Samvkæmt Súsönnu Margrét er það vænlegt til árangurs þegar kemur að bekkjarstjórnun að skipuleggja kennsluna þannig að hún byggi á virkni nemenda (Súsanna Margrét, munnleg heimild, 23. ágúst 2021). Hér geta nemendur nálgast ýmsar upplýsingar á eigin spýtur.  Ég er dugleg að skipta út spjöldunum í takti við námsefnið hverju sinni. Þetta hefur minnkað þörfina fyrir upprétta hönd og nemendur eru sjálfstæðari í verkefnavinnu.

Uppröðun í kennslustofu
Ég breyti uppröðun í kennslustofu mjög reglulega. Stofan mín er mjög lítil og ég myndi gjarnan vilja hafa fjölbreyttari leiðir til þess að raða upp borðum. Yfirleitt sitja tveir til fjórir saman.  Hér er dæmi um eina uppröðun í kennslustofu. Í stofunni er nær ómögulegt að hafa hópavinnu borð en hálft u og borð í miðjunni er uppröðun sem einnig hefur reynst vel. Samkvæmt Súsönnu Margrét skiptir uppröðun í kennslustofu máli fyrir góðan bekkjaraga (Súsanna Margrét, munnleg heimild, 23. ágúst 2021).

Umbunarkerfi
Hér má sjá umbunarkerfi sem ég hef verið að nota eftir áramót. Ég færi poppbaunir í glæru klukkuna þegar nemendur sýna jákvæða hegðun. Umbun fæst þegar baunirnar ná upp að límbandinu. Dæmi um fyrirfram skilgreinda jákvæða hegðun er góður vinnufriður, nemendur eru fljótir að koma sér að verki, hlusta, eru jákvæðir og stundvísir. Ég nýti tækifærin þegar nemendur sýna þá hegðun sem ég vil sjá, hrósa og set baunir í krukkuna. Mér finnst þetta virka mjög vel og bekkjarstjórnun hefur gengið mun betur eftir að ég tók krukkuna í notkun. Þessa hugmynd fékk ég úr grein Simonsen, Fairbanks, Briesch, Myers og Sugai (2008). Það má segja að umbunarkerfið sem ég hef notast við sé blanda af hrósi, hópstyrkingu og táknkerfi.

Dagbókarfærsla frá 02.03.2022
,,Núna hef ég verið að nota baunirnar í sirka tvær vikur. Ég hef verið dugleg að hrósa nemendum fyrir góða hegðun og set þá baunir í krukkuna. Ég hef tekið eftir því að ég hef betri stjórn á hópnum og oftast þarf ég bara að telja hátt og snjallt upp að 5 til þess að fá þögn. Einnig hef ég verið að reyna að fá nemendur til þess að vera sneggri að skipta á milli verkefna og þá hef ég verið að notast við tímavaka. Ég segi t.d.: Núna eiga allir að sækja stærðfræðibækurnar og þið fáið tvær mínútur til þess að ganga frá og sækja bækurnar. Þetta hefur gengið vel og mér finnst þetta virka sérstaklega vel á þá nemendur sem eiga hvað erfiðast með þessi skipti.

Hugmyndakassi
Í hugmyndakassann geta nemendur sett hugmyndir af því sem betur má fara í skólanum. Þeir geta einnig sett nafnlausar hugmyndir af því sem þeir vilja ræða á bekkjarfundi, t.d. varðandi samskipti í hópnum. Þetta finnst mér hafa gefist vel og nemendur eru mjög duglegir að nota kassann. Þetta er hluti af lýðræðinu sem Súsanna Margrét fjallaði um, sem er mikilvægt fyrir góðan bekkjaraga (Súsanna Margrét, munnleg heimild, 23. ágúst 2021).

Jákvæð og hvetjandi stofumenning
Samkvæmt Súsönnu Margrét þá skiptir miklu máli að byggja upp jákvæða og hvetjandi stofumenningu (Súsanna Margrét, munnleg heimild, 23. ágúst 2021). Því hef ég reglulega verið með kennslustundir þar sem unnið er með bekkjaranda. Til þess hef ég til að mynda nýtt námsefni úr verkfærakistu  Vöndu Sigurgeirsdóttur.

Góð bekkjarstjórnun ein af forsendum árangursríkrar kennslu
Samkvæmt Marzano, Marzano og Pickering (2003) er bekkjarstjórnun ein af forsendum árangursríkrar kennslu. Því ákvað ég að taka bekkjarstjórnun fyrir í þessu starfsþróunarverkefni.

Gott skipulag kennslustofu
Samkvæmt Simonsen, Fairbanks, Briesch, Myers og Sugai (2008) skiptir uppröðun í kennslustofunni máli og ætti að forðast hópamyndanir (e. crowding) og truflanir (e. distraction). Það má gera með því að búa til meira pláss og nota skilrúm en rannsóknir hafa sýnt að það hefur jákvæð áhrif á nemendur. Ég legg mikið upp úr því að hafa gott skipulag í kennslustofunni. Allir hlutir eiga sér sinn stað. Auk þess legg ég mikið upp úr því að nemendur geti nálgast öll námsgögn auðveldlega. Þeir eru til dæmis með box á borðum og körfum þar sem þeir geyma bækur, blöð, skriffæri og fleira til þess að forðast að þeir séu á óþarfa flakki.

Er ég alveg búin/búinn?
Þessa hugmynd fékk ég úr fyrirlestri Súsönnu Margrétar og hangir spjaldið upp á vegg í stofunni hjá mér (Súsanna Margrét, munnleg heimild, 23. ágúst 2021).

Þeir sem ljúka á undan og áður en þú spyrð kennarann
Þessa hugmynd fékk ég einnig úr fyrirlestri Súsönnu Margrétar (Súsanna Margrét, munnleg heimild, 23. ágúst 2021).

Ágreiningar í frímínútum
Í bekknum mínum koma reglulega upp einhverskonar ágreiningar í frímínútum sem nemendur koma svo gjarnan með inn í skólastofuna. Það tekur tíma frá kennslunni og orku frá mér að vera sífellt að leysa slík mál með nemendum. Því fékk ég þá hugmynd eftir að hafa lesið grein Lilju M. Jónsdóttur (2021) að velja leiki fyrir nemendur til þess að fara í í frímínútum. Þar sem ég var að prófa þetta fyrirkomulag í fyrsta skipti, reyndi ég að velja hópleiki sem nemendur þekktu og dróg í lið áður en þau fóru út. Þetta prófaði ég í eina viku. Það komu auðvitað upp einhver mál og árekstrar, eins og t.d. nemendur sem ekki voru sáttir við í hvaða liði þeir lentu og fleira. En þegar á heildina er litið fannst mér þetta ganga vel og er eitthvað sem ég mun nýta áfram á næsta ári. Ég nýtti mér meðal annars leikjavefinn til þess að fá hugmyndir að hópleikjum.

Tímavaki
Tímavakann nota ég t.d. þegar við erum að skipta milli viðfangsefna, þá getur oft skapast svolítill óróleiki og nemendur fara gjarnan að gera eitthvað annað eða eru lengi að koma sér að verki. Ég hef þá látið nemendur vita að þeir hafi tvær mínútur til þess að ganga frá og skipta yfir í næsta verkefni og stilli svo tímavakann. Þetta virkar mjög vel og sérstaklega á nemendur sem eiga erfitt með þessi skipti.

Uppröðun í kennslustofu (2)
Hér er video af uppröðun sem ég hef mikið notað og mér hefur fundist reynast vel. Því miður get ég ekki haft öll borðin í U þar sem kennslustofan er of lítil og býður ekki upp á það.

Dæmi um verkefni sem nemendur unnu úr verkfærakistu Vöndu Sigurgeirsdóttur: Það sem er best og það sem þarf að laga.
Hér má sjá niðurstöður eftir vinnu með námsefni frá Vöndu sigurgeirsdóttur. Ég breytti aðeins verkefninu en ég ákvað að skipta nemendum í námspör í stað hópa. Ég lét nemendur fyrst skrifa á blað það sem er best við bekkinn og það sem þeim fannst þurfa að laga. Að því loknu skrifaði ég niðurstöður nemenda á töfluna og í lokin var kosning um það sem þeim fannst mikilvægast að laga í bekknum og einnig það sem þeim fannst að væri best við bekkinn. Við skrifuðum þessi atriði á karton og ég hengdi þau upp á vegg við hlið bekkjarsáttmálans. Næsta skref er að ákveða hvernig best sé að laga þá hluti sem nemendur voru sammála um að mikilvægast væri að laga.