Ótrúleg saga um risastóra peru. by Sigurey Eiríksdóttir

Kveikja Bókin Ótrúleg saga um risastóra peru. Bókin er eftir Jakob Martin Strid sem er danskur rithöfundur. Þýðandi bókarinnar er Jón St. Kristjánsson.

Þema
Þema þessa verkefnis er sjór, flöskuskeyti og vinátta en þessi bók inniheldur hafsjó af hugmyndum sem hægt er að nota við þemavinnu í kennslu.

Hugmynd
Hugmyndir okkar eru að nemendur búi til flöskuskeyti og setja í flöskuna fræ sem sá sem fær flöskuskeytið getur gróðursett. Einnig þurfa þau að gera grein fyrir því hver þau eru, hvaðan flöskuskeytið kemur og hvaða fræ þau sendu þeim. Við getum byrjað á því að fá börnin til þess að fara í hugarflug með leiðsögn um sjóinn og finna þar fjársjóðskistu sem er full af einhverju skemmtilegu. Síðan eru börnunum skipt upp í fjóra hópa sem eiga að gera fjársjóðskort hver hópur fyrir sig. Börnin búa til fjársjóðskistu úr skókassa sem þau setja eitthvað skemmtilegt í og fela úti í nágrenni skólans. Síðan skiptast börnin á fjársjóðskortum og fara að leita að fjársjóðnum. Frá því að þemaverkefnið byrjar eru börnin búin að fá perusteina og setja í vatn til þess að fá þá til að spíra. Við lok verkefnisins gróðursetja börnin steinana og fara með þá heim til þess að sjá hvað gerist yfir sumarið.

Hópavinna
Samvinna í fjársjóðskistugerð.

Kennsluhættir
Við ætlum að nota útlistunarkennslu  með því að lesa bókina fyrir nemendur, útskýra kveikju efnisins, sýna myndband um leið og lesið er upp úr bókinni svo að innlifunin í viðfangsefnið verði eftirminnilegra. Spyrja og svara spurningum um leið og þær kvikna.

Innlifunaraðferð og tjáning  eru kennsluaðferðir sem við ætlum að nota eða hugarflug með leiðsögn. Við slökkvum öll ljós og kveikjum á kerti til að skapa rólegt andrúmsloft. Allir loka augunum og tæma hugann. Kennari kemur nemendum inn í söguna með lýsingum á einhverjum hlut eins og skipi og lýsir aðeins umhverfinu. Nemendur skoða skipið í huganum og finna jafnvel lykt, heyra brak og skoða einhverja  hluti sem þau finna. Eftir svolítinn tíma í hugarheimi þá komum við til baka og umræður hefjast um til dæmis hvað við fundum og hver upplifunin var.

Hópvinnubrögð. Með því að láta nemendur vinna saman að fjársjóðskistu og fjársjóðskorti eflum við samvinnu, lýðræði, umræðuhæfni og sköpun.

Framkvæmd á verkefnum
Undirbúningur kennara: útvega 4 kassa í svipaðri stærð til fjársjóðskistugerðar, blöð til fjársjóðskortagerðar, flöskur til flöskuskeytagerðar, perusteina (ásamt nemendum) til að setja í skeytið og til að nemendur geti gróðursett. Útvega dagblöð, lím, málningu, spýtuafganga og efnisbúta til að búa til dularfulla eyju.
Dagur 1. - Mánudagur

Við byrjum á því að kynna þema verkefnisins fyrir börnunum og gerum það með bókinni um Ótrúlega sögu um risastóra peru. Við byrjum á því að lesa fyrsta kafla bókarinnar í morgunkaffitíma barnanna og börnin sjá myndir úr bókinni á tjaldi. Eftir frímínútur höfum við stutt spjall um kaflann sem lesin var og börnin gera stilli myndir af sér sjálfum sem einhver eða eitthvað úr bókinni og fá verkefnið að safna eins mörgum perusteinum hjá vinum og ættingjum og þeir geta. (við kennararnir lika).  Allir hafa gaman saman.

Dagur 2. - Þriðjudagur

Við lesum kafla 2. í morgunkaffitíma barnanna og eftir frímínútur höfum við stutt spjall um innihald kaflans. Nemendur gera flöskuskeyti en við kennarar verðum búnir að útvega flöskur til verksins. Nemendur skrifa bréf sem inniheldur kynningu á sjálfum sér skrifaðri eða teiknaðri, hvaðan þeir koma  og fræ sem þeir skrifa af hvaða gerð er ( Farin verður fjöruferð í þessari þemavinnu til þess að setja flöskuskeytin í sjóinn, háð veðri).

Dagur 3. - Miðvikudagur

Kafli 3 lesinn og myndir skoðaðar. Umræða um innihald kaflans, hvað vinátta og samvinna skiptir miklu  máli. Allir búa til sinn fjársjóðskassa. Við (kennarar og/eða nemendur) verðum með skókassa sem að börnin nota sem fjársjóðskistur. Við skiptum bekknum í 4 hópa og hver hópur skreytir kassann sinn og fer að hugsa um hvað hægt sé að setja í hann.
Dagur 4 - Fimmtudagur

Kafli 4 lesinn og umræður í kjölfarið. Rifjað upp hvað samvinna og vinátta skiptir miklu máli því verkefni dagsins er að gera fjársjóðskort. Nemendum skipt niður í 4 hópa, hver gerir sitt kort þar sem fjársjóður er falinn, fjársjóðinn fela þau á skólalóðinni. Nemendur skiptast á fjársjóðskortum. Verkefnið verður svo leyst í útiveru daginn eftir þar sem nemendur finna fjársjóðinn sem er á því korti sem þeir fengu.

Dagur 5 – Föstudagur

Kafli 5 lesinn og farið verður yfir vikuna og allt sem við gerðum. Við stillum upp öllum myndum og hlutum sem að tengjast sögunni við vegginn svo að við getum skoðað allt saman. Eftir það ætlum við að teikna dreka sem er með vél, herbergi og öllu því sem að börnin vilja hafa í drekanum sínum sem þau sigla í yfir hafið. Myndir settar upp á vegginn.

Dagur 6 – Mánudagur

Kafli 6 lesinn og innihaldið rætt ítarlega, því að þar kemur fyrir Svartamyrkurshafið. Er það til? Þar koma við sögu maurildi, eru þau til? Svo koma sálir drukknaðra sjómanna, er það til? Hvað er satt og hvað ekki? Er kannski bara allt skrökvulýgi eða er þetta allt satt. Við förum með börnin í hugarflug með leiðsögn um myrkrið og sjáum allt sem gerst hefur í bókinni.

Dagur 7 – Þriðjudagur

Kafli 7 lesinn og innihaldið rætt. Í dag ætla börnin að gera dularfulla eyju úr allskonar efnivið. Börnin vinna að þessu saman í hópunum sínum og hafa stórt pappaspjald sem að eyjan á að vera á og síðan fá þau frjálsar hendur með dagblöð, lím, málningu, spýtuafganga,  efnisbúta og bara allt efni sem að við komum höndum yfir. Þarna verða þau að sýna samvinnu og sköpunargleðin fær að njóta sýn.

Dagur 8 – Miðvikudagur

Kafli 8 er lesinn og eftir hann klárum við eyjuna frá því í gær (ef að það kláraðist ekki). Í dag ætlum við að tala um mánaðardaga. Allir skrifa niður hvaða dagur er afmælisdagur þeirra og lærum lagið um mánuðina. Allir afmælisdagarnir verða settir upp á vegg. Þetta verkefni tengist því hvað söguhetjurnar eru marga daga á leiðinni heim.

Dagur 9 – Fimmtudagur

Kafli 9 og 10 verða sameinaðir og allt sem eftir var að klára sem getur verið mismundandi eftir hópum klárað. Kennarar aðstoða við það sem þarf. Við ætlum að ræða um tilfinninguna sem við fáum þegar við komum heim eftir langa fjarveru og eftir að hafa verið lengi frá vinum og ættingjum.

Dagur 10 – Föstudagur

Í dag ætlum við að bjóða öðrum bekkjum að koma og skoða það sem við höfum föndrað og börnin segja öðrum börnum frá sögunni sem við lásum.

Námsefni og námsgögn
Bókin Ótrúleg saga um risastóra peru, myndband gert af okkur með myndum úr bókinni, verkefni í formi föndurs sem tengjast sögu bókarinnar, útivera sem tengist viðfangsefninu.

Dularfulla eyjan

Fjársjóðskort

Svartamyrkurshafið

Af hverju þessi bók?
Þessi bók er einstaklega skemmtilega skrifuð og mikið myndskreytt. Hugmyndin er ævintýraleg og gaman fyrir börn að fá að framkvæma og vera þáttakandi í sögunni, þannig gerum við  kennarar söguna lifandi með þeim.

Dagur 1 - Mánudagur

Upplýsingatækni